Sævar Þór & Andri Berg
 

Gullkorn :)

(25.júní 2013)

Sævar upp úr þurru yfir sjónvarpinu í kvöld: "ég heiti Sævar Þór Elmarsson mömmuson"


Miklar pælingar í litlum kolli og mamman að sjálfsögðu afar upp með sér að fá að vera með  drengurinn greinilega alveg með jafnréttið á hreinu - rétt skal vera rétt!! 


- - - - - - - - - - -

 

(5.maí 2013)

Við mæðgin duttum í smá spjall yfir ljósmæðraþættinum á rúv áðan...


ég: þegar þú og Andri voruð í bumbunni hennar mömmu þá voruð þið stundum að sparka fast inni í bumbunni, eins og í fótbolta
Sævar: (hlær alveg gríðarlega)
ég: þá strauk mamma bumbuna til að vera góð við ykkur
Sævar: ég strauk líka bumbuna þegar Andri var í henni
ég: já þú varst svo góður við hann
Sævar: já og ég strauk þér líka þegar þú varst í minni bumbu...
Svo yndislegt að lenda á spjalli með þessum litla kroppi Kiss 

 

- - - - - - - - - - -

 

(13.apríl 2013)

Besti stóri bróðir í heimi! "Ég elska litla bróður, ég þarf að kenna honum að leika..." Innocent

 

- - - - - - - - - - -

 

(3.janúar 2013)

Sævar var búinn að vera frekar erfiður við foreldra sína undanfarið enda mikið búið að ganga á: veikindi, jólin og litli bróðir loksins kominn = mikill spenningur sem lítill kroppur hefur ekki alveg náð að ráða við En það þurfti ekki mikið til að bræða mömmuna í gærkvöldi þegar ég var að setja hann í náttfötin. Sitjandi á gólfinu fyrir framan mig horfir hann í augun á mér og segir:


Sævar: mamma...
ég:
Sævar: ég elska þig