

hæhæ, gaman að hafa komið i heimsókn til ykkar seinasta sunnudag, við stefnum á að kíkja til ykkar í næstu viku. Einnig er pabbi þinn ekkert smá duglegur með saumavélina, meira að segja myndi ég hika við þetta;O
Stelpurnar þínar eru svo sætar Guðný mín! ég get hreinlega ekki beðið eftir að hitta ykkur næst og kreysta Birtu, hún er svo mikil ofur dúlla!!
Þú ert nú meiri krúsídúllan. Alltaf gaman að kíkja við og skoða myndir af þér, mamma þín er svo dugleg að setja inn myndir.
Það hlýtur að hafa verið gaman á Tenerife hjá ykkur:)
Kv, Adda og Sveinn Rúnar
Hæ hæ systur, vildi bara kvitta fyrir mig. Verð að fara að kíkja í heimsókn til ykkar.
Sælar sætu mæðgur og takk fyrir okkur í dag. Ofsalega gaman að koma til ykkar-og Andrea Rós var hæst ánægð með að hitta Lilju bestu!! vinkonu sína :=)
Kærar þakkir fyrir lánið á rólunni, hún er komin upp og á án efa eftir að vera mikið notuð. Andreu fannst þó verst að ekki væri til svona stærri róla...fyrir svona stór börn eins og hana og Lilju, hahaha :=)
Sjáumst vonandi fljótlega aftur...
Kær kv. úr Mosfellsbænum
Þið eigið svo duglegar stelpur... get ekki beðið eftir að koma suður og hanga meira með ykkur... :) knuuuus KATA
Hæ elsku fjölskylda
Vildi bara kvitta fyrir innlitið, ótrúlegt hvað Birta Karen stækkar og dafnar. Gaman að geta fylgst með á myndunum hvað hún er dugleg þar sem að við hittumst ekki það oft.
Nú styttist óðum í litlu fænkuna ekki nema tæplega 3 vikur í settan dag !!! úff Það verður gaman að taka mynd af 2008 árgangnum og ekki ólíklegt að það verði fjör á Herjólfsgötunni þegar að fram líða stundir
Bestu kveðjur
Jóna Björg og co
Bara að kvitta fyrir inlitið! Kíki reglulega hingað inn.
Ekkert smá flottar stelpur sem þið eigið.
Kær kveðja Signý.
Þú ert orðin svo stór og þvílíkt sykursæt. Ég heimta hitting fyrir skötuhjúin og mömmurnar ;) allt slúðrið að utan og svona hehe
BTW þið lítið öll ekkert smá vel út og æðislegar myndirnar af BK
Þið eigið alveg svakalega flottar stelpur og aðeins ofvirkar um leið. Sævar verður vonandi farinn að labba áður en Birta byrjar á því. Ég stefni alla vega að því ;) Brjálaður metnaður í minni!
Rosalega flottar myndir úr sólinni sem og aðrar!
Vona að þið hafið það sem allra best,
æðislegar myndir alveg.. ótrúlegt hvað hún stækkar hratt skvísan.. verð að fara að kíkja í heimsókn aftur fljótlega.. sjá nýju íbúðina líka :) hafið það rosalega gott :)
Hæ hæ rosalega hefur verið gaman hjá ykkur í sólinni. Ekkert smá mikið og flottar myndir af fjölskyldunni vera að sóla sig. Þurfum að hittast í næstu viku, erum svo uppteknar í vikunni og svo erum við að fara úr bænum um helgina.
kveðja Sæunn
Sæl kæra fjölskylda og velkomin heim...
Gaman að sjá myndirnar úr ferðinni ykkar, það hefur greinilega verið mikið fjör á Tenerife! Og til lukku með bróðir þinn Andri og hans frú, glæsilegt...fer ekki að koma tími á ykkur skötuhjú, hehe ;=)
Systurnar eru æðislega flottar í sólinni, og ég verð að segja að ávaxtamyndin hennar Lilju Sólar er svakalega flott--hún er líka algjör snillingur eins og mamma sín!!!
Sjáumst vonandi fljótlega í Hafnarfirðinum...
Kær kv. Gummi, Fanney, Andrea Rós og Aron Þór
En gaman að sjá hvað þú og þín fjölskylda hafið skemmt ykkur vel. Veðrið hefur greinilega verið frábært úti hjá ykkur.
Kveðja
Valgerður
Hey! Frekna Freknudóttir og fjölskylda :) gaman að skoða myndirnar af ykkur sæta fólk! Greinilega ofboðslega gaman! hlakka til að sjá ykkur fljótlega... þó ekki væri nema í eitt knús!
mig langaði bara smá að vera með ykkur úti:/ en svona er þetta litla rassgatið hann atli komið í staðin fyrir mig:)
ótrúlega skemmtilegar myndir, ég vona aðferðin hafi verið jafn skemmtó.
Myndirnar af frænkunum minna nú smá á tillamyndirnar af pöbbunum þegar þeir voru á svipuðum aldri:)
Hlakka til að sjá ykkur:)
Hæ hæ
vorum bara kíkja ,,litla skottan ekkert smá dugleg fer sko örugglega að labba í næstu viku:) sjáumst svo þegar þið komið heim...kv Kristjana og Hekla
hæhæ :) Lilja hefur greinilega staðið sig glæsilega á fimleikasýningunni... og Birta Karen alltaf jafn endalaust sæt... hvern langar ekki að kreista þessa dúllu :) Skemmtið ykkur vel á Tenerife.... ykkur er reyndar boðið í afmælisveislu á Dalvík á meðan þið eruð úti hehe.... eins gott fyrir ykkur að mæta hahahah..... knús Kata
p.s. hvar eru þessar árans einkunir Guðný.... ég er orðin voðalega þreytt á því að bíða!
bara að kvitta fyrir komuna =) flottar myndir!! :D
Hæhæ bara aðeins að kommenta á það hvað þær eru hrikalega sætar systurnar á forsíðunni. Algjörar snúllur :)
Jæja elskurnar mínar! Er að fara út á þriðjudaginn hehe ligga ligga lái!
bið að heilsa í kotið!
Hæ hæ
Jheminn eini hvað hún stækkar !!! Það er ekkert smáræði.
Vonandi gekk vel í prófinu í gær. Sjáumst fljótlega á Herjólfsgötunni
bestu kveðjur
Jóna Björg, Mannsi og Einar Óli
Hæ sæta fjölskylda,
Innilega til hamingju með nýju fínu íbúðina ykkar, hún virkar ekkert smá fín á myndunum og geggjað að hafa verönd og smá garð út af fyrir sig ;)
Hún er nú meira rassgatið hún Birta Karen, ótrúlega sæt og vel gerð stelpa hjá ykkur ;)
Gangi þér vel á lokasprettinum í skólanum Guðný....
kvitt og knús
Hildur Rut og co
Hæ hæ skotta, mamma þín er svo dugleg að setja inn myndir af þér, alltaf gaman að kíkja á heimasíðuna þína.
Kv. Sæunn og Svanfríður Dögg
Hæ hæ.
Bara rétt að kvitta fyrir innlitið, alltaf gaman að kíkja hér inn, enda alltaf fullt af nýjum myndum og fréttum :)
Æðislegar myndirnar af systrunum saman, það er ekki ónýtt að eiga tvær svona fallegar skottur!!!
Gaman að sjá íbúðina ykkar um daginn, ótrúlega hugguleg og það á án efa eftir að fara vel um ykkur þar!!! Andreu fannst alveg meiriháttar að skottast með Lilju Sól á sunnudaginn, vonandi getum við hist einhvern tíman fljótlega og leyft skvísunum að bralla e-ð saman.
Gangi þér ananrs vel í prófunum Guðný, biðjum að heilsa í bæinn..
Bestu kv. úr Mosfellsbænum
hvað er í gangi með þig Guðný mín? liðnir 4 dagar og engar myndir ;) hehehe.....þar sem þú svarar ekki símanum er best að segja þetta bara hér.. við ætlum út að borða uppeldisfræðipakkið á þriðjudaginn á Hressó.... vonandi kemstu!! tekur bara krúttmundu með þér :)
kissikissi
Til hamingju með nýju íbúðina!! Hún lítur mjög vel út á teikningum allavega ;)
Birta Karen verður bara sætari og sætari með hverjum deginum sýnist mér! Og Lilja Sól ekkert smá dugleg og sæt :)
Knús á ykkur,Hjördís
hey hey..... ég þarf að fara að koma og klípa í þessar krúttlegustu kinnar sem ég hef nokkurn tíma séð! :) sérstaklega af því að þið eruð að fara að stinga af á álftanes!!!! mér lýst ekkert á það eins og margoft hefur komið fram.....
Jæja mússímúss! bjóribjóribjór á morgun.... fell á þessu andskotans prófi væntanlega
Hæ Birta Karen og famely
Til hamingju með 3.mánaða afmælið, og nýju íbúðina
verður ekki flutt um helgina?