

Jæja þá er ég bara orðinn 7 mánaða strákur. Ég er farinn að vera ofboðslega duglegur að borða og þá eru bananar og eplamauk í miklu uppáhaldi hjá mér :o) Ég er líka farin á smá ferð og er duglegur annað hvort að ýta mér áfram á rassinum eða rúlla mér um gólfið til að komast leiðar minnar. Í síðustu viku tókst mér líka að standa upp alveg sjálfur þegar ég sat ofan í baðfötunni minni!!! Eftir það hef ég reynt soldið að hífa mig upp þegar ég er nálægt einhverjum húsgögnum en þó ekki tekist það enþá að standa upp aftur!!
Á laugardaginn fór ég ásamt mömmu, pabba og Jóni Ásgeiri frænda mínum á menningarnótt. Það var bara gaman en ég svaf samt reyndar mest allann tíman í kerrunni minni :o) Núna fer að líða að því að hún mamma mín fari aftur að vinna og þá verð ég nú bara hérna heima hjá honum pabba mínum. Það á án efa eftir að vera mikið stuð hér hjá okkur feðgunum! Segi þetta gott í bili og munið að kvitta í gestabókina!
Jæja það er nú orðið nokkuð langt síðan mamma settist niður og skrifaði færslu hér inn. Nú er ég orðinn 6 mánaða gamall og mömmu og pabba finnst ég bara stækka og þroskast með hverjum deginum sem líður! Ég er rosa duglegur, byrjaður að sitja alveg sjálfur og borða graut og banana með bestu lyst :o) Í sumar hef ég líka verið duglegur að ferðast og er m.a. búinn að fara vestur til ömmu og afa og svo norður í Mývatnssveit þar sem Heiða vinkona mömmu býr. Ég er líka búinn að vera í ungbarnasundi hjá honum Snorra síðan í maí og elska að fara í sund :o) Ætla að halda áfram í sundinu að minnsta kosti út ágúst!
Læt þetta gott heita í bili, en lofa að láta ekki líða svona langan tíma aftur á milli skrifta....
Kveðja
Sófus Oddur
Jæja þá er ég loksins búinn að fá nafn og heiti Sófus Oddur eftir honum afa mínum. Skírnin gekk bara voða vel og ég var mjög stilltur í kirkjunni. Gaf bara frá mér smá hljóð þegar presturinn skellti þessu kalda vatni á kollinn á mér. Eftir skírnina var ég orðinn voða svangar og varð því mjög glaður þegar mamma gaf mér brjóstið þegar við komum heim. Eftir að hafa fengið mér vænan sopa sofnaði ég í fanginu á langömmu Maggý og svaf síðan af mér nánast alla veisluna. Gummi Andrésar frændi minn var síðan svo góður að taka nokkrar myndir af mér og mömmu og pabba sem við hlökkum mikið til að skoða betur. Við fjölskyldan viljum þakka öllum sem glöddust með okkur á þessum degi kærlega fyrir okkur og einnig þeim sem sendu okkur góðar kveðjur :o)
Kær kveðja
Sófus Oddur
Jæja mamma skellti loksins inn fleiri nýjum myndum eftir að hafa fengið kvartanir yfir því að hún væri ekki nógu dugleg að bæta við í albúmið. Annars hefur allt gengið voða vel. Ég dafna bara vel og hef það bara mjög gott :o) Mömmu og pabba finnst ég stækka með hverjum deginum og segja að ég sé eiginlega ekker lítill lengur! Er búin að fara í búðarferð og auðvitað dróg mamma mig og pabba með í IKEA :o) Það styttist líka í það að ég fái mitt eigið nafn og ég hlakka mikið til!
Jæja þá er ég orðinn 3. vikna gamall kútur. Mömmu og pabba finnst ég stækka ótrúlega hratt og breytast mikið með hverjum degi sem líður. Fyrstu vikuna opnaði ég augun sára sjaldan og svaf mest allann daginn. Segja má að ég hafi ekki opnað augun almennilega fyrr en afi minn kom í heimsókn. Þegar hann tók mig í fangið starði ég bara á hann stórum augum enda erum við orðnir voða góðir vinir núna. Fyrstu tvær vikurnar var ég bara hérna heim hjá mömmu og pabba en 5. febrúar þegar ég ver 2. vikna og 3. daga gamall fór ég í heimsókn til langömmu og langafa og þau pössuðu mig líka á meðan mamma og pabbi skruppu í Smáralindina. Ég var auðvitað voða stilltur á meðan, svaf bara værum blundi í stólnum mínum. Síðast liðinn sunnudag (8. febrúar) fór ég síðan í mína fyrstu veislu en þá var verið að halda upp á afmælið hjá Gumma langafa. Þegar við komum upp í Gullsmára var ég steinsofandi og mamma setti mig því inn á rúmið hjá langömmu og langafa svo ég gæti sofið lengur. Mér líkaði hinsvegar ekki að vera skilinn einn eftir inn í herbergi á meðan allt fjörið væri í gangi fram og gaf fljótlega frá mér hávært öskur. Það var nú líka voða gaman að hitta alla ættingjanna og láta halda aðeins á sér :o)
Jæja þá er aðeins einn dagur í settan dag og ekki laust við að svolítill spenningur sé farinn að láta á sér kræla bæði hjá foreldrunum og öðrum ættingjum. Litli grísinn hefur bara verið voða stilltur síðustu daga en í gærkvöldið héldu mamma og pabbi að hann ætlaði hreinlega að sparka sér leið út úr maganum á mömmu, svo kröftug voru spörkin! Mamman er farin að fá einhverja smá verki en þeir hafa enn ekki verið mjög miklir né reglulegir svo hún verður bara að bíða þolinmóð.
Fríða frænka var einmitt búin að óska eftir því að grísinn kæmi í heiminn á afmælisdeginum hennar og það er bara aldrei að vita nema það rætist hjá henni. (hún á afmæli núna á sunnudaginn, 18. janúar).
Segjum þetta bara gott í bili og lofum að setja inn færslu hérna þegar eitthvað fer að gerast :)
Jæja tíminn líður svo sannarlega hratt og alltaf styttist í komu litla grísins. Mamman er aðeins farin að þreytast en annars hefur allt gengið ljómandi vel. Hefur farið tvisvar í viku í meðgöngusund upp á Reykjalundi og líkar það bara ofboðslega vel. Litli grísinn hefur líka verið duglegur að hreyfa sig og það er spurning um það hvort "góðar hreyfingar" eins og ljósmóðirin skrifar alltaf í skýrsluna okkar séu endilega rétta orðið alltaf... en það er samt auðvitað alltaf voða gott að fá aðeins að finna fyrir þessum litla grís þarna inni. Ætli hann sé ekki bara að minna á sig? Litlu nemendur mömmunnar eru orðnir voða spenntir og spyrja sífellt að því hvenær barnið ætli að fara að koma úr maganum... Einhver sagðist bara ekki getað trúað því að maginn ætti eftir að stækka enn meira!!!
Ætli við segjum þetta ekki gott í bili. Búið að bæta tveimur bumbumyndum í myndasafnið :)