Jóhanna Hilda, Sigríður Lilja & Katrín Birna Sigurjónsdætur
 

Heilsufarsskrá Katrínar Birnu :)

Við fæðingu 11. ágúst 2016 = 2.875 gr., 49 cm og höfuðmál 34 cm.

Komum heim af fæðingadeildinni daginn eftir og við þurftum að gefa henni Nan1 ábót um kvöldið ca. 15 ml. á meðan mjólkin í brjóstunum var að koma því hún var svo létt og gáfum henni aftur á 3ja degi 15. ml. fyrir nóttina svo kom mjólkin í brjóstin á fullum krafti og lilla drekkur vel og þyngist vel Kiss

Fékk 10 af 10 í 5 daga skoðun enda fullkomin Kiss 

Fengum yndislega heimaljósmóður sem hugsaði svo vel um okkur Halldóra Kristín!

2ja vikna 24.08.'16 = 3.080 gr. og höfuðmál 35 cm. 

Byrjaði að fá D - vítamín dropa 29. ágúst þá rúmlega 2ja vikna fékk 2 dropa fyrstu 2 dagana varð frekar pirruð á öðrum degi þannig við minnkuðum niður í 1 dropa næstu tvo daga en ennþá pirringur þannig við gáfum henni ekki á 4 degi, ætlum að prufa annanhvern dagUndecided

3ja vikna 01.09.'16 = 3.300 gr. og höfuðmál 35 cm.

4ra vikna 08.09.'16 = 3.400 gr. og höfuðmál 36 cm.

5 vikna 15.09.'16 = 3.750 gr. 

8 vikna 03.10.'16 = 4.080 gr., 54,5 cm og höfuðmál 37,5 cm.

10 vikna 17.10.'16 = 4.350 gr., 55 cm og höfuðmál 38 cm.

3ja mánaða 15.11.'16 = 4.750 gr., 58,5 cm og höfuðmál 39,3 cm. fékk sprautu gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Hib og mænusótt í einni sprautu og Pneumókokkum í annarri sprautu - fór að gráta við stungurnar en var svo bara ágætlega hress eftir þær Kiss

Í kringum 3ja mánaða fór hún að taka eftir dótinu sínu og reyndi að ná því og naga það en nær 4ra mánaða var hún farin að grípa í það og velta sér hálfan leiðina á magann af bakinu Cool

4ra mánaða 15.12.'16 = 5.080 gr., 61 cm og höfuðmál 40,3 cm. 

Lilla dúlla var skírð þann 1. janúar og fékk nafnið Katrín Birna <3 Skírnin og veislan var haldin hjá ömmu Jóhönnu og afa Gísla í Frostaþingi 6 með fjölskyldunni <3 

Hættum að gefa D-vítamín dropana og byrjuðum aftur í janúar gengur betur núna Sealed Fær svo að borða í fyrsta skipti þann 6. janúar byrjum á 3 skeiðum í hádeginu af hirsigrautKiss

5 mánaða 13.01.'17 = 5.380 gr., 62,5 cm og höfuðmál 41,3 cm. fékk sömu sprautur og í 3ja mánaða skoðun, varð aðeins slöpp og smá hitavella um kvöldið en annars hress Kiss

6 mánaða 15.02.'17 = 6.150 gr., 64 cm og höfuðmál 42,3 cm. fékk sprautu gegn Meningókokkum C, fór að gráta við stunguna en annars hress Kiss

8 mánaða 21.04.'17 = 7.050 gr., 67,5 cm og höfuðmál 44,5 cm. fékk sprautu gegn Meningókokkum C, fór aðeins að gráta við stunguna eins og síðast og varð smá slöpp en annars bara hress Kiss

Þann 16. júní fékk mamma ælupest og missti af 17. júní með stelpunum sínum og pabba, KB fór til ömmu og afa í Safamýri og pabbi fór með JH og SL á skemmtun í Kópavogi - mamma átti svo afmæli 18. júní og pabbi bauð henni út að borða og í bíó amma Ína og afi Agnar pössuðu á meðan, um kvöldið fékk pabbi svo ælupest! 19. júní um kl. 19 var KB komin með 39 stiga hita við fengum lækni heim sem sagði þetta vera vírus eða ælupest og því ekkert hægt að gera, 20. júní fékk SL ælupest en var fljót að hrista hana af sér og fór í skólann daginn eftir Kiss Katrín Birna varð svo veikari og slappari og fór mest upp í 39,5 stiga hita þann 22. júní var KB orðin hitalaus en komin með útbrot, 23. júní var hún alveg útsteypt í útbrotum á maganum niður lærin upp hálsinn og alveg þakin í framan og smá á höfðinu - þá var hún greind með mislingabróður og líðanin var mjög slæm hékk í fangi allan daginn og ómöguleg á næturnar, þann 25. júní náðu útbrotin hámarki en 26. júní var þetta búið og útbrotin nánast öll farin og litlu ástinni farið að líða betur þá voru allir glaðir Kiss

10 mánaða 27.06.'17 = 7.350 gr., 69,5 cm og höfuðmál 45 cm. læknisskoðun Haraldur læknir kíkti á hana og fannst ekki þurfa að skoða hana sérstaklega sá hvað hún er flott og fullkomin Kiss

31.05.'17 - þann 15. maí fór Katrín Birna til Geirs á Domus medica því hún var búin að vera með mikið slím í nefinu og frekar pirruð þá var hún með eyrnabólgu í báðum eyrum og var sett á sýklalyf (Amoxiclav) í 11 daga, 7,5 ml. 2x á dag! Kiss Sólveig kíkti svo í eyrun á henni þegar JH fór til hennar þann 29. maí og þá voru eyrun komin í lag Laughing

05.07.'17 - byrjaði að sýna hvað hún er stór í kringum 7 mánaða og að dansa við skemmtileg lög Sealed í kringum 9 mánaða rúmlega byrjaði hún að segja hvað kisa segir og í kringum 8 mánaða fór hún að vinka hún þekkir alveg nafnið sitt og skilur flest allt sem við segjum við hana Kiss

12. mánaða 15.08.'17 = 8.080 gr., 72. cm og höfuðmál 47 cm. kom mjög vel út úr öllum skoðunum Kiss

Katrín Birna byrjaði í ungbarnaleikskólanum Sólgarði þann 15. ágúst aðlögunin gekk rosalega vel og hún var ekkert að stressa sig á þessu fannst bara gaman að hitta krakkana en hún er búin að mæta mjög slitrótt þar sem hún er búin að vera mikið lasin og fær í sig allar pestar Cry

01.09.'17 - fékk lyf vegna eyrnabólgu Embarassed

12.09.'17 - ælupest og niðurgangur gekk þannig í 5 daga ásamt því að mamma og pabbi fengu ælupest í 2 daga Frown

20.09.'17 - fékk lyf vegna eyrnabólgu aftur! Friðrik vildi athuga hvort hún losni við vökvann eða hvort hún ætti að fá rör! 

22.09.'17 - 39 stiga hiti í 6 daga, Jóhanna Hilda fékk 39 stiga hita þann 26. september í 2 daga og fékk zitromax í tvo daga til að ná kvefinu úr sér Undecided

06.10.'17 - 18 mánaða sprauta þar sem við vorum að fara til Orlando 23. október svo hún fengi mótefni við mislingum ofl. 

08.10.'17 - 38 stiga hiti í 7 daga, fékk rooosalega mikil og ljót útbrot fórum tvisvar á barnaspítalann fyrst þann 10. október að kvöldi til svo daginn eftir 11. október þegar mamma átti að fara í lokapróf en þurfti að sleppa því þar sem hún var svo veik og mikil vanlíðan við tóku rannsóknir blóðprufa ofl. þurftum að vera allan daginn á spítalanum með saltvatn í æð. Fórum svo heim og komum í eftirlit nokkrum dögum seinna. Læknarnir höfðu ekki séð svona svæsið tilfelli af hand, fóta- og munn sjúkdómnum en þetta stafaði líklega af sprautunni líka þá hefur hún verið komin með vírusinn í sig. Þann 17. október fór hún aftur í blóðprufu til að fylgjast með stöðunni og allt kom vel út þar, þurftum samt að fresta rörum sem áttu að vera 19. október þar sem ný útbrot komu í ljós og læknirinn vildi ekki taka neina sénsa. 

23.10.'17 - rör kl. 09:00 gert af Ingu í Glæsibæ þar sem Friðrik var ekki á þessum degi, fórum svo til Orlando sama dag, rörin gengu vel KB var frekar reið þegar hún vaknaði en flugið gekk mjög vel og KB glöð og kát með allt saman Kiss

28.10.'17 - komin með 38 stiga hita, fórum svo á læknavaktina í Orlando sem heitir Night little pediatric mamma var rosalega stressuð yfir mér og ég var aftur komin með smá vírusútbrot fengum frábæra þjónustu þar en kostaði rosalega mikið eða um 50 þúsund krónur og lyfið 18 þúsund krónur sirka, en það sem kom út úr þessu var enn einn vírusinn eins og læknirinn sagði og hún vildi gefa henni meiri eyrnadropa. Við töluðum svo við lækninn okkar heima sem lét rörin í hana og hún vildi setja hana á sýklalyf líka til öryggis í 7 daga! 

24.11.'17 - Katrín Birna búin að vera með mikinn hósta blautan og endaði þannig að hún ældi tvisvar út af slími, fórum til læknis 25. nóvember hann sagði þetta vera slím í nefholunum sem læki niður og orsakaði hósta, setti hana ekki á lyf. Á sunnudeginum 26. nóvember komu í ljós mikil útbrot á handleggjum og fótleggjum sem mamma hélt að væri hlaupabóla en kom í ljós að var ekki hlaupabóla, útbrotin fóru minnkandi á þriðja degi sem betur fer Kiss

19. 01.'18 - Katrín Birna búin að vera með hósta og slím síðan 11. janúar, fékk smá ælupest í sólahring þann 13. janúar en hóstinn og slímið er ennþá rúmlega viku seinna en búið að minnka þannig hún fór í fyrsta skiptið í leikskólann eftir viku heima Kiss