Fyrstu árin
Fæðingin
Ég fæddist þann 02.08.08 klukkan 23:28.
Fæðingin fór fram á Frauenklinik am Ziegelberg og Gudrun Lippet tók á móti mér.
Viðstödd fæðinguna voru pabbi og Inga amma
Hárið mitt var dökk brúnt á litinn og augun dökk blá
Þegar ég fæddist var ég 4080 grömm eða 16 merkur og 54 cm að lengd.
Mamma var heima þegar hún ákvað að fara á spítalann.
Pabbi keyrði mömmu á spítalann.
Eftir að ég fæddist fór ég upp á herbergi á spítalanum og svaf þar fyrstu nóttina.
Sama dag og ég fæddist þá fæddist Emma vinkona mín og dóttir Anders og Stine en pabbi hennar spilar með pabba mínum.
Skírnin
Skírnin fór fram þann 30. desember heima hjá ömmu Ingu og afa Hreggviði.
Séra Örn Bárður skírði mig og við það tilefni fékk ég nafnið Viktor Bjarki, en það vissu nú allir :)
Skírnarvottar voru amma Inga og amma Tóta
Veislan var haldin í Reyrenginu og lukkaðist mjög vel, kósí og skemmtileg heimaskírn
Afmæli
Fyrsta afmælið mitt var þann 2. ágúst árið 2009.
Veislan var haldin hjá afa og ömmu í Reyrengi.
Í veisluna komu margir gestir og það var svaka mikið stuð.
Jól
Fyrstu jólin voru haldin í Þýskalandi árið 2008.
Ég var hjá heima með mömmu og pabba á aðfangadagskvöld.
Viktor Bjarki fékk fullt fullt af skemmtilegu dóti :)
Ég sofnaði kl. 9:30 á aðfangadagskvöld.
Ég klæddist skyrtu, vesti, flauelisbuxum og var með slaufu á aðfangadagskvöld, þvílíkt krútt :)
Helstu viðburðir fyrstu árin
Fyrsta brosið kom þegar VBE var mánaðargamall
Fyrsta hjalið kom svo 5 vikna
Sat með stuðningi fyrst 4 mánaða
Sat án hjálpar þann 6 mánaða
Stóð fyrst með stuðningi í vikunni sem hann varð 7 mánaða
Settist sjálfur upp 02.03.'09
Stóð svo fyrst hjálparlaust í apríl '09
Byrjaði að skríða 17.02.'09
Fyrsta tönnin kom í ljós 21. október 2008
Hæð og þyngd
Við fæðingu var ég 54 cm og vó 4080 grömm.
Eftir fyrstu skoðun (9 daga gamall) hjá ljósmóðurinni vó ég 4100 grömm
Eins mánaðar var ég 57 cm og vó 4980 grömm.
3ja og hálfs mánaða var ég 63 cm og vó 7050 grömm.
4ra og hálfs mánaða vó ég 7565 grömm.
6 mánaða var ég 67 cm og vó 8155 grömm.
9 og hálfs mánaða vó ég 9400 grömm