

Smá færsla að koma hérna :o) svona loksins . Í sumar fórum ég, pabbi og mamma hálfgerðan hring um Ísland. Við byrjum á geysi eftir stutt stop á selfossi , skoðuðum hverana þar og drifum okkur svo á kjöl, keyrðum áleiðis að kerlingafjöllum pabbi hélt á mér og óð útí á sem var þar og vissi ég ekkert hvað ég átti að gera fanst þetta voða skrítið. Keyrðum svo lengra að fjöllunum og fengum okkur svo nesti , héldum áfram okkar för og kíktum á Hveravelli. Ókum svo beint á akureyri sú ferð sem farin var þennan dag tók 10 klst með stoppum . Þegar komið var á Akureyri fengum við okkur pizzuveislu á Greyfanum.
Keyrðum svo út á Hauganes og gistum hjá Kristrúnu og Himma, þar fékk ég fullt af mandarínum og Eplum mér finst það alveg best í heimi að fá mandarínur :o) . Þetta var um verzlunarmannahelgina og kíktum við svo daginn eftir inn í Akureyri og sáum þar einhverja söngvaborgar skemmtun en mér fanst hún svo hávær að við kíktum inn í RL búðina þar og græddi ég þar náttföt ;o) . Um kvöldið fórum við svo út að borða á Halastjörnuna , fengum 5 rétta máltíð og ég búin að vera eins og engill alla ferðina. Þjónustan á Halastjörnunni var alveg æðislegt afþví að mamma er ófrísk mátti hún ekki borða sumt að því sem var á boðstólum og þær voru enga stund að redda öðru :o).
Daginn eftir leggjum við svo aftur í hann og stefnan er tekin á Neskaupsstaði en með fullt af stoppum. Byrjuðum að fara að mývatni alveg rosalega fallegt þar svo kíktum við á dimmuborgir og mamma lofaði sér að fara þangað aftur og hafa meiri tíma, svo var stemt að hljóðakletta og ásbyrgi og ásbyrgi er án efa 1 fallegasti staður sem mamma hefur séð. Svo var það dettifoss og mamma mun aldrey gleyma þessum tröppum ég krifraði þær eins og ég gerði ekkert annað á daginn rosa dugleg og líka búin að vera alveg æðisleg allan tíman í ferðaleginu :o)
Komum seint á Neskaupstað og gistum í hesthúsinu hjá pabba Svönu (Sér íbúð fyrir hestamenn uppá lofti voða kósý) vorum þar í 1 nótt. Fórum út að borða í hádeginu me Svönu, Jesssicu og Tristani kíktum svo á siglufjörð og sáum húsið hennar ömmu Guðrúnar lang (það er líkan af því hér heima hjá mér) Svo drifum við okkur bara í bæinn það var svo mikil þoka að varla sást út fyrir bílinn svo þegar við erum hjá Eigilstöðum þá er svo mikil rigning og ringdi alla leiðinna í bæinn.
Ég var eins og engill í bílum alla leiðinna , ýmist söng, skoðaði bækur eða litaði á blað. Fanst mér þetta voða gaman.
Takk fyrir mig og mina þar sem við gistum og vonandi sjáumst við sem fyrst aftur.
P.S það koma myndir inn seinna úr ferðalaginu.
Skrifa athugasemd