Elísabet Lilja og Haukur Þór Árnabörn
 

Vefdagbók

 

Apríl 2012.

Heil og sæl smá (mikil) leti búin að vera hjá mömmu að setja hingað inn :D

Við erum orðinn 5 ára og 2 ára og erum rosalega dugleg að stækka. Við erum núna á sama leikskóla og heitir hann Sunnuás, og finst okkur rosa gaman á leikskólanum. Elísabet er að læra ballet og er rosalega dugleg og stendur sig með príði. Haukur er orðinn rosalega duglegur að tala og er með ágætis munnræpu mest allan daginn og ég hef ekki hugmynd hvaðan hann hefur það ;D 

12. April 2012 - 17:15

 
 

Jól og áramót 2009

Sæl veriði það er held ég kominn tími á smá uppfærslu {#emotions_dlg.laughing}

Við vorum bara heima í kotinu um jólinn. Elísabet amma og Ingþór afi komu og voru hjá okkur á aðfangadag, ég fékk marga flotta pakka takk fyrir mig. Á aðfangadag var í matinn hjá okkur alveg dýriyndis humarsúpa í forrétt og frábærar nautalundir í aðalrétt og vorum við svo södd eftir það að við höfðum ekki pláss fyrir eftirréttinn. {#emotions_dlg.laughing} Á jóladag fórum við svo í kaffiboð hjá ömmu og afa í keilufelli (langamma og langafi ) vorum þar reyndar soldið stutt því mamma var svo þreytt, hún er alveg að springa{#emotions_dlg.laughing}. Um kvöldið komu Elísabet amma og afi Ingþór og borðuðum við alveg yfir okkur af hangikéti og pössuðum samt að hafa pláss fyrir eftirréttinn {#emotions_dlg.laughing} . Annan í jólum fórum við í kalt borð hjá Gunnu Betu frænku og var voða gaman að hitta alla þar, áttum æðislega kvöldstund saman og var ég að mestu að renna mér í rennibrautinni {#emotions_dlg.laughing}. Ég hef líka verið soldil ömmu og afa stelpa (mömmu og pabba pabba.) og gist mikið hjá þeim um jólin. Um Áramótin fengum við okkur kalkún sem borðaður var hér af bestu list, horfðum svo á fréttaannál (fullorna fólkið) en ég náði mér í stafla af bókum og las {#emotions_dlg.wink}. Kíktum svo á brennu út á geirsnefi ég var ekki alveg að fíla lætin sem voru úti en var hrifinn af brennuni og stjörnuljósunum. Komum eim horfðum á skaupið og var ég mest hrifinn af nammiskálinni {#emotions_dlg.laughing} en hlýddi þó um að spyrja um leyfi, við borðuðum líka eftirréttin með skaupinu sem var ís al a afi Ingi. Eftir skaupið fórum við út að horfa á raketturnar springa ég var ekkert hrifin af látunum sem voru miklu meiri heldur en fyrr um kvöldið og fór að gráta, mamma náði í heirnartólin hans pabba en þau voru brotin svo við redduðum okkur með eyrnatöppum og var ég ekki ósátt við það og horfði dolfallin á ljósasjóvið á himninum.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna {#emotions_dlg.laughing} litli bróðir ákvað að vera ekki fyrsta barn ársins svo við fjölskyldan bíðu enn spennt eftir honum {#emotions_dlg.laughing}.

2. January 2010 - 15:25

 
 

Sumarfríið

Smá færsla að koma hérna :o) svona loksins . Í sumar fórum ég, pabbi og mamma hálfgerðan hring um Ísland. Við byrjum á geysi eftir stutt stop á selfossi , skoðuðum hverana þar og drifum okkur svo á kjöl, keyrðum áleiðis að kerlingafjöllum pabbi hélt á mér og óð útí á sem var þar og vissi ég  ekkert hvað ég átti að gera fanst þetta voða skrítið. Keyrðum svo lengra að fjöllunum  og fengum okkur svo nesti , héldum áfram okkar för og kíktum á Hveravelli. Ókum svo beint á akureyri sú ferð sem farin var þennan dag tók 10 klst með stoppum . Þegar komið var á Akureyri fengum við okkur pizzuveislu á Greyfanum.

Keyrðum svo út á Hauganes og gistum hjá Kristrúnu og Himma, þar fékk ég fullt af mandarínum og Eplum mér finst það alveg best í heimi að fá mandarínur :o) . Þetta var um verzlunarmannahelgina og kíktum við svo daginn eftir inn í Akureyri og sáum þar einhverja söngvaborgar skemmtun en mér fanst hún svo hávær að við kíktum inn í RL búðina þar og græddi ég þar náttföt ;o) . Um kvöldið fórum við svo út að borða á Halastjörnuna , fengum 5 rétta máltíð og ég búin að vera eins og engill alla ferðina. Þjónustan á Halastjörnunni  var alveg æðislegt afþví að mamma er ófrísk mátti hún ekki borða sumt að því sem var á boðstólum og þær voru enga stund að redda öðru :o).

Daginn eftir leggjum við svo aftur í hann og stefnan er tekin á Neskaupsstaði  en með fullt af stoppum. Byrjuðum að fara að mývatni alveg rosalega fallegt þar svo kíktum við á dimmuborgir og mamma lofaði sér að fara þangað aftur og hafa meiri tíma, svo var stemt að hljóðakletta og ásbyrgi og ásbyrgi er án efa 1 fallegasti staður sem mamma hefur séð. Svo var það dettifoss og mamma mun aldrey gleyma þessum tröppum ég krifraði þær eins og ég gerði ekkert annað á daginn rosa dugleg og líka búin að vera alveg æðisleg allan tíman í ferðaleginu :o)

Komum seint á Neskaupstað og gistum í hesthúsinu hjá pabba Svönu (Sér íbúð fyrir hestamenn uppá lofti voða kósý) vorum þar í 1 nótt. Fórum út að borða í hádeginu me Svönu, Jesssicu og Tristani kíktum svo á siglufjörð og sáum húsið hennar ömmu Guðrúnar lang (það er líkan af því hér heima hjá mér) Svo drifum við okkur bara í bæinn það var svo mikil þoka að varla sást út fyrir bílinn svo þegar við erum hjá Eigilstöðum þá er svo mikil rigning og ringdi alla leiðinna í bæinn.

Ég var eins og engill í bílum alla leiðinna , ýmist söng, skoðaði bækur eða litaði á blað. Fanst mér þetta voða gaman.

Takk fyrir mig og mina þar sem við gistum og vonandi sjáumst við sem fyrst aftur.

P.S það koma myndir inn seinna úr ferðalaginu.

6. September 2009 - 21:15

 
 

Jæja !!!!

Þá er mamma loksins búin að setja inn myndir og það fullt af þeim. Það er annars bara allt gott að frétta að mér.

Það eru líka myndir komnar úr afmælinu mínu og ég þakka bara fyrir mig þótt langt sé liðið :)

Annars var verið að setja rör í mig og taka nefkírtlana mína og er ég rosaleg mömmustelpa núna, enda búin að standa mig alveg eins og hetja.

Og endilega munið eftir gestabókinni :)

25. May 2009 - 13:52

 
 

Veikindi.

Já ég er búin að vera soldið lasin núna er búin að vera hjá afa í hvassó á meðan og finnst það æði. Á kvöldin þegar ég er að fara að sofa segi ég, afi sækja mig og brosi út að eyrum. En ég fæ að fara í leikskólan á mánudaginn næsta. Mamma er búin að breyta aðeins svo nú er hægt að setja athugasemdir við myndirnar mínar:) Annars er ég voða dugleg og er farinn að tala rosa mikið :)

17. February 2009 - 10:04

 
 

Bara að láta vita af mér.

Hæ Ég er rosalega dugleg í leikskólanum og kann ég að syngja Litalagið, Apalagið og Afmælissönginn (hluta af honum.). Ég er farinn að tala rosa mikið og reyni að setja setningar saman, eins og ekki taka af mér.Ég er lika byrjuð að hjálpa mömmu að taka skóna mína af, voða dugleg. Ég er að fara í ungbarnasund á eftir með mömmu það verður gaman, mér finnst skemmtilegast að hlaupa á dínunni í átt til mömmu og hoppa út í .

Annars vil ég gera allt sjálf labba hvert sem við förum. Borða allt sjálf ég klæði mig sjálf úr (reyni það ef það tekst ekki þá fær mamma að hjálpa)

Ég bið að heilsa og munið eftir gestabókinni.

5. October 2008 - 08:56

 
 

Leikskólinn og fleyra.

Hæ ég er lítil leikskóla mær. Ég vil komast sem fyrst út úr húsi á morgnana, jafnvel enn í náttfötunum til að komast í leikskólan. Ég er voða dugleg í leikskólanum fóstrunar mínar heita Svala og Ágústa og segja þær að ég sé alveg indisleg stelpa. Ég er voða dugleg með skóflu og fötu í sandkassanum, og hleyp að koða allt dótið sem þar er. Ég er líka dugleg að borða eiginlega alltaf m.vel skráð á spjaldið mittsemsagt mjög vel.

Sundnámskeiðið mitt er byrjað eftir sumarfrí og fannst mér æði að koma aftur og var voða dugleg að fara í kaf en mér finst skmmtilegast þegar við megum fara upp á bláu dínuna og hlaupa til mömmu sem grípur mig ofani þetta vil ég gera aftur og aftur.

Ég fór í 18 mánaða skoðun um daginn og allt var mjög fínt ég er komin með rúmlega 30 orð og er farin að reyna að setja saman setningu en það tekst ekki alveg hjá mér ennþá. Ég veit hvar eyrun, augun, munnurinn, nefið, bumban, tásurnar, puttarnir eru, voða dugleg.

11. September 2008 - 15:10

 
 

Myndir

Það eru komnar fleyri myndir í albúmið vor 08. Og munið eftir gestabókini takk.

17. July 2008 - 09:19

 
 

Rútuferð 15 júní.

Ég fór með mömmu minni og Jónínu frænku til selfossar seint um kvöldið þann 14 júní og gisti hjá afa Tóta og ömmu Evu. Vaknaði ég hress og kát kl 06:30 á sunnudeginum og fór framm til mömmu. Kl 9:00 kíkti ég út í kirkjugarð með afa, ömmu, mömmu, Jónínu, Benna og Guðna. Hitti ég þar alla hina í ættini sem ætluðu með. Í kirkjugarðinum kíktum við á leiðið hjá Guðrúnu frænku hún var systir afa Tóta og langömmu. Brunuðum við svo á planið hjá fsu og fórum í rútu. Indriði sagði okkur sitthvað fróðlegt um jarðskjálfta. Það var síðan stutt stopp í Hlíðarenda á Hvolsvelli var síðan matarstopp á Önnu stofu?, á leiðinni til seljavalla hlustuðum við á þjóðsögur sem áttu að hafa gerst á þessu svæði. komum á seljavelli var lagt í göngutúr að gömlulauginni og fékk ég hásæti á öxlunum á afa. Bruðuðum síðan á skóarsafn og hittum Þórð safnvörð svaf ég samt voða mikið af safninu úti í rútu með Jónínu. Skoðuðum við skólan sem afi og nanna frænka gengu í. Var síðan brunað til Eyjarhóla og borðað nesti. Sumir gengu á Eyjarhól en mamma og ég gerðum það ekki mamma étlaði að plata mig til þess að sofna og það var ekki að ganga upp. Fórum svo að Skeiðflatarkirkjugarði að vitja leiða langafa, Þórólfs, Björns. Kíktum svo í Reynisfjöru og síðan á hlaðborð á Höfðabrekku. Síðan var brunað heim og var þetta frekar langur dagur fyrir svona lítinn kropp.

Verið sæl .

MUNA EFTIR GESTABÓKINNI.

19. June 2008 - 20:14

 
 

Tannlæknir og fleira =D

Já það hefur margt gerst hjá mér undanfarið, pabbi átti afmæli og er sund er oft á dagskrá. Síðan fór ég til tannlæknis í dag, í fyrradag sáu mamma og pabbi gráan blett á milli neðri frammtannana og var það litur og fékk mamma eithvað við því. Það er sett á tannburstan minn og mamma á að bursta. Ég er nefnilega ekki allt of ánægð með það sé verið að tannbursta mig, verð alveg brjáluð sem er nýtt. Fyrst fannst mér það gaman en eftir að tennurnar urðu fleiri er ekki alveg svo gaman.

En uppáhalds orðið mitt er hæ um þessar mundir og mamma veit ekki hversu oft á dag ég segi það.

Ég er búin að vera veik síðustu daga með hita og gullfoss og er það mjög leiðinlegt og ég er alveg viss um að mamma sé sammála mér.

Jónína frænka passaði mig í gær og var ég voða þæg og kláraði allt skyrið sem frænka gaf mér og er hún alveg sannfærð á því að ég sé botnlaus!! og líka hissa á því að ég skuli ekki vera með meira hold en þetta og mamma er sammála því.

Mamma skilur ekkert í því að þegar hún er búin að finna einhvern dag í að kíkja í heinsókn þá fæ ég hita en hún er alltaf á leiðinni.

Sé ykkur seinna dúllurassar.

15. May 2008 - 19:54