

Óhefðbundnar lækningar
· Jurtaseiði. Það fyrsta sem reynt var. Fengið hjá Ásthildi grasalækni. Það þurfti að gefa honum nokkra millilítra á dag með sprautu í munninn. Við sáum ekki mikinn mun á honum en við gáfum þessu kannski ekki nægan tíma því við áttum erfitt með að koma þessu ofan í hann.
· Skírnir, fæst í jurtaapótekinu og er talið gott til að minnka vindgang og róa maga. Sáum ekki mikinn mun á honum.
· Höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð, fórum til Erlu Ólafsdóttur sem staðsett er í Mosfellsbæ en hún hefur sérhæft sig í meðferð ungbarna. Sáum ekki mikinn mun á honum.
· Nálastungur, fórum til Arnbjargar Lindu á Skólavörðustíg. Hún stakk nál í örstutta stund á þrjá staði.
· Olía til þess að bera á magann, frá hómópatanum Þorbjörgu sem starfar í Skipholtsapóteki. Hún gaf okkur remedíur líka og fyrstu tvo dagana á eftir þá varð algjör breyting á mínum manni en svo var eins og allt færi í fyrra horf.
· Ofnæmispróf hjá Matthildi. Hún gat metið viðkvæmni hans með afklipptum nöglum! Hann mældist viðkvæmur fyrir hinu og þessu sem ég tók úr fæðunni.
Hefðbundnar lækningar
· Dicykloverinhydroklorid - lyfið með langa nafnið. Notað við magakveisum en það deyfir smáþarmana. Þetta hefur verið umdeilt lyf vegna hugsanlegra aukaverkanna en margir sem ég þekki segja það hafa bjargað lífi sínu. Fyrstu 2-3 dagana á eftir varð hann allt annað barn, hann sofnaði til að mynda á brjóstinu og ég gat lagt hann til svefns. En svo var eins og allt færi í fyrra horf.
· Bakflæðislyf (Losec). Við vorum búin að greina hann sjálf með óeðlilega mikið bakflæði (auðvitað er bakflæði eðlilegt hjá svona ungum börnum því magaopið er ekki fullþroskað) en við sáum ekki mikinn mun á honum við þetta lyf.
· Eyrun voru könnuð af Geir Friðgeirssyni barnalækni með sérstöku tæki sem nemur þrýsting í eyrum. Eitthvað sem sést ekki venjulega þegar eyrun eru skoðuð. Eyrun voru alveg eðlileg.
· Barnaskurðlæknirinn Orri Þór Ormarsson skoðaði hvort endaþarmurinn væri óeðlilega þröngur en samkvæmt barnalækninum Guðmundi Ásgeirssyni fara á bilinu 10-15 börn á hverju ári í aðgerð til þess að víkka út endaþarminn! Það reyndist ekki eiga við um okkar mann.
· Röntgenmyndataka í Domus Medica til þess að athuga hvort smáþarmar væru í lagi og eins hvort bakflæði væri meira en venulegt er hjá ungabörnum. Allt kom eðlilega út úr myndatökunni.
Annað
Grautur
Eins benti barnalæknirinn Guðmundur Ásgeirsson okkur á að gefa graut eins og lyf, þeas ekki til þess að fylla magann með mat heldur til að róa. Gefa hálfa – eina teskeið á dag.
Lactose overload
Mér var bent á þetta og margt passaði við Nökkva, en mér fannst ekkert breytast þó að ég beitti ráðum við þessu. En engu að síður áhugavert og getur eflaust gagnast öðrum.
Líkist mjólkuróþoli og sést oft hjá börnum sem drekka mikið magn af mjólk, það er þegar mæður eru með of mikið magn af mjólk. Barnið getur þyngst mikið og pissar oft á dag (oftar en 10 sinnum). Barnið virðist alltaf vera svangt.
Ástæðan fyrir þessari vanlíðan barnsins er að það fær of mikið af formjólk (sú mjólk sem kemur fyrst úr brjóstinu) en of lítið af feitu mjólkinni sem kemur síðar. Eitt gott ráð við lactose overload er að skipta sjaldnar um brjóst. Sjá nánar í greinum hér fyrir neðan:
http://www.breastfeeding.asn.au/bfinfo/lactose.html http://www.babycareadvice.com/babycare/general_help/article.php?id=18
http://www.kellymom.com/bf/supply/fast-letdown.html
Annað sem hjálpaði
Myndband með barnalækni sem kennir fimm róunaraðferðir, við nýttum okkur mikið að reyfa hann í teppi eða sæng og eins hefur hann lengi sofið við white noise. Myndbandið heitir The Happiest Baby on the Block – The New Way to Calm Crying and Help Your Baby Sleep Longer.
Róla, keypt notuð á Barnalandi. Með henni fengu allir heimilismenn hvíld í nokkrar mínútur. Hann sofnaði meira að segja stundum í henni þegar hann var pínulítill.
Bílferð. Hann svaf um leið og hann kom nálægt jeppanum en hann hossaðist mikið og úr honum heyrðust miklar drunur – nýrri og minni bílar eru ekki eins góðir!
Barnatungumál: Video þar sem kona ræðir rannsóknir sínar á tungumáli ungabarna – mjög áhugavert þó að ég ætti erfitt með að nýta mér það.
http://video.google.com/videoplay?docid=4052428020269668962&ei=GHglS6CWJtef-Abo6aztBQ&q=baby+language&hl=is#
Geisladiskur með róandi hljóðum, frá sama aðila og kenndi fimm róunaraðferðir – keyptur á heimasíðu: http://www.happiestbaby.com. Róandi hljóð sem hjálpuðu honum að halda ró sinni, í (nýrri) bílnum og heima.
Bók um svefn ungbarna: Healthy Sleep Habits, Happy Child. Keypt á Amazon. Mjög góð bók þar sem margt varðandi svefn barna er rætt. Þar komst ég að því að Nökkvi var alls ekki að sofa nóg og þá var ráðist í svefnmeðferð. Eftir að hann var búinn að vera vakandi í um klukkutíma (2 mánaða) þá var allt gert til þess að hjálpað honum að sofna. Þar sem vagninn dugði best og fljótlegast þá fór hann út í vagn stundum 5-6 sinnum á dag.