

Nautið
20.apríl – 21.maí
Barn í nautsmerkinu er í góðu jafnvægi og einbeitt og tekur sér tíma til að gera
hlutina og flýtir sér hægt. Þetta er barn sem skilur og metur ferlið sem slíkt.
Barn í nautsmerkinu hefur ánægju af því að hugsa um hluti og sýnir
staðfestu í nálgun þess. Raunsæi og að hlutirnir séu raunhæfir er stór
hluti af þeirra ákvarðanatöku. Þegar þú útskýrir hluti fyrir barni í nautsmerki
þá er alls ekki nóg að segja “þetta er bara svona”.
Þetta barn hefur þörf fyrir að skilja af hverju hlutirnir eru eins og þeir eru og hver lógíkin
er á bak við reglurnar sem því eru settar, annars getur það ekki fylgt reglunum.
Þetta hljómar sem mikil vinna en leiðir af sér vel aðlagað barn í góðu jafnvægi.
Annað sem ber að hafa í huga er þörf barns í þessu merki fyrir snertingu og ástúð.
Þú getur aldrei knúsað þetta barn of mikið. 
Þetta barn er einnig mikið fyrir fjölskyldulíf og er góð húshjálp.
Oft er þetta litla aðstoðarmanneskjan þín og vill gera allt eins og mamma og pabbi.
Barn í nautsmerkinu er sælkeri og þú getur búist við að það eyði miklum
tíma í eldhúsinu við að elda og borða.
Nautið er þrjóskt að eðlisfari og mjög erfitt er að fá það til að skipta um skoðun
ef það hefur fengið einhverja flugu í kollinn. Annað ríkt
einkenni er þolinmæði og þrautseigja sem gerir barn í nautsmerki
að góðum námsmanni og sigurvegara.

Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu.
Þetta eru bestu knúsarar í heimi!! 
Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga.
Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill.
Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður
matur og falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð.
Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum
eigin hraða, sem er annað en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni
og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið.
Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt.
Það borgar sig ekki að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum
því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt.
Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið
eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna.
Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra
af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar.
Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið.
Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til
að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni.
Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.