

Kvitta fyrir mig og sendi bestu kveðjur til ykkar allra, sérstakar baráttukveðjur til pabbans, þinn tími er kominn og til lukku með góða innkomu:) í gær. Þið knúsið Viktor frá mér (báða auðvitað).
Knús Björg
ooohhhh maður er bara sætur sko !!!
Stækkar samt allt... alltof hratt ....
Já... prakkarasvipurinn leynir sér ekki...
heheh...
knús í hús...
Berglind og fam...
það er fastur prakkarasvipur á honum.... algjört krútt kveðja Jóna og Raggi
Vá hvað hann er orðinn mikill gaur:)
Ótrúlega gaman að lesa um hvað hann dafnar vel þessi rúsína.
Knús, Anna!
Sakna þín litli snúður.
Sakna frussins og slefsins alveg sérstaklega mikið.
Gaman að þú sért farinn að fá brauð, ekkert smábarn lengur, foreldrar þínir þurfa bara að fara að stappa ofan í þig steikurnar :)
Love u...
Gaman að sjá videóin :-)
Vá hvað þú ert orðinn stór og flottur! Hlakka til að fá að leika við þig... :)
Hahah þetta er snilldarkrakki!
Hlakka til að hitta grallarann aftur! :)
Ekkert smá flottur strákur:) Þeir eru næstum jafn hárprúðir nafnarnir! Gott að sjá að hann dafnar vel og það er greinilega mikill kraftur í honum. Saknaðarkveðjur allir í V8.
Það er ekkert smá sem hann stækkar og er flottur og kröftugur eða þá brosið, það er líklega eins gott að fylgjast með guttanum, hlakka til að hitta ykkur.Ástarkveðjur langamma á Sléttó
Krúttmundur þú!!
Hvenær er von á ykkur á klakann næst? Maður þarf að skipuleggja annan NB-barna-hitting.. =)
Kvitta fyrir mig og er að vonast eftir myndum af þeim nöfnum, vona að þú hafir náð a.m.k. einni fyrir frænku:) áður en sá stóri var rokinn aftur.
Bestu kveðjur til ykkar, frá öllum í V8
Geggjuð forsíðumyndin af þá Herra síkátur.
Vorum að fletta í gegn um myndirnar og Elín hafði á orði að henni þætti frændi sinn vel greiddur hehe,ég var nú að reyna að segja henni að hann væri nú ekki með neitt hár enn hún hélt það nú.
Sendum kveðjur í bæinn.
HRE og EBG
Sæll fallegi frændi minn. Það er alltaf jafngaman að skoða myndirnar af þér og sjá hvað þú ert orðinn stór og duglegur drengur. Kær kveðja til mömmu þinnar og pabba.
Þú ert svo flottur og duglegur.
Kveðja úr Hafnarfirði.
Það er svooo tómlegt hérna hjá okkur eftir að þið fóruð og er bara erfiðara að bíða eftir krílinu okkar eftir að hafa haft Viktor snilling hérna. Vonandi gleymir Einar fljótt þessum 700 km og kemur aftur...á nú samt ekki von á því hehe
Saknaðarknús á ykkur öll
Elsku Viktor Bjarki, það ætti að vera bannað með lögum að þú svona sætur og fallegur eigir heima svona langt í burtu frá okkur. Knúsum þig og kyssum í huganum elsku karlinn okkar. Kveðja, amma Tóta og afi Geiri
Sætur með eplakinnarnar þínar :) Ég er ekki frá því að ég hafi séð svoldin svip með ykkur frændunum
luv Drífa og Kristján
Vá , sá er sætur og duglegur.
kv.amó
Hæhæ bara kvitta fyrir innlitið...Viktor Bjarki er náttúrlega að slá öll met í fegurð barnið...hrikalega sætur :) Haltu áfram að vera svona dugleg að setja inn myndir, ánægð með þig :)
kv Tinna og Elín
Alltaf jafn gaman þegar maður kíkir á síðuna og það eru komnar nýjar myndir. Frábært að sjá hvað drengurinn dafnar vel og frétti áðan að matur stæði ekki í honum:) dulegur og sætur strákur.
Saknaðarkveðjur frá okkur öllum í V8.
Rosalega ertu orðinn stór elsku strákurinn okkar, söknum ykkar rosalega!
Kveðjur úr Reyrengi :)
Eru ekki til einhverjar nýjar og skemmtilegar myndir af fjölskyldunni? :)
Sendi þer fallegi drengur mömmu og pabba kærar kveðjur úr sveitinni .Þú ert duglegur að stækka og fallegt er brosið þitt.
Hahahaha hvað þessi drengur er fyndinn - skrilljón mismunandi svipir og allir jafn krúttlegir. Þetta er augljóslega snillingur! kossar og knús - Lilja Rut
Ekkert smá flottur kúreki !!!! hahahha... bara fyndinn !!!
Biðjum að heilsa gamla settinu ;)
kv. Berglind, Hildur og Helena Dís
Hæ fallega fjölskylda... alltaf gaman að kíkja á ykkur er að reyna að taka mig á í að skrifa í gestabókina :) ég vildi óska að ég væri líka að koma í heimsókn eins og íris það var svo ljúft seinast ... kossar og knús ása
Alltaf gaman að líta inn og skoða þennan flotta prins...kveðja Þórey
Hvað er hægt að segja....þetta er yndislegt barn....just love him