

Jæja tíminn líður svo sannarlega hratt og alltaf styttist í komu litla grísins. Mamman er aðeins farin að þreytast en annars hefur allt gengið ljómandi vel. Hefur farið tvisvar í viku í meðgöngusund upp á Reykjalundi og líkar það bara ofboðslega vel. Litli grísinn hefur líka verið duglegur að hreyfa sig og það er spurning um það hvort "góðar hreyfingar" eins og ljósmóðirin skrifar alltaf í skýrsluna okkar séu endilega rétta orðið alltaf... en það er samt auðvitað alltaf voða gott að fá aðeins að finna fyrir þessum litla grís þarna inni. Ætli hann sé ekki bara að minna á sig? Litlu nemendur mömmunnar eru orðnir voða spenntir og spyrja sífellt að því hvenær barnið ætli að fara að koma úr maganum... Einhver sagðist bara ekki getað trúað því að maginn ætti eftir að stækka enn meira!!!
Ætli við segjum þetta ekki gott í bili. Búið að bæta tveimur bumbumyndum í myndasafnið :)
Skrifa athugasemd