

Gullkorn Jóels Orra 
-2.ára-
"ái mamma, löppan"
Jóel Orri 23.mán, illt í fætinum
"mamma syngja meira!"
Jóel Orri 23.mán þegar vekjaraklukkan hringdi og mamman slekkur á henni!
"oj mamma, þetta er kók"
Jóel Orri 2.ára, jólasveinninn í íþróttaskólanum gaf honum svala, þetta fannst honum um hann!
"hvar er grænmetið?"
Jóel Orri 2.ára með skemmtilega athugasemd við matarborðið, sérstaklega þar sem hann er ekki voða hrifinn af grænmeti sjálfur!
"nei, þetta er ísbjörn!"
Jóel 2.ára að leiðrétta mömmu sína í ruglinu!
"langar í meira pez, jólaseinn koddu!"
Jóel Orri kláraði pezið sem hann fékk í skóinn og langaði í meira, klifraði upp í glugga, opnaði hann og fór að kalla á jólasveininn en var mjög hissa á að hann skuli ekki hafa komið þegar hann kallaði!
"þetta er leppalúði"
Jóel sá skopmynd af Steingrími J í mogganum, barnið er allveg með þetta!
"Langamma villt þú líka jólapakka?"
Hugsar vel um ömmu sín á jólunum!
"amma fara í búðina og kaupa meira pakka"
Jóel á aðfangadag þegar amma sagði honum að nú væru allir pakkarnir búnir!
"Jólaseinn vittu hjálpa mér?"
Jóel 2.ára að kalla á jólasveininn út um gluggann til að fá hjálp við að opna sparibaukinn sinn!
"grýla, ertu góður?"
Hvíslar Jóel að grýlu í jólalandinu í Smáralind, var pínu hræddur en ákvað bara að spurja hana!
"NEI, langar ekki í kínaköt!"
Jóel vill ekki svínakjöt!
"hvar er tungan mín?"
2.ára Jóel var illt í tungunni og grét mjög, mamma vissi ekki hvað hún átti að gera svo hún skellti bara tanntökugelinu á tunguna, þá kemur smá svona doði og elsku barnið skyldi ekkert hvað varð af tungunni sinn!
"þessi engan typpi, -mamma engan typpi?"
Maður spáir í ýmsu þegar maður fer í sund!
"grýla er dauð!"
Jáhá ekki vitað hvar barnið heyrði þetta, en á eftir fylgdi "gafst hún upp á jólunum!"
"Mamma!! -ég er með neglur á puttonum! ÖLLUM!"
Maður er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt!
"mamma ég er þreyttur! mamma ég er hræddur! -mamma mér er ískalt!"
Maður er ekki alltaf að nenna að fara á fætur!
"mér langar í kisu"
2.ára Jóel langar í kött!
"Já, í klukkutíma"
Amma að spyrja Jóel hvort hann hafi sofið vel um nóttina!
"ég er líka blautur í munninum mínum"
Jóel ekki hress með athugasemd mömmu sinnar um að það ætti að nota handklæðið til að þurrka kroppinn en ekki upp í munninn!
"amma, bíbí vill ekki skorpuna!?"
Jóel og amma gáfu fuglunum að borða brauðsneiðar út í garði, Jóel beið svo eftir að fuglarnir myndu koma að en enginn kom. Fannst honum þetta svo vera skýringin þar sem hann borðar skorpuna ekki sjálfur!
"mamma er svo glaður að sjá mig!"
mamma er sko heldur betur glöð að koma á leikskólann og sjá þig!
"ég sér ekki neitt?"
Amma gaf Jóel límmiðabók sem hann ætlaði að skoða, en sá ekki neitt -allar blaðsíðurnar tómar! :O
"ég var að gera leppalúða"
Jóel grátandi eftir að mamma hans þreif pennastrik úr andlitinu hans, hann var nefnilega að teikna á sig leppalúða!
"er ég ekki fínn?"
Jóel búin að maka á sig glimmergloss, voða ánægður með þetta!
"mamma þú ert að kremja mig!"
bara smá knús og þá segir hann þetta!
"já, ég var drepast"
Jóel að segja ömmu sinni hvað hafi verið kalt úti!
"ég gera atsjú hér"
Drengurinn hnerraði í rúmið og þurfti sko að sína mömmu sinni það, þaes þar sem allt var blautt eftir hnerrið!
"villtu lúlla hér, við vera vinir"
Já mamma skal sko lúlla hjá litla vininum sínum!
"ég er ískaldur, ég er að drepast, villtu hlýja mér?"
Það vantar ekki stóru lýsingarorðin þegar manni er kalt!
"má ég fá símann, bara gera sms?"
Sms já!
"þetta er ekki buxur, þetta er brók!"
Jóel vara að fara í bað og ég bað hann að taka nærbuxurnar, en þetta eru víst nærbrækur!
"það er ekki pláss fyrir mér"
Jóel að hneikslast á plássleysi í herberginu sínu, -það var búið að drasla ansi mikið!
"ertu að fara pissa? ætlarað loka? ætlarað læsa?"
Jóel lögreglustjóri að yfirheyra Guðna frænda!
Mamma: Hvar er hjartað?
Jóel: (bendir á bringuna sína) Hér!
Mamma: og hver á hjartað þitt?
Jóel: Mamma! Ég er hjartað hennar mömmu sinnar!
"nei ekki nógu gott"
Jóel að teikna mynd, -full dómharður!
"er allt búið? er til meira?"
Mjög áhyggjufullur við matarborðið þegar amma kláraði rauðkálið, -honum finnst það samt alls ekki gott!
"Ekki fikta í tölvunni minni"
Gildir það sama um mömmu og barn!
"Hvar kauptiru þennan jakka?" "Hvar kauptiru svona fínan jakka?"
Jóel fannst hlaupajakkinn hennar frænku voða flottur!
"Hvað er þetta? -Þetta er ekki gott fyrir börnin!"
Suma daga elskar Jóel kartöflur og borðar sig saddan af þeim -en svo koma dagar þar sem hann er bara alls ekki hrifinn af þeim!
2.5 ára er Jóel á "í gær" tímabili:
Mamma: Þarftu að pissa? Jóel: Ég vatti bara að pissa í gær!
Mamma: Jóel komdu að borða! Jóel: Ég er ekki svangur vatti bara borða í gær!
Mamma: Komdu nú erum við að fara að sofa! Jóel: Ég er ekki þreyttur ég vatti bara sofa í gær!
"mamma, ekki gera vandamál!"
Aðeins að láta mömmu sína heyra það þegar hún var að segja honum að borða matinn sinn!
"Hvað ertu með?"
Amma var að fá Jóel til að borða matinn sinn en hann var ekki voða hrifinn. Amma segir að ef hann er duglegur að borða matinn ætti amma smá leyndarmál handa honum. -Þessi lætur ekki fífla sig og vildi vita strax hvað amma sín var að tala um!
"þú ert ástarblóm"
Kemur til mömmu sinnar og segir svona fallegt!
"Hann er svo leiður, hann vil bara fá mömmu sína pabba sinn afa og ömmu og Kristjönu"
Vorum að lesa Palli var einn í heiminum, -Palli var leiður því hann var aleinn, -og Jóel allveg með það á hreinu hvern maður vill hafa hjá sér þegar manni líður ekki vel!
"Lífið er gott"
Jóel í rólegheitum að horfa á sjónvarpið, lét fara voða vel um sig og kom svo með þessa setningu!
"mamma, ég elska þessar stelpur!"
Jahhá! kvennabósinn Jóel!
"engin eldakona?"
Jóel hissa að koma í eldhúsið í Varmahlíð og eldakonan (Þórunn var hvergi sjáanleg)
"Hvenær ætlarðu að baka, eiginlega?"
Fyrsta sem Jóel segir við Þórunni þegar hún kom til baka úr fríi!
"en hann er svo sæt?"
Jóel kvennabósi á steinasafninu
Jóel: má ég fara á facebook?
Mamma: hvað ætlar þú að gera þar?
Jóel: finna vini mína??
Elsku barnið farinn að sakna leikskólavinanna í sumarfríinu!
Amma: ætlar þú að verða svona fótboltamaður þegar þú verður stór?
Jóel: nei, ég ætla að verða glæpamaður!
"mamma, ætlaru að þvottapoka mig!?"
Jóel 2,5 árs vildi ekki fara í bað svo mamman sagði að hún þyrfti þá bara að þrífa hann með þvottapoka!
"en ég ætla bara að skrifa ,afi á þessa stétt,"
Jóel Orri ætlaði að krota á stéttina hans afa síns
"þú ert með svo falleg augu"
Jóel sjarmatröll allveg með þetta!
"ég hef svo gaman af svona litlubarnadóti"
"má ég fara út á leikvöll"
"ég er ekki viss um að ég geti gert þetta"
Jóel Orri gamli kall!
"ég er skíthræddur við skrímsli og dauð fiðrildi"
Einn sem var að sannfæra mömmu sína um að hann ætti að fá snudduna sína aftur
" nei, ég er hjúkrunarkona"
Jóel var í læknaslopp þegar ég sótti hann á leikskólann, spurði hann hvort hann væri læknir, nei hann var hjúkka!
"mamma ég er pikkfastur"
Jóel að borða morgunmat og var "pakksaddur" :)
Jóel:"Eru mömmur stelpur?"
Mamma: Já
Jóel: "þú ert góð stelpa!"
.........
Mamma: Núna er jólasveinninn farinn að fylgjast með börnunum og skrifa hjá sér her er stilltur og hver er óþekkur, -ef maður er óþekkur þá fær maður kartöflu í skóinn!
Jóel: Já, svo borða ég bara kartöfluna og bið svo jólasveininn bara um meiri kartöflur, ég elska kartöflur!
Mamma: hmm.. hann kemur með tómat, þú færð tómat í skóinn!
Jóel: (fer að gráta) ég get ekki borðað tómata!
"villtu segja Rosemary að hætta að fara með mig inn á litlu barna deildinna, ég er ekki lítill!"
Jóel tekur hádegislúrinn sinn á kríladeildinni, en hann er ekki sáttur með að þurfa að fara þangað lengur, hann er orðinn stór!!!