Lilja Sól, Birta Karen og Freyja Nótt
 

Eftir að krílið fæðist

Þegar barnið er komið í heiminn tekur við nýr og spennandi en líka mjög krefjandi tími. Foreldrarnir eru að læra að takast á við nýtt hlutverk og kynnast nýjum einstaklingi. Í öllu þessu amstri er mikilvægt að foreldrarnir gleymi ekki að rækta samband sitt og að þeir finni sér tíma til að gera eitthvað saman, bara tvö.

Að drukkna (ekki) í barninu...
Foreldrar ættu að halda í þær venjur sem búið var að koma upp áður en barnið fæddist. Þetta geta verið venjur eins og að fara í bíó á fimmtudögum, fara saman í bað eða leysa saman krossgátur. Þetta eru ekki aðeins dýrmætar samverustundir heldur einnig mikilvægur þáttur í því að lifa áfram eðlilegu lífi. Eins og gefur að skilja á barnið hug manns allan en mikilvægt er að varast að "drukkna í barninu" eins og einhver orðaði það.

Að fara út úr húsi
Það er ótrúlega auðvelt og skemmtilegt að taka nýfætt barn með sér hvert sem maður fer en foreldrar þurfa einnig að skreppa út saman án barnsins. Þá er nauðsynlegt að fá einhvern sem maður treystir vel til að passa barnið svo maður geti virkilega notið þess að vera "frjáls".

Samvera
Ef foreldrana langar til að gera eitthvað meira saman en þau hafa gert áður er rétti tíminn til þess núna. Þetta getur t.d. verið að læra nýja íþrótt, fara á dansnámskeið og þess háttar. Ef foreldrar gefa sér nokkra klukkutíma á viku til að stunda saman tómstundir tryggja þau sér samveru þar sem áherslan er lögð á þau sem einstaklinga en ekki sem foreldra. Það er alveg ótrúlegt hvað 2-3 klukkustundir á viku geta gert. (Athugið að í einni viku eru hvorki meira né minna en 168 klukkustundir svo ekki fá samviskubit yfir 2-3 tímum!)

Einvera
Eins og það er mikilvægt að foreldrarnir geri eitthvað saman er einnig mikilvægt fyrir móðurina að fá að vera ein. Hún þarf tíma og svigrúm til að "hlaða battaríin". Móðirin þarf að fá nokkrar stundir í hverri viku bara fyrir sjálfa sig. Þann tíma getur hún notað til að fara í búðir, heimsækja vini, fara í líkamsrækt og þess háttar. Bæði móðir og barn munu njóta góðs af því að móðirin einangrist ekki félagslega. Hættan á því er ekki eins mikil fyrir föðurinn þar sem hann vinnur að öllum líkindum úti og er því í meira sambandi við annað fólk en móðirin.

Þiggið alla hjálp
Eflaust munu afar og ömmur, frænkur og frændur, vinir og ættingjar vera boðnir og búnir til að gæta nýfædda barnsins. Notfærið ykkur þetta tækifæri til að vera saman eða hvíla ykkur. Þó svo að barnið sé á brjósti þarf móðirin ekki að vera til staðar öllum stundum; hægt er að geyma móðurmjólkina í kæli eða frysti til lengri tíma og gefa barninu úr pela.