

Já það hefur margt gerst hjá mér undanfarið, pabbi átti afmæli og er sund er oft á dagskrá. Síðan fór ég til tannlæknis í dag, í fyrradag sáu mamma og pabbi gráan blett á milli neðri frammtannana og var það litur og fékk mamma eithvað við því. Það er sett á tannburstan minn og mamma á að bursta
. Ég er nefnilega ekki allt of ánægð með það sé verið að tannbursta mig, verð alveg brjáluð sem er nýtt. Fyrst fannst mér það gaman en eftir að tennurnar urðu fleiri er ekki alveg svo gaman
.
En uppáhalds orðið mitt er hæ um þessar mundir og mamma veit ekki hversu oft á dag ég segi það.
Ég er búin að vera veik síðustu daga með hita og gullfoss
og er það mjög leiðinlegt og ég er alveg viss um að mamma sé sammála mér.
Jónína frænka passaði mig í gær og var ég voða þæg og kláraði allt skyrið sem frænka gaf mér og er hún alveg sannfærð á því að ég sé botnlaus!! og líka hissa á því að ég skuli ekki vera með meira hold en þetta og mamma er sammála því.
Mamma skilur ekkert í því að þegar hún er búin að finna einhvern dag í að kíkja í heinsókn þá fæ ég hita en hún er alltaf á leiðinni
.
Sé ykkur seinna dúllurassar
.
Skrifa athugasemd