

Jæja þá er ég loksins búinn að fá nafn og heiti Sófus Oddur eftir honum afa mínum. Skírnin gekk bara voða vel og ég var mjög stilltur í kirkjunni. Gaf bara frá mér smá hljóð þegar presturinn skellti þessu kalda vatni á kollinn á mér. Eftir skírnina var ég orðinn voða svangar og varð því mjög glaður þegar mamma gaf mér brjóstið þegar við komum heim. Eftir að hafa fengið mér vænan sopa sofnaði ég í fanginu á langömmu Maggý og svaf síðan af mér nánast alla veisluna. Gummi Andrésar frændi minn var síðan svo góður að taka nokkrar myndir af mér og mömmu og pabba sem við hlökkum mikið til að skoða betur. Við fjölskyldan viljum þakka öllum sem glöddust með okkur á þessum degi kærlega fyrir okkur og einnig þeim sem sendu okkur góðar kveðjur :o)
Kær kveðja
Sófus Oddur
Til hamingju međ fallega nafniđ ţitt Sófus Oddur :) Fer ţér alveg rosalega vel :)
Hlakka til ađ sjá ţig og mömmu ţína á miđvikudaginn heima hjá Rakel og Inger í Mosó ;)
Kveđja, Sólveig og síđasta bumbukríliđ í hópnum ;) hehe