

Hæ Ég er rosalega dugleg í leikskólanum og kann ég að syngja Litalagið, Apalagið og Afmælissönginn (hluta af honum.). Ég er farinn að tala rosa mikið og reyni að setja setningar saman, eins og ekki taka af mér.Ég er lika byrjuð að hjálpa mömmu að taka skóna mína af, voða dugleg. Ég er að fara í ungbarnasund á eftir með mömmu það verður gaman, mér finnst skemmtilegast að hlaupa á dínunni í átt til mömmu og hoppa út í .
Annars vil ég gera allt sjálf labba hvert sem við förum. Borða allt sjálf ég klæði mig sjálf úr (reyni það ef það tekst ekki þá fær mamma að hjálpa)
Ég bið að heilsa og munið eftir gestabókinni.
Skrifa athugasemd