Sófus Oddur og Kári Kristinn
 

Fyrstu árin

Fæðingin

Ég fæddist þann 19. janúar 2009 klukkan 10:22.
Fæðingin fór fram á fæðingardeild LSH og Sigrún Hjartardóttir, læknir tók á móti mér.
Viðstödd fæðinguna voru pabbi og fullt af læknafólki.
Hárlitur minn var brúnn og augun voru gráblá
Þegar ég fæddist var ég 4250 grömm eða 17 merkur og 54 cm að lengd.
Fyrstu hríðir komu um 2.00 aðfarar nótt 18. janúar og tók fæðingin um 30 klst.
Mamma var stödd heima þegar hún ákvað að fara á spítalann.
Pabbi keyrði mömmu á spítalann.
Eftir að ég fæddist fór ég vökudeildina og svaf þar fyrstu nóttina.
Sama dag og ég fæddist þá átti Jón Ísak bróðir hans afa afmæli. Alþingi kom líka saman í fyrsta sinn eftir jólafrí og það urðu mikil mótmæli á Austurvelli. Kannski fæðingardagurinn minn komist í sögub

Skírnin

Skírnin fór fram þann 8. mars í Hjallakirkju.
Séra Íris Kristjánsdóttir skírði mig og við það tilefni fékk ég nafnið Sófus Oddur eftir honum afa mínum sem er uppi hjá Guði núna.
Skírnarvottar voru Heiða Björk Guðjónsdóttir og Selma Rut Sófusdóttir
Á skírnardaginn var fallegt veður.
Veislan var haldin heima og lukkaðist mjög vel

Afmæli

Fyrsta afmælið mitt var þann 19. janúar árið 2010.
Veislan var haldin 23. janúar 2010.
Kakan mín var tölustafurinn 1 skorinn út í skúffuköku og með 1 kerti.
Ég bauð ættingjum mínum og nokkrum vinum í afmælið.
Aðal afmælisgjöfin var Dúabíll sem ég fékk frá mömmu og pabba.
Sama dag og fyrsta afmælisdaginn minn þá hljóp ég í marga hringi í stofunni og sagði fyrsta orðið mitt, pabbi! Evrópumótið í handbolta hófst líka á afmælisdaginn minn.
Ég klæddist brúnum flauelsbuxum og prjónavesti í veislunni.
Á afmælisdaginn bauð ég langaömmu og langafa í Gullsmára og Heiðu og Ingvari í Lagsania. Langamma var því miður veik en við skemmtum okkur samt mjög vel saman. Ég var líka í svo ótrúlega góðu skapi!

Jól

Fyrstu jólin voru þann 24. desember árið 2009.
Ég var hjá ömmu og afa á Ísafirði á aðfangadagskvöld.
Ég var ekkert hræddur við jólasveininn.
Ég sofnaði 21.30 á aðfangadagskvöld.
Veðrið á fyrstu jólunum mínum var ekki sérlega gott. Það snjóaði mikið og öllum messum var aflýst.
Ég klæddist brúnum flauelsbuxum og prjónavesti á aðfangadagskvöld.

Helstu viðburðir fyrstu árin

Pabbi og mamma komust að því að ég væri á leiðinni laugardaginn 10. maí
Þann 4. júní fengu þau síðan staðfestingu á tilveru minni :)
Mamma fann fyrstu hreyfingarnar 4. september
Pabbi fékk loksins að finna mig sparka mánuði síðar, eða 4. október.
Fór í fyrsta skiptið í pössun 5. febrúar. Þá passaði langamma og langafi í Gullsmára mig í klukkutíma á meðan mamma og pabbi fóru í Smáralindina.
Ég fór í fyrsta skiptið út í vagni 8. febrúar, þá var ég tæplega 3 vikna gamall.
Fyrsta brosið kom í kringum 4. mars
Byrjaði að hjala 5 vikna gamall eða í lok febrúar.
Fór í fyrsta skipti í veislu 8. febrúar en þá var verið að halda upp á afmælið hjá Gumma langafa sem á afmæli 9. febrúar.
Fór í fyrsta skipti í búð sunnudaginn 15. febrúar. Þá fór ég í IKEA með mömmu og pabba.
Velti mér á magann og svo aftur af magnum á bakið 17. apríl 2009.
Byrjaði í ungbarnasundi hjá Snorra 8. maí 2009
Fór í fyrsta skiptið í strætó 18. maí og svaf allann tímann.
Sat án hjálpar þann 25. júní 2009
Stóð fyrst með stuðningi þann 20. ágúst 2009
Stóð svo fyrst hjálparlaust þann 16. nóvember 2009
Fyrsta orðið var mamma
Fyrsta tönnin kom í ljós 31. ágúst 2009
Fyrstu sporin voru tekin 14. janúar 2010
Byrjaði að klappa í kringum mánaðarmótin ágúst/september 2009
Fór að gefa mömmu "five" í byrjun nóvember 2009
Byrjaði að benda á hluti í kringum páskana 2010 (mars/apríl)
Fór að rétta fram diskinn minn til að byðja um meiri mat í maí 2010
Fékk hlaupabóluna í byrjun mars 2011

Hæð og þyngd

Við fæðingu var ég 54 cm og vó 4250 grömm.
6 vikna var ég 60 cm og vó 4785 grömm.
9 vikna var ég 61,5 cm og vó 5170 grömm.
3ja mánaða var ég 62,5 cm og vó 5570 grömm.
4ra mánaða var ég 66 cm og vó 6340 grömm.
5 mánaða var ég 66,5 cm og vó 6960 grömm.
6 mánaða var ég 68,8 cm og vó 7420 grömm.
8 mánaða var ég 69,5 cm og vó 8580 grömm.
10 mánaða var ég 71,5 cm og vó 8810 grömm.
12 mánaða var ég 74 cm og vó 9480 grömm.
2ja ára var ég cm og vó 13,4 grömm.

Mataræði

Ég var á brjósti frekar lengi og hætti á brjósti þann 1. júlí.
Daginn sem ég hætti á brjósti var ég 18 mánaða og vikna.
Uppáhalds maturinn minn fyrst um sinn var Lagsania.

Fyrstu orðin

Fyrsta setningin sem ég sagði var Mamma best og mamma mín var auðvitað voða ánægð með það :)

Fæðing 2

Ég fæddist þann 31. maí 2013 klukkan 05:45
Fæðingin fór fram á Hreiðrinu á LSH og XXX ljósmóðir tók á móti mér.
Viðstödd fæðinguna voru pabbi og tvær ljósmæður.
Hárlitur minn var svartur og augun voru gráblá.
Þegar ég fæddist var ég 4105 grömm eða 16,5 merkur og 53 cm að lengd.
Það vildi svo skemmtilega til að ég fæddist á afmælisdaginn hennar ömmu Ólafar á Ísafirði. Hún var hæst ánægð með þessa afmælisgjöf :)

Hæð og þyngd 2

Við fæðingu vóg ég 4105 gr og mældist 53 cm.