

Jæja þá er ég orðinn 3. vikna gamall kútur. Mömmu og pabba finnst ég stækka ótrúlega hratt og breytast mikið með hverjum degi sem líður. Fyrstu vikuna opnaði ég augun sára sjaldan og svaf mest allann daginn. Segja má að ég hafi ekki opnað augun almennilega fyrr en afi minn kom í heimsókn. Þegar hann tók mig í fangið starði ég bara á hann stórum augum enda erum við orðnir voða góðir vinir núna. Fyrstu tvær vikurnar var ég bara hérna heim hjá mömmu og pabba en 5. febrúar þegar ég ver 2. vikna og 3. daga gamall fór ég í heimsókn til langömmu og langafa og þau pössuðu mig líka á meðan mamma og pabbi skruppu í Smáralindina. Ég var auðvitað voða stilltur á meðan, svaf bara værum blundi í stólnum mínum. Síðast liðinn sunnudag (8. febrúar) fór ég síðan í mína fyrstu veislu en þá var verið að halda upp á afmælið hjá Gumma langafa. Þegar við komum upp í Gullsmára var ég steinsofandi og mamma setti mig því inn á rúmið hjá langömmu og langafa svo ég gæti sofið lengur. Mér líkaði hinsvegar ekki að vera skilinn einn eftir inn í herbergi á meðan allt fjörið væri í gangi fram og gaf fljótlega frá mér hávært öskur. Það var nú líka voða gaman að hitta alla ættingjanna og láta halda aðeins á sér :o)
Skrifa athugasemd