Katla Ósk,Viktoría Rós og Guðrún Tinna
 

Gullkorn Kötlu Óskar

Við vorum inn í rúmi ég og Róbert þegar Katla Ósk kemur hlaupandi og segir; þið eruð allir klemmaborgarar. Svo lokaði hún bara hurðinni.

Katla Ósk var búin að byggja rosalega flottan kastala og pabbi hennar rekur sig óvart í hann og hann datt, þá heyrist í henni; hamingjan hjálpi mér.

Katla Ósk fór með ömmu sinni og afa í útilegu og þar kom hundur sem var að kássast í henni og þá heyrist í henni, guð hjálpi mér.

Við vorum öll niður í Hraunbæ og mamma segir við hana, Katla Ósk segðu elsku afi villtu kyssa mig, þá segir Katla Ósk, elsku afi þú átt að kyssa ömmu.

Við mæðgurnar fórum til Snædísar einn daginn og þar situm við að borða brauð. þegar þetta samtal átti sér stað.Snædís segir ; nú er Katla á þeim aldri að hún eigi að vita hvort kynið hún sé, Katla Ósk veit að hún sé stelpa. Þá segir Snædís, Katla Ósk, ertu með typpi, frænka hennar lítur á hana og segir, nei ég er með brauð.