

Viktor Emil 4ra ára:
Viktor á klósettinu.
Mamma: Voðaleg kúkalykt er þetta Viktor.
Viktor: Ég finn enga kúkalykt, ég er nefnilega heyrnarlaus!
Viktor Emil 5 ára:
Viktor:,,Mamma kom pabbi á undan mér úr maganum."
Mamma: ,,Já........ heldur þú að hann hafi verið í maganum mínum.?"
Viktor: ,,Já"
Tók síðan góðan tíma í að útskýra að pabbi hafi verið í maganum á Hrafnhildi ömmu, Marinó og Helena líka og svo að ég hafi verið í maganum á Önnu ömmu og systkini mín líka o.s.frv. Þá spyr hann eftir þetta samtal:
Viktor: ,,Hvenær verð ég aftur svona lítill (eins og Ingólfur Orri)?"
Mamma: ,,Þú verður ekkert aftur svona lítill."
Viktor: ,,Já en hvenær verð ég aftur svona lítill?"
Mamma: ,,Þú verður bara stærri og stærri. Næst verður þú sex ára og svo sjö o.s.frv.
Viktor: ,,Verð ég þá stærri alveg þangað til ég spring?"
Mamma: ,,Nei þú verður stærri og verður þá eins og pabbi og svo eins og afi og verður svo gamall maður.
Viktor: ,,Pabbi hann er ekki með stóra bumbu en afi er með svolítið stóra bumbu af því að hann borðar svo mikið. Þannig að maður fær stóra bumbu þegar maður verður gamall maður.
Mamma: ,,Nei ekkert endilega. Hörður (afi) er ekki með stóra bumbu."
Viktor: ,,Þá þarf maður bara að borða mikið til að fá stóra bumbu." ,,Afi borðar líka stundum svolítið mikið."