

Sæl veriði það er held ég kominn tími á smá uppfærslu 
Við vorum bara heima í kotinu um jólinn. Elísabet amma og Ingþór afi komu og voru hjá okkur á aðfangadag, ég fékk marga flotta pakka takk fyrir mig. Á aðfangadag var í matinn hjá okkur alveg dýriyndis humarsúpa í forrétt og frábærar nautalundir í aðalrétt og vorum við svo södd eftir það að við höfðum ekki pláss fyrir eftirréttinn.
Á jóladag fórum við svo í kaffiboð hjá ömmu og afa í keilufelli (langamma og langafi ) vorum þar reyndar soldið stutt því mamma var svo þreytt, hún er alveg að springa
. Um kvöldið komu Elísabet amma og afi Ingþór og borðuðum við alveg yfir okkur af hangikéti og pössuðum samt að hafa pláss fyrir eftirréttinn
. Annan í jólum fórum við í kalt borð hjá Gunnu Betu frænku og var voða gaman að hitta alla þar, áttum æðislega kvöldstund saman og var ég að mestu að renna mér í rennibrautinni
. Ég hef líka verið soldil ömmu og afa stelpa (mömmu og pabba pabba.) og gist mikið hjá þeim um jólin. Um Áramótin fengum við okkur kalkún sem borðaður var hér af bestu list, horfðum svo á fréttaannál (fullorna fólkið) en ég náði mér í stafla af bókum og las
. Kíktum svo á brennu út á geirsnefi ég var ekki alveg að fíla lætin sem voru úti en var hrifinn af brennuni og stjörnuljósunum. Komum eim horfðum á skaupið og var ég mest hrifinn af nammiskálinni
en hlýddi þó um að spyrja um leyfi, við borðuðum líka eftirréttin með skaupinu sem var ís al a afi Ingi. Eftir skaupið fórum við út að horfa á raketturnar springa ég var ekkert hrifin af látunum sem voru miklu meiri heldur en fyrr um kvöldið og fór að gráta, mamma náði í heirnartólin hans pabba en þau voru brotin svo við redduðum okkur með eyrnatöppum og var ég ekki ósátt við það og horfði dolfallin á ljósasjóvið á himninum.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna
litli bróðir ákvað að vera ekki fyrsta barn ársins svo við fjölskyldan bíðu enn spennt eftir honum
.
Skrifa athugasemd