

Smá forsaga stelpurnar búnar að vera í sumarfríi frá miðjum júlí og áttu að byrja í skólanum 11. ágúst þá ætlaði ég að klára að skúra heima og við ætluðum að setja upp rúmið ofl. sem átti eftir að gera, ég ætlaði ekkert að eiga fyrr en amk í þessari viku þá 15. - 19. ágúst (var sett 15. ágúst) helst bara þarna 19. ágúst svo ég fengi smá að slappa af áður en barnið kæmi og þær í leikskólanum, fimmtudaginn 11. ágúst þegar ég er komin 39 vikur og 3 daga þá vöknum við kl. 7:30 stelpurnar koma upp í að kúra eins og venjulega, þá er ég með skrítna tilfinningu eins og ég væri komin með þvagfærasýkingu engir hríðarverkir eða samdrættir, þannig ég fer á klósettið að pissa og sé þá blóð í nærbuxunum ég varð mjög hrædd því ég vissi ekki hvenær yfir nóttina hafði byrjað að blæða eða hvenær ég hafði fundið fyrir hreyfingum síðast þannig ég hringdi niður á deild og mér sagt að koma ég spurði hvort ég ætti að keyra sjálf og hún sagði bara jájá, Sjonni ætlaði þá að fara með stelpurnar í skólann og ég ætlaði bara að fara upp á deild og hann myndi svo koma, nema þegar ég er að klæða mig í finn ég gusu sem var þá ennþá meira blóð, þá leist Sjonna ekki á blikuna (hann hélt fyrst að þetta væri bara eitthvað smotterí) og við ákváðum að henda stelpunum til tengdamömmu og brunuðum á LSH þar fór ég á meðgöngudeildina þar sem ég fann ennþá fleiri gusur og ekki viss hvort það væri legvatn eða blóð, ljósurnar voru fyrst voða rólegar yfir þessu og héldu að ég væri bara að byrja í fæðingu og ein kom með mér inná klósett til að athuga hvort þetta væri blóð eða legvatn, þegar við kíktum þá var þetta bara blóð þá var ég send beint upp og teymi sem tók á móti okkur, mamma var í Boston (hún ætlaði að vera með í fæðingunni eins og í fyrri fæðingum) þannig ég hringdi í systur mína sem hringdi beint í vinkonu sína sem er sérfræðingur á fæðingardeildinni og var akkurat á vakt, hún var einmitt á leiðinni að kíkja á mig þegar hún hringdi og allt sett í gang, þær voru fyrst hræddar um fylgjulos en kom í ljós að svo var ekki sem betur fer en ekki alveg vitað hvaðan blæðingin stafaði og þarna var kl. 9 og ég ekki með neina verki ennþá en stanslaust lak þá var byrjað að leka legvatn og blóð.
Ég mátti ekkert borða né drekka ef ég skyldi vera sett í svæfingu, hún athugaði svo útvíkkun sem var komin upp í 4 rúmlega 9 ég var þá sett inn á fæðingarherbergi og fylgst vel með mér, ég mátti svo loksins um kl. 10 fara á boltann sem mér finnst best í hríðunum en þarna var ég samt nánast verkjarlaus en legvatnið var alveg byrjað að fossa. Kl. 10:30 byrjuðu svo fyrstu verkirnir, hún athugaði útvíkkun kl. 11 og var ég þá komin með 7 í útvíkkun, ég fann varla fyrir verkjunum og ljósmóðirin var mjög hissa því hún sá á ritinu að hríðarnar voru að fara alveg upp í maxið hún spurði mig endalaust hvort þetta væri ekki vond hríð sem var ekki.
Kl. 11:50 athugaði hún útvíkkun aftur og þá var ég komin með 9 og mátti byrja að rembast, byrjaði að rembast um kl. 12 og hún skaust í heiminn kl. 12:17 <32780 gr. eða 11,5 merkur <3 Það var ekki vitað hvað olli blæðingunni en sérfræðingurinn taldi líklegast að ég hafi farið svo hratt af stað í fæðingu þannig belgrofið hafi ollið þessu og blætt frá leghálsinum!
Birna systir ætlaði að vera hjá okkur í fæðingunni í staðin fyrir mömmu rétt fyrir kl. 12 skaust hún að keyra strákinn sinn á æfingu við héldum að ég myndi ekki fæða alveg strax en ég hringdi í hana þegar hún var á leiðinni og sagði henni að hún væri fædd - hún hélt að ég væri að grínast í henni ;)