

Ásamt þér á fólk þitt fund
Að fagna,hittast,rabba.
Katla Ósk á óskastund
Á afmælisdegi pabba.
BÆN
Vertu, Guð faðir, faðir minn
í frelsarans Jésú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
ÆÐRULEYSISBÆNIN
Guð, gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
BORÐBÆN
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
vor drottin Guð, af þínum auð.
Vort líf og eign og bústað blessa
og blessa þú oss máltíð þessa.
En gef vér aldrei gleymum þér
er gjafa þinna njótum vér.
TRÚARJÁTNINGIN
Ég trúi á Guð föður almáttugan skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jésú krist hans einkason, Drottin vorn sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn.
Steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Ég trúi á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf.
Amen.
Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð, fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Því þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu, AMEN.
BOÐORÐIN TÍU
1. Ég er drottinn Guð þinn, þú skalt ekki aðra guði hafa
2. Þú skalt ekki leggja nafn drottins Guðs þíns við hégóma
3. Halda skaltu hvíldardaginn heilagann
4. Heiðra skaltu föður þinn og móður
5. Þú skalt ekki mann deyða
6. Þú skalt ekki drýgja hór
7. Þú skalt ekki stela
8. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns
10. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu, fénað né nokkuð annað sem náungi þinn á.