Smá fréttaskot
Jæja, tíminn er alveg ótrúlega fljótur að líða og enn styttist í að litli grísinn komi í heiminn. Nú eru aðeins um 3 vikur í settan dag! Mamman og pabbin eru búin að hafa það mjög gott yfir hátíðirnar fyrir vestan en ætla að fljúga aftur suður 30 des og vera þar yfir áramótin. Síðan eru þau bara að fara að flytja í Kópavoginn strax eftir áramót. (Það segja víst allir að það sé svo gott að búa í Kópavogi...) Búið er að bæta inn einhverjum myndum í albúmin og þar á meðal einni bumbumynd. Mömmunni fannst hún ekkert vera orðin svo stór fyrr en hún sá myndirnar... Annars óskum við ykkur öllum gleðilegra hátíðar og þökkum fyrir góðar og hlýjar kveðjur :)
28. December 2008 - 20:41
Athugasemdir