

-Viktor Bjarki kom upp í til okkar einn morguninn og vildi fá að kúra aðeins hjá pabba sínum. Var þó eitthvað lengi að koma sér fyrir og var greinilega ekki sáttur. Segir síðan loksins við pabba sinn: "Ohhh pabbi þú ert svo feitur" - janúar '11.
-Mamma: jæja komum út að leika okkur í góða veðrinu.
VBE kúrir upp í rúmi og er að lesa og svarar: "nei mamma - ég er letistrumpur" - mars '11.
-Spáir mikið í því þessa dagana að hann sé að verða stóri bróðir og að hann sér stór strákur, segir síðan allt í einu við mömmu sína: "mamma ég er stór strákur, það geta ekki allir haldið á mér" - apríl '11.
-Mömmunni fannst hann eitthvað svo svakalega fyndinn og sagði við hann þú ert svo mikill snillingur, þá svarar Viktor Bjarki: "nei mamma ég er bara mjög fyndinn" :) - apríl '11
-Á leiðinni heim úr leikskólanum vorum við að spjalla saman og ég var að útskýra fyrir honum að núna væri vor, þá kæmu laufblöðin á tréin og grasið yrði grænt, síðan kæmi sumarið. Viktor Bjarki tilkynnir síðan pabba sínum stoltur þegar hann kemur heim að núna sé sko HOR og að sumarið komi bráðum :) - apríl '11
- Fórum í heimsókn til Þóris, Margrétar og Jasonar og ég var að segja honum að mamma hans Jasonar væri líka ólétt alveg eins og ég. Þá heyrist í mínum "Ohhh ekki allar konur óléttar" - apríl '11
- Pabbinn kemur að sækja Viktor Bjarka á leikskólann. Viktor Bjarki hleypur í fangið á honum og segir: "pabbi ég saknaði þín" - maí '11
- Feðgarnir eru að keyra saman og umferðin gengur eitthvað hægt, Einsinn er eitthvað pirraður á þessum seinagangi og segir jesús minn, Viktor Bjarki spyr þá pabba sinn: "pabbi ertu að tala við jesú?" - júní '11.
- Við erum að kenna honum muninn á hann og hún, Viktor Bjarki er gjarn á að segja að allir séu hann, en þetta er smám saman að koma hjá honum. Eitt sinn sagði hann þó hann við Kristínu, hann áttaði sig þó sjálfur á mistökunum og þá heyrðist í honum: nei hún... ohhh ég ruglast alltaf - júní '11.
- Viktor Bjarki: Mamma, það er gaman að eiga góða vini - júní '11.
- Tekur hálsmenið mitt og setur það á sig og segir við mig: Má ég í þykjustunni vera kona - júlí '11.
- Kristín er að gráta mikið í bílnum, þá heyrist í VBE já ég veit Kristín mín þetta er mjög leiðinlegt.
- Fjölskyldan er að veiða saman á Reynisvatni og við erum að kalla á hann að koma, þá svarar hann já já ég er að koma elskurnar mínar.
- Loksins þegar afmælisdagurinn hans rann upp og ég óska honum til hamingju með afmælið þá segir hann við mig, nei mamma það er ekki fyrr annan ágúst - ágúst '11.
- Tekur í puttana á Kristínu og segir við hana má ég sjá þessa litlu sætu putta - ágúst '11.
- Amma Tóta og VBE eru að spjalla saman um skírnina hennar Kristínar og um sálmana sem voru sungnir þar. Amma spyr hvort honum hafi ekki þótt þetta fallegt og þá svara VBE: Jú amma þetta var ofsalega yndislegt - 14. 08. '11.
- Ég var að segja honum frá langömmu hans henni Kristínu og að hún hefði átt hringana sem ég var með, sagði honum að hún væri dáin og að Kristín væri skírð eftir henni. Þá spyr hann hvernig dó hún, hver var að deyja hana - 03.10.'12
- Viktor Bjarki hnerrar nokkrum sinnum í röð og segir síðan við mig, mamma ég er kvefaður, ég er bara svo slæmur - október '11.
- Viktor Bjarki var veikur og var að reyna að fá mömmu sína til að gefa sér sleikjó: Mamma þegar maður er veikur þá er bara svo gott að fá sleikjó í mallann - nóvember '11.
- Við erum að leika jólasveinana og ég segist vera Stekkjastaur, þá segir VBE: Ok mamma þá er ég Skellihurðum - desember '11.
- Við vorum að spjalla saman, allt í einu segir hann, mamma Bommi er ekkert sérleg ánægður núna... ég bara nú af hverju ekki? VBE: hann fékk bara stelpudót í jólagjöf - desember '11.
- Leirinn var út um allt og orðinn uppþornaður. Ég sagði að hann þyrfti alltaf að ganga frá honum annars yrði hann ónýtur, þá segir hann ohhh mamma ég trúi þessu ekki.... - janúar '12.
- VBE er að kveðja langafa Val, horfir svolítið á hann og segir svo: Af hverju ertu með svona stóran og feitan haus, hann er eitthvað svo skrítinn... - 09.03.'12.
- VBE var eitthvað pirraður og reiður við mömmu sína og lamdi mig óvart. Ég skammaði hann og sagði að þetta ætti maður aldrei að gera ekki við mömmu sína eða aðra. Þá svarar hann: Ég lofa því, bara þegar ég verð 5 ára - 18.04.'12.
VBE: Mamma hvað þýðir myndarlegur?
Ég útskýrði það og spurði hvar hann hefði heyrt orðið?
VBE: Bommi kenndi mér það - 23. 04.'12.
- VBE pissaði óvart í sig og var voðalega leiður yfir því, segir síðan við mig: Ohh mamma það er svo erfitt að kenna börnum að pissa í klósettið - 08.05.'12.
- Aðal sportið hjá Kristínu þessa dagana er að sulla í klósettinu. Einu sinni kom VBE að henni og kallar á mig: Mamma Titín er að sulla í klósettinu, hún er svoo mikið kjánarprik að sulla í klósettinu. Hún er nú meiri kellingin - 11.05.-12.
- VBE tekur poweraid úr ísskápnum og ég segi við hann að hann megi bara taka einn sopa. Þá heyrist í mínum: Enn mamma ég er svo mikið æfingarþyrstur - 02.06.'12