

6.mars 2014
ÍA: "Mamma, mig langar að vera ræningjadóttir, ekki með teygju "
Ég: "Ertu að meina Ronja ?"
ÍA: Já, hún er aldrei með teygju eða neitt !"
4.mars 2014
Það er umhverfisvika á leikskólanum og krakkarnir voru úti að tína rusl í dag. Ísold Anna sagði okkur að hún hefði líka verið að tína sígarettur upp úr jörðinni og okkur fannst það eitthvað hálf ógeðslegt og báðum hana að sleppa því bara. Þá sagði hún: " En mamma, það er búið að flauta í þær "
19.febrúar 2014
Ísold Anna: "Mamma, hugsar maður eitthvað með höfðinu? "
Mamma: "Já, maður hugsar með höfðinu"
Ísold Anna: "Já, maður verður að hugsa eitthvað fallegt"
5.janúar 2014
Ísold Anna 4 ára:
"Mamma, ég held bara að það komi sumar í dag, það er svo mikil sól. Þegar eru bæði sól og rigning þá kemur regnbue !"
18.desember 2013
Bensi: Ísold Anna, er thetta "Vilde Venner" ? (Barnaefni í sjònvarpinu) ÍA: Nei, thad er thar sem thau bjarga dýrum sem eru í vandræðum eða búin að skera sig.
17.desember 2013
Bensi og Ísold Anna að leika inni í herbergi: ÍA: Pabbi, þú ert pabbinn. Þú átt að elda á meðan ég prjóna.
7.október 2013
Ég var nýkomin úr sturtu og var með maskara undir augunum. ÍA: Mamma, afhverju ertu svona (og bendir á augun) Ég: Afþví að það er maskari undir augunum, ég á eftir að þrífa hann af. ÍA: Mamma, veistu hverju þú líkist ? Þú líkist spøgelse (draug) !!!
13.mars 2013
Ísold Anna var komin inn í rúm að fara að sofa og pabbi hennar búin að lesa kvöldsöguna sem var draugabókin hennar. Hún kallaði "mamma, komdu aðeins. Ég dreymdi í nótt að það kom rosa stór draugur að vekja mig og ég var rosa hrædd og ég var með ljótan finger "
25. Febrúar 2013
Ísold Anna pælir mikið í íslensku og dönsku thessa dagana, og segir oft "svona segir maður á dönsku" ef við erum að tala um eitthvað. Um helgina sagði hún við pabba sinn "bor jeg i Danmark?" :) Hún er alveg farin ad skilja ad hún talar tvö tungumál, og er mikid farin ad tala dönsku heima en við tölum auðvitað bara íslensku við hana og endurtökum thað sem hún segir á Íslensku :)
11.febrúar 2013
Ísold Anna að kalla á mig úr rúminu sínu: "Mamma, viltu vera sød at kom hingað". Já það getur verið pínu ruglandi að tala tvö tungumál :)
10.nóvember 2012
Ísold Anna er að leika sér með barbí og það gengur ekki alveg eins og hún vill, og Hún kom henni ekki almennilega fyrir í strætónum sem hún var að leika með og það pirraði hana eitthvað :)
25.október 2012
Ísold Anna kemur labbandi með læknatöskuna sína inn í stofu og segir við pabba sinn að hún ætli að lækna hann og að hann eigi að leggjast niður. Svo segir hún "þetta er rosa rosa vont, það gerist ekkert neitt". Svo lætu hún pabba sinn loka augun og segir að það verði ekkert vont en klípur svo í annað augnlokið á honum með töng og togar (honum fannst það frekar vont!). Svo tekur hún upp "journalinn" sinn og les af honum og spyr "pabbi, er þér illt í fætinum". Hún skoðar hann í bak og fyrir, hlustar á hjartað og svona og segir svo "pabbi þú ert duglegur". Mikill doktor hér á ferð ;)
26.september 2012
Ísold Anna var farin inn í rúm að sofa og ég heyrði eitthvað skrjáfur inni hjá henni, og spurði hvort hún hefði nokkuð verið að rífa blaðsíðu bók. Þá kallar hún "hvað varstu að tala um mamma?" :) En hún var bara að skipta um bleiu á dúkkunni sinni.
8.september 2012
Við vorum á Food Festival og Ísold Anna sat í kerrunni sinni. Hún kallaði á pabba sinn að lyfta borðinu á kerrunni, "opnaðu pabbi, opnaðu" og svona kallaði hún í smá stund. Hún gafst upp á endanum og sagði "open" :) Þetta hafði hún lært í Dóru og fannst tilvalið að ath hvort pabbi sinn skildi þetta fyrst hann skildi ekki íslensku.
6.ágúst 2012
" Sóley og fífill, baldursbrá, gleymmérei ", þetta sönglaði sú stutta þegar hún átti að vera farin að sofa :) Páskar 2012 Málshættir: ÍA: Það er ekki glæpur að skipta um skoðun CM: Hvernig væri lífið ef við hefðum ekki kjark til að reyna neitt
04.01.2012
Ísold Anna og pabbi voru ein heima og ætluðu að hafa kósý. Ísold Anna segir við pabba sinn rosa hratt: "Horfa á snakk og borða kung fu panda" :)
23.01.2012
Vorum að tala við Camillu Mist á skype þegar hún bregður sér frá til að snýta sér, kemur svo aftur með pappírinn og heldur áfram að snýta sér og segir, "maður er með mikið kvef á svona stundu" :)
09.01.2011
Ísold Anna var að tala við ömmu Önnu Björgu á skype og var með Monsu hjá sér. Allt í einu tekur hún smekkinn sem er á Monsu og setur hann fyrir andlitið á henni, tekur hann frá og segir böööö :) Þetta endurtók hún nokkrum sinnum.
Camilla Mist 1.des 2010
Pabbi ! Ég veit alveg hvernig maður býr til lifandi jólatré. Maður veiðir bara fisk, sker hann upp og tekur hjartað úr honum. Býr svo til jólatré úr sandi, nei ég meina snjó. Tekur svo smá stykki úr því og setur hjartað inn og lokar. Svo málar maður jólatréð og þá er komið lifandi jólatré :)