Elísabet Lilja og Haukur Þór Árnabörn
 

Rútuferð 15 júní.

Ég fór með mömmu minni og Jónínu frænku til selfossar seint um kvöldið þann 14 júní og gisti hjá afa Tóta og ömmu Evu. Vaknaði ég hress og kát kl 06:30 á sunnudeginum og fór framm til mömmu. Kl 9:00 kíkti ég út í kirkjugarð með afa, ömmu, mömmu, Jónínu, Benna og Guðna. Hitti ég þar alla hina í ættini sem ætluðu með. Í kirkjugarðinum kíktum við á leiðið hjá Guðrúnu frænku hún var systir afa Tóta og langömmu. Brunuðum við svo á planið hjá fsu og fórum í rútu. Indriði sagði okkur sitthvað fróðlegt um jarðskjálfta. Það var síðan stutt stopp í Hlíðarenda á Hvolsvelli var síðan matarstopp á Önnu stofu?, á leiðinni til seljavalla hlustuðum við á þjóðsögur sem áttu að hafa gerst á þessu svæði. komum á seljavelli var lagt í göngutúr að gömlulauginni og fékk ég hásæti á öxlunum á afa. Bruðuðum síðan á skóarsafn og hittum Þórð safnvörð svaf ég samt voða mikið af safninu úti í rútu með Jónínu. Skoðuðum við skólan sem afi og nanna frænka gengu í. Var síðan brunað til Eyjarhóla og borðað nesti. Sumir gengu á Eyjarhól en mamma og ég gerðum það ekki mamma étlaði að plata mig til þess að sofna og það var ekki að ganga upp. Fórum svo að Skeiðflatarkirkjugarði að vitja leiða langafa, Þórólfs, Björns. Kíktum svo í Reynisfjöru og síðan á hlaðborð á Höfðabrekku. Síðan var brunað heim og var þetta frekar langur dagur fyrir svona lítinn kropp.

Verið sæl .

MUNA EFTIR GESTABÓKINNI.

19. June 2008 - 20:14



Athugasemdir

Jónína frænka

Smá leiðrétting Guðrún frænka er jarðsett á Selfossi já en amma Ingibjörg er jarðsett í Skeiðflatar kirkjugarði hjá afa, Þórólfi og Bjössa

9. July 2008

Nafn


Texti