

Haha bara fyrst á þessu ári :)
til hamingju með litla voffann,voða voða sætur
við kíkjum á ykkur þegar við komum suður ,,
´Nýárskveðja Kristjana Svenni og Hekla Lovísa.
Hlakka mikið til að koma aftur suður og fá að sjá allt þetta fína sem þið fenguð í jólagjöf!.. nú eru bara nokkrir dagar í að litlan megi koma! ég vona samt að hún komi ekki allltof snemma því ég kem ekki heim alveg strax!
Jólakveðja í kotið!
Hæhæ :) vona að þið hafið haft það rosa gott um jólin :D koss og knús!!
Gleðileg jól fallega fjölskylda og hafið það gott yfir hátíðarnar ;)
hæhæ... leiðinlegt með litla vin minn! En ég er viss um að gaurinn er eldhress í hundahimnaríki núna að éta mannamat í kílóavís! :) Knús handa ykkur öllum :)
Hæhæ vildi bara kvitta fyrir komu minni :) vonandi gengur þér vel í prófunum. Hafðu það gott um jólin skvís.
Kv.Ásdís (HÍ)
Vá hvað Lilja og Simbi hafa það kósý saman, algjör krútt :) En hvað segiru Guðný um að kíkja á okkur í næstu viku, þegar þú þarft að taka þér smá pásu frá lærdómnum?
á ekkert að setja inn myndbandið af einkasyninum og lamba hahahah örugglega það fyndnasta sem ég hef séð!!!!
Hæ BUMBULÍNA
jiiiii hvað þú ert æði með kúluna. Þarf að fara heyra í þér við tækifæri. Miss U
kv Sigrún
Hæ hæ innilega til hamingju með komandi fjölskyldumeðlim. Lítur rosalega vel út Guðný :) Vona að allt gangi vel og eigi eftir að ganga vel.
Kv Íris Sv.
Þú ert glæsileg með kúluna Guðný!!! ég veit ekki hvar ég væri án þín!! :D
Hæ hæ flotta fjölskylda, og til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn...þá meina ég hundinn sko :) Hann og Lilja taka sig vel út saman í baðinu, ég get vel trúað að skvísunni hafi þótt þetta heldur skondið!!!
Alltaf jafn gaman að skoða síðuna ykkar, þið eruð svo dugleg að uppfæra hana og setja nýjar myndir. Gaman að sjá myndirnar úr þrívíddarsónarnum, myndarstelpa eins og systir sín!!!
Heyrumst og sjáumst vonandi fljótlega..
Bestu kveðjur Andrea Rós og famelía
(p.s er búin að læsa síðunni hennar Andreu, sendi þér sms með lykilorðinu)
Takk stelpur fyrir hrósin, maður fer bara hjá sér ;) Gott að vita að ég þykji bumbuvæn því þetta verður ekki í síðasta skipti sem ég ætla að bera eina ;) :) ´
Gaman að sjá hverjir kíkja svo takk allir fyrir kvittið :D
Hæ hæ!
Best að kvitta fyrir komuna. Ji hvað bumban er orðin stór! Hún er búin að stækka asskoti mikið frá því að við hittumst á Austurvelli í sumar og þú þóttist vera að súpa rósarvínið sem ég skeinkaði þér, haha. Ég verð nú að fara að fara að sjá þig, allavegana einu sinni áður en litla skvísan kemur í heiminn. Verst hvað það er hræðilega mikið að gera í skólanum :S. Jæja, hafðu það gott Guðný mín!
Kveðja, Tinna
p.s. ég veit aldrei hvort að ég eigi að tala til foreldranna eða barnsins þegar ég skrifa í svona barnalands/nets-gestabækur.. Skrifa allavegana til þín þangað til að barnið kemur í heiminn.
p.p.s. Þér finnst ég kannski skrítin að segja þetta en mér finnst bumban fara þér vel, já, og líka nýji háraliturinn ;)
Hæ elskurnar njótið þess hvað allt gengur vel og barnið
er myndarlegt. gaman að fylgjast með, hafið það gott meðan við erum í burtu, <Bless á meðan
Þú lítur svakalega vel út Guðný mín!! Svo sæt með sæta bumbu :) Lilja er náttla bara sætust :)
Þetta eru ótrúlegar myndir úr sónarnum.
ömmu hlakkar ekkert smá til að fá að halda á bumbustelpunni.
Bstu kveðjur amma Lilja
Sætar myndir af Lilju :) agalega krúttleg með flétturnar og í selskinsskónum!
en til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn!
Sæl elskurnar mínar til hamingju með væntanlega dóttir og systir gaman að sjá myndir af ykkur og geta fylgst með ykkur.
Vonandi sjáumst við fljótlega kv. Amma Nína
Vá hvað þú lítur vel út ;) Fer þér ekkert smá vel að vera ólétt....... MILF hehe
Hæhæ gaman að fylgjast með ykkur :D
Froðumyndin af Lilju er sætasta mynd í heimi :)
Kveðja frá Viðarrimanum ! :*
Blessuð öllsömul.
Hjartanlega til hamingju með væntanlegan erfingja. Lilja mín er svo svakalega dugleg stóra systir svo þetta verður yndislegt. Við höldum okkur við stúlkurnar, erum að detta í handboltalið.
Bestu kveðjur (amma) Laufey
Ji hvað Lilja er orðin stór og myndarleg. Algjör dama og svaka fín með gleraugun. Guðný er auðvitað alltaf jafn sæt og það fer henni alveg svakaleg vel að vera svona ólétt. Gaman að sjá allt dótið sem er búið að versla - ekki var ég svona hagsýn og skipulögð. Keypti mest allt eftir á! Skil vel að þið séuð að tapa ykkur - hugsa að ég geri það líka næst :)
Annars biðjum við þremenningarnir bara að heilsa ykkur!
Flott fyrirsæta í selskinnsskónum og hjólagallanum,
og nýja heimasætan verður ekki lengi ber, gaman að fylgjast með síðunni ykkar
kveðja úr Lækjasmáranum
Hæ hæ
Rosa flott síða hjá ykkur,, hlakka til að fylgjast með bumbustelpunni :)
vaggan er reddý búin að pakka henni, endilega að kíkið í Granaskjólið ,,Kveðja Kristjana og Hekla Lovísa..sem verður bráðum STóra frænka..
JEY! stelpa! ............. mikið hlakka ég til að hitta þig fallega krútt! og Lilja er náttúrulega bara mesta dúllan á myndunum sínum!
sjáumst ekki á morgun heldur hinn! eða hinn! :) hehehe
Halló mæðgur!!
Fréttum að Lilja Sól ætti von á systkini! Innilega til hamingju með það, þið öll:) Hlökkum til að fylgjast með ykkur hérna á síðunni...Gangi ykkur vel, og láttu þér líða sem best Guðný mín:)
Kveðja Helga og dætur
Hæ hæ
Já takk fyrir síðast sömuleiðis og enn og aftur til hamingju með litla bumbugullið ykkar ;)
Nú styttist í að þið fáið að vita hvort það sé von á annarri prinsessu eða litlum typpaling, ekkert smá spennó ;)
Hlökkum til að fylgjast með ykkur litlu familíunni á síðunni....
kv. Hildur Rut og Jói
Ég er farin að hallast að því að þú sért bara með lítinn strák þarna :) Fékk það allt í einu á tilfinninguna.... (sama hvort það sé e-h að marka eða ekki hehe)