Elísabet Lilja og Haukur Þór Árnabörn
 

Fæðingarnar.

Elísabet Lilja. 

Svona Gerðist þetta allt

Jæja, þetta byrjaði þannig á sunnudaginn þann 25. febrúar  fórum við Árni upp í Hreiður vegna þess að ég var með ofsakláða út um allan líkamann. Þar fékk ég Tavegil í æð og ég gersamlega rotaðist en náði að vaka á leiðinni heim. Ég fékk ég Polaramin töflur með mér, þegar ég kom heim fór ég að sofa og vaknaði aftur um fimmleytið  u.þ.b. einum og hálfum klukkutímasíðar vaknaði ég og tók fyrstu Polaramin töfluna.

Stuttu síðar fór mig að svima og varð ég eins og ég hefði stútað nokkrum vodkapelum og mér leið ógeðslega illa og byrjaði að bólgna í andliti. Árni hringdi í mömmu mína og mömmu sína og þegar mamma mín kom las hún á fylgiseðil lyfsins og þar stóð að það ætti að hringja á 112 ef þessi einkenni kæmu og ég var flutt með sjúkrabíl upp á slysó og fékk þar stera til þess að hjálpa mér við að vinna úr ofnæminu og styrkja barnið.

Ég var send heim hálf tólf með Tavegil pillur en það virkaði ekki sem skyldi og um 3 leytið fór ég upp á Hringbraut og talaði við lækni á vakt og var sett í monitor. Hjartsláttur barnsins var rokkandi frá 170 upp í 190 slög og var ákveðið að sprengja belginn. Það var gert kl. 04.40 en það gekk ekki upp og var því ákveðið að ég fengi dripp í æð. Hríðarnar byrjuðu loksins um 6 leytið og gekk það ágætlega. Klukkan rúmlega 8 var athugað með útvíkkun og var hún þá orðin 4. Korter í níu þurfti ég að fá mænurótardeyfingu og leið mér þá miklu betur.

Eftir deyfinguna náði ég að festa pínu svefn í u.þ.bþ eina klukkustund og um hálf 11 var athugað með útvíkkun á ný og kom það öllum á óvart að hún var búin . Þá var ég látin fara á klósettið að pissa og ég hef ekki hugmynd um hvort það tókst eða ekki.  Svo var ég látin hanga á göngugrind til þess að koma barninu neðar í grindina mína og koma rembingnum af stað.

Rétt fyrir hádegi var ég komin aftur upp í rúm og þá var athugað hversu neðarlega hún var komin og það var alveg þó nokkuð.  Kl. 12 var ég látin rembast og kom þessi myndardama í heiminn kl 12.15.

Okkur mæðgunum heilsast bara nokkuð vel en það þurfti aðeins að sauma 3 stök spor, ekkert til þess að kvarta yfir þar sem það telst mjög gott miðað við fyrsta barn. Stúlkan var 17 merkur eða 4195g og 53 cm að lengd og höfuðmál var 37 cm.