

Gullkorn Jóels Orra 
-3.ára-
"þetta er ekki pakki, pakkar eru þríhyrningar!"
Jóel vill ekki mjúka pakka.
"ertu ekki að skilja í mér?"
Mamma var ekki allveg að skilja hvað verið var að biðja um!
"Þú gleymdir að tannþráða mig!"
Gleymdist tannþráður eitt kvöldið....
"eigilega, sjálfsögðulega"
ekkert að spara stóru orðin og gerir þau bara stærri!
"Þetta er allt í lagi, skutlaðu mér bara í Byko svo ég geti kaupt skrúfur, svo laga ég þetta bara"
Mamma braut bjölluna af hjólinu hans, okkur fannst það ekki mikið mál!
"ég er smíðamaður, viðgerðamaður, slökkviliðsmaður OG aðstoðarmaður"
Jóel sem ætlar að vera allt!
Mamma; Jóel nú þurfum við að fara að bursta tennurnar, það er komið fullt af tannpúkum sem þarf að bursta burt
Jóel; nei það eru ekki tannpúkar bara karíus og baktus!
Mamma; karíus og baktus eru tannpúkar og nú eru þeir margir og þarf að bursta þá svo þeir skemmi ekki tennurnar
Jóel; nei, þeir eru ekki margir, þeir eru bara tveir, karíus og baktus?
"Amma er með svo liltar hendur, hvað er hún eiginlega gömul"
Jóel finnst amma sín voða lítil og talar um að hann sé stærri en hún, hún er bara lítil. Þegar hann fékk að vita að hún væri 52 ára sagði hann "ó er hún bara tveggja!"
"ef að þú ert að skamma mig, þá vil ég ekki leika við þig"
allt reynt þegar maður gerir skammarstrik!
Jóel vaknaði hágrátandi um 5 um nótt eftir sína fyrstu martröð, grét og öskraði eins og ljón. Hvað hafði gerst í draumnum? -jú, mamma hans ýtti á takkann í lyftunni en hann ætlaði að gera það!
"sérðu hvað ég var fallegur"
Jóel að skoða myndir af sjálfum sér, Fallegasta barn í heimi!
"það stendur bara -farðu út í búð og kauptu mat"
Það stendur sko ekki smíðapeysa á peysunni hennar mömmu sem er allveg eins og peysan hans!
"þú ætlar ekki að senda mig burt, það er nóg pláss?"
Lesa grísina 3, leist ekkert á að mamma þeirra myndi bara senda þá burt!
"mamma villtu koma og tannbursta mig núna, ég heyri í þeim"
Jóel nýkomin af Karíus og Baktus í leikhúsinu
"ertu að gera eitthvað svona góðgæti?"
Kristjana frænka að baka kökur
"það á ekki að setja krem í hárið sitt, það á að setja á mann alsberan?"
Amma að setja gel í hárið sitt
"þær voru bara allar prinsessur! -vita þær ekki að prinsessur er ekki búningur?? Prinsessur eru bara stelpuföt!"
Stelpurnar í leikskólanum voru í prinsessukjólum á öskudaginn en fyrir jóel eru það bara venjuleg föt! kjóll=prinsessa!