Meðgöngudagbók
Hér eru færslunar af bloggsíðunni síðan ég var ólétt af Ísold Önnu:
08.05.2008
Hmmmm....orðið svolítið langt síðan við skrifuðum síðast.
Það nýjasta í fréttum hjá okkur er það að Camilla Mist er að verða STÓRA SYSTIR :) Við eigum sem sagt von á litlu kríli þann 1.nóvember. Við erum að sjálfsögðu alveg í skýjunum yfir þessu !
Við fórum í 12. vikna sónar þann 28.apríl á Skejby Sygehus og var það alveg yndislegt :)
Í dag erum við komin 14. vikur og 5 daga á leið og áætlaður fæðingadagur er 1.nóvember.
Við eigum tíma hjá ljósmóður á þriðjudaginn næsta, 12.maí og erum við rosa spennt fyrir því. Við eigum svo tíma í 20.vikna sónarinn 16.júní :)
Anna Björg, Ingólfur og Camilla Mist eru svo væntaleg til okkar 18.júní og ætla að stoppa til 29.júní. Það verður yndislegt að fá þau og njóta þess að vera með þeim. Við erum að sjálfsögðu búin að lofa prinsessunni tívolíferð, Legolandsferð og dýragarðsferð :) Hún er orðin rosa spennt og við getum ekki beðið.
Annars er nóg að gera hjá okkur eins og alltaf. Bensi er á fullu að skrifa lokaverkefnið sitt og er í skólanum alla daga við það. Gyða er búin með bachelorverkefnið sitt og gekk það mjög vel og er að fara í próf í 8 vikna fagi, Mikrobiologi, þann 25.júni og ætti að vera á fullu að læra í því....en hugurinn virðist bara vera annars staðar þessa dagana, svo það eru slagsmál við hugann hvern dag :) Þetta hefst vonandi.
Við erum annars að hugsa um að fara til Íslands um miðjan júlí og fara svo út aftur áður en skólinn byrjar í endaðan ágúst. Við hlökkum mikið til að eyða sumrinu á Íslandi í faðmi fjölskyldu og vina. Erum strax búin að plana ótrúlega margt :) Camilla ætlar að vera hjá okkur allann þann tíma, svo það er bara yndislegt :)
Þetta er víst allt sem við höfum að segja í bili.
Hafið það gott og knús á ykkur :)
Kossar og knús
B & G & CM & Bumbukríli :D
13.05.2009
Hæhæ :)
Við fórum í fyrstu mæðraskoðunina okkar í gærmorgun upp á Jordemodercenter Nord. Við fengum þessa líka æðislegu ljósmóður sem spjallaði heillengi við okkur um allt tengt óléttunni. Hún mældi hversu langt legið er komið yfir lífbeinið og á það c.a. að passa við fjölda vikna sem maður er genginn. Það mældist 16 cm hjá mér (rétt að verða komið upp að nafla) og passar það vel þar sem ég er í 16.viku núna :) Við fengum líka að heyra fallega hjartsláttinn sem var rosa flottur ! Blóðþrýstingurinn var mældur og var mjög flottur og ekkert stixaðist í þvagi. Allt í góðum gír hérna sem sagt :)
Við hlökkum rosa mikið til að fara í 20.vikna sónarinn 16.júní, tveimur dögum áður en Camilla, mamma og pabbi koma :) Spurning hvort við viljum fá að vita kynið.....svo erfitt að ákveða hehe, en aðal málið að allt líti vel út og að barnið sé heilbrigt. Við förum svo aftur í mæðraskoðun þegar við komum frá Íslandi þegar ég er gengin 30 vikur og 2 daga.
Þetta eru nýjustu fréttirnar og við munum setja inn bumbumyndir þegar bumban verður orðin aðeins myndalegri hihi :)
Knús á ykkur
B & G & CM & Bumbugull
20.05.2009
Hæhæ :)
Það er ekkert smá sem tíminn líður hratt, maí bara alveg að verða búinn og þá er orðið stutt eftir af skólanum og stutt í að við fáum heimsóknina langþráðu. Það er reyndar aðeins búið að fresta heimsókninni en það hentar okkur mun betur. Þau koma 23.júní og fara aftur 4.júlí. Ég er að fara í próf 25.júní og Bensi fer í 2 próf í júní og þarf líka að verja lokaritgerðina sína. Það styttist bara í að hann sé búinn með bachelorinn strákurinn og útskrifast hann 3.júlí :)
Allt gengur vel hjá okkur og ekki yfir neinu að kvarta. Við bíðum spennt eftir að finna einhverjar hreyfingar en er ekki viss um hvort ég finni smá stundum, en það er erfitt að segja :) Það verður líka æðislegt þegar við getum bæði fundið fyrir krílinu. Núna eru tæpar 4 vikur í 20.vikna sónarinn og vonandi verður sá tími fljótur að líða hehe :)
Leikskólinn hennar Camillu Mistar, Kópasteinn, var með vorhátið á föstudaginn síðasta. Krakkarnir sungu í Kópavogskirkju og stóð Camilla sig alveg frábærlega vel og var henni mikið hrósað fyrir fallegan söng og var hún alveg í skýjunum eftir frábæran dag.
Við erum farin að bíða eftir sumarfríinu okkar og hlakkar svo til að koma til Íslands og vera með fjölskyldu og vinum.
Endilega kvittið í gestabókina svo við vitum hver er að kíkja á okkur.
Knús
B & G & CM & litli bumbubúi
06.06.2009
Jæja, þá er komin júní og styttist heldur betur í sumarfrí og heimsóknina langþráðu :)
Bensi er búinn með bachelorverkefnið sitt og skilar því á mánudaginn. Hann er svo að fara í próf á miðvikudaginn og svo aftur 16.júní. Hann ver svo lokaverkefnið þann 23.júní og verður passlega búinn að því þegar pabbastelpan hans kemur :) Ég fer í próf 25.júní og er á fullu að undirbúa mig fyrir það, ásamt að vera í tímum í faginu líka.
20 vikna sónarinn er svo 11.júní svo það er minna en vika í hann. Við erum að sjálfsögðu mjög spennt og hlökkum til að fá að sjá krílið okkar aftur. Vonum bara að allt komi vel út. Ég fann fyrir fyrsta sparkinu í gær, alveg yndisleg tilfinning !
Það eru komnar nýjar bumbumyndir inn í albúmið og munum við bæta við þar jafn óðum.
Sumarið er eitthvað að stríða okkur hérna, kom alveg frábært veður í nokkra daga um daginn og svo kólnaði aftur og það rignir alltaf annað slagið. Vonandi verður komið betra veður þegar prófin klárast.
Við stefnum á að fara í sumarhús í viku þegar Camilla, mamma og pabbi koma til okkar, við eigum bara eftir að negla hvaða hús það verður og gerum það um helgina.
Hafið það gott öll sömul og endilega kvittið þegar þið kíkjið inn ;)
Knús
B & G & CM & Bumbukrútt
14.06.2009
Þá erum við gengin 20 vikur og tíminn rosa fljótur að líða. Við fórum í sónar á fimmtudaginn og allt leit rosalega vel út. Við svífum ennþá um á bleiku skýji eftir sónarinn enda ekkert betra en að fá að vita að allt sé í lagi og litla krílið hafi það gott og dafni vel.
Núna er ég farin að finna fyrir spörkum oft á dag, og það er svo yndislegt. Fylgjan er framan á og ofarlega svo ég finn aðallega spörk neðarlega ennþá. Bensi er meira að segja búinn að finna nokkur spörk
Ég var að tala við Camillu Mist fyrir 5 mínútum og er hún orðin svaka spennt að koma og knúsa pabba sinn og mig. Hún hlakkar svo til að fara í dýragarðinn að hún getur ekki beðið. Spyr og spyr hvaða dýr séu þar og svona. Það verður æði að fá hana til okkar og geta loksins knúsað hana
Ætla að setja inn myndir 20 vikna bumbunni.
Það er ekki meira að frétta í bili, enda prófalestur á þessu heimili 
Knús á ykkur
Kveðja
B & G & CM & bumbugull
19.06.2009
Jey, bara 4 dagar í að Camilla, mamma og pabbi koma !!
Þau eru búin að leigja bíl frá Kastrup svo þau koma keyrandi þaðan. Held að það sé mjög gott upp á Camillu að gera, þá getur hún frekar hvílt sig eftir langa ferðalagið. Síðast sofnaði hún nefnilega ekkert á leiðnni í lestinni frá Köben til Århus þótt hún hafi verið dauðþreytt greyið. Þau taka flugið snemma um morguninn svo þau verða snemma á fótum þann daginn. Við erum búin að kaupa nýjann bílstól handa Camillu, keyptum Graco stól frá Þýskalandi og erum að bíða eftir að hann komi til okkar. Þau taka bara stólinn sem hún á núna og við hendum honum þegar þau koma. Stólinn er alveg rosa flottur eins og þið sjáið :)

Bensi kemst akkúrat í frí þennan dag sem þau koma og ég fer svo í frí 25.júní.
Nú er bara að reyna að einbeita sér að restinni af lærdómnum og svo er maður kominn í sumarfrí !! Það verður yndislegt !!! :)
Litla krílið sparkar og sparkar og leyfir pabba sínum sko alveg að finna fyrir sér. Bara yndislegt :)
Jæja, komið nóg í bili og endilega kvittið, það er svo gaman að fá smá kveðjur :)
Knús á ykkur
B & G & CM & Bumbugull
30.06.2009
Núna eru pabbi, mamma og Camilla búin að vera hjá okkur í viku og margt skemmtilegt búið að gera á þeim tíma. Það er búið að fara í Tivoli Friheden hérna í Århus, Ljónagarðinn í Givskud, miðbæinn, ströndina, Botanisk have og Djurs sommerland. Þetta er búið að vera alveg frábært og erum við búin að vera þvílíkt heppin með veður, alltaf sól og yfir 25°C.
Camilla fékk að sjálfsögðu þær fréttir að hún væri að verða stóra systir rétt eftir að hún var komin og finnst henni það ekkert smá spennandi. Hún pælir mikið í þessu og strýkur magann á mér. Hún talar mikið um það þegar barnið sé komið út og hvað hún ætli að gera þá hihi :) Segir alltaf komið út, ekki fætt :) Hún verður alveg pottþétt mjög hjálpsöm stóra systir þessi dúlla !
Camillu finnst rosa spennandi að fara í alla þessa garða og er hún rosa þorin og vil prufa sem flest tæki. Er búin að fara í alls konar rússíbana, flugvélar, báta og allt mögulegt með pabba sínum. Ég fer ekki í nein tæki þar sem ég er ólétt en skemmti mér bara við að horfa á. Amman og afinn skella sér nú oft með og í stærstu tækin fara Bensi og pabbi, og skemmta sér eins og unglingar.
Þegar við höfum ekki verið að fara í garðana þá höfum við farið í Botanisk have með teppi og frispídisk og leikið okkur úti í góða veðrinu. Camillu finnst líka voða gaman að elta endurnar sem eru ekki alveg eins ánægðar með það hehe :) Hún ætlaði að tala við einhvern kött um daginn og hljóp berfætt á brenninetlur. Það fannst henni ekkert mjög spes en það jafnaði sig fljótt :) Hún er fljót að fara úr að ofan í hitanum og segist vilja vera allsber :) Svo mikil dúlla !
Það var rosa gaman að fara í dýragarðin og sáum við fullt af flottum dýrum. Camillu fannst skemmtilegast að sjá ljónin en vildi helst fá að opna gluggann á bílnum, sem var að sjálfsögðu stranlega bannað og hún gerði ekki :)
Við mælum sko 100% með Djurs sommerland, alveg ekta fjölskyldugarður þar sem maður getur eytt öllum deginum í skemmtilegheitum. Alveg fullt af tækjum bæði fyrir börn og fullorðna. Gaman líka að það skuli vera vatnagarður í honum.
Það er sko búið að taka alveg fullt af myndum úr ferðinni sem koma inn fljótlega.
Við ætlum svo að skella okkur í Legoland áður en þau halda aftur til Íslands. Nú er heldur betur orðið stutt eftir af heimsókninni, bara 4 dagar :( En við erum búin að panta okkur miða til Íslands og komum við 9.júlí, svo það líða bara 5 dagar á milli :D
Erum búin að setja nýjar bumbumyndir inn.
Kossar og knús úr hitanum og sólinni í mörkinni ;)
B & G & CM & Bumbugull
06.07.2009
Hæhæ :)
Nú erum við aftur orðin tvö í kotinu og finnst það voðalega tómlegt eitthvað. Camilla, pabbi og mamma lögðu af stað til Köben kl 06 á laugardagsmorguninn og voru komin til Íslands seinni partinn á laugardaginn. Það var voða skrítið að sjá þau fara og vera eftir hérna en núna er svo stutt í að við sjáum alla aftur að það bjargast. Við fáum Camillu til okkar á laugardaginn og getum ekki beðið eftir að knúsa hana aftur :)
Við fórum ekki í Legoland í þetta skiptið en ákváðum að geyma það þangað til næst þegar prinsessan kemur. Við vorum búin að fara svo mikið og áttum frímiða fyrir Camillu í Tivoli Friheden hérna í Århus og hana langaði rosa mikið þangað aftur svo við skelltum okkur þangað á fimmtudaginn í staðin. Við fórum svo á ströndina á föstudaginn enda frábært veður og glampandi sól. Camillu fannst æði að busla í sjónum og reyna að synda hehe :) Hún hitti líka aðra stelpu þarna á ströndinni og var að leika sér við hana. Hún reyndi eitthvað að tala við hana en þær skildu hvor aðra eitthvað takmarkað hihi :) Hún er samt voða dugleg að reyna. Stelpan spurði hvað hún héti og hún sagði Cam, hehe finnst allt eiga að vera á útlensku.
Við keyptum handa henni Build a bear bangsa um daginn og þá var auðvitað dönsk stelpa að afgreiða okkur og var að spjalla við Camillu og þær að gera bangsann saman. Já sagði Camilla alltaf JA, hehe svo mikið krútt :)
Í dag erum við komin 23 vikur og 1 dag og fórum við í aðra mæðraskoðunina okkar. Hún var hjá lækninum í þetta skiptið. Allt kom alveg rosaleg vel út og er ég alveg rosa hraust sagði læknirinn, ekkert út á neitt að segja. Blóðþrýstingurinn minn var flottur, barnið er að stækka eins og það á að gera (legbotninn var 24 cm) og hjartslátturinn hjá krílinu alveg eins og hann á að vera. Semsagt allt flott :) Vonandi helst það svoleiðis áfram bara !
Við erum svo að fara til Íslands á fimmtudaginn og eigum við bókað kvöldflug. Núna erum við bara að ganga frá lausum endum og gera okkur klár í sumarfrí á Íslandi. Við ætlum að fara í viku í sumarbústað í Húsafelli frá 17. - 24. júlí en því miður getur Camilla ekki verið með okkur allann tímann þar því hún er að fara austur á land með mömmu sinni. Vonandi nær hún einhverjum dögum með okkur samt. Við þrjú ætlum svo í veiði í nokkra daga í sumar með Stefáni og Sibbu, það verður mikið stuð.
Við förum í myndatöku í ágúst og hlakkar okkur mikið til enda komin 2 ár síðan við fórum með Camillu í Brosbörn myndatökuna. Hún er búin að stækka svo mikið og breytast síðan, verður gaman að sjá muninn á myndunum :)
Þura, Rúnar, krakkarnir og Birna eru á Spáni núna og koma heim akkúrat sama dag og við :) Verður gaman að sjá þau um helgina !
Það koma nýjar bumbumyndir í dag.
Kossar og knús
B & G & CM & Bumbubúinn
25.07.2009
Jæja þá er best að láta heyra aðeins í sér.
Í dag erum við komin 25 vikur og 6 daga og tíminn líður ótrúlega hratt. Við erum búin að vera á Íslandi í rúmar 2 vikur og margt búið að bralla. Við vorum í sumarbústað í Húsafelli síðustu helgi með fjölskyldunni minni þ.e foreldrum, bræðrum og kærustum þeirra. Það var mikið stuð og afslöppun út í eitt. Við komum heim á mánudaginn og fórum svo aftur upp eftir á fimmtudaginn bara við þrjú þegar Camilla kom til okkar um hádegi. Það var æði að hún náði einni nótt allavega og fékk að fara í pottinn og trampólínið og svona. Hún naut sín í botn og við auðvitað líka.
Við erum líka búin að vera með fjölskyldunum okkar og einhverjum vinum og vonandi náum við nú að sjá fleiri áður en við förum út aftur.
Annars er bara allt gott að frétta og meðgangan gengur ótrúlega vel, barasta engu að kvarta yfir þar !
Látum heyra í okkur fljótlega en þið megið endilega kvitta ;)
Komnar inn nýjar bumbumyndir.
Knús í krús
B & G & CM & Bumbumús
23.08.2009
Litla stóra fallega stelpan okkar á afmæli í dag og er 5 ára. Ótrúlegt hvað tíminn líður, bara ár þangað til hún byrjar í skólanum !
Við héldum upp á afmælið hennar 16.ágúst, eða akkúart fyrir viku síðan því við flugum út til Dk 19.ágúst.
Hún var í skýjunum með afmælið sitt enda skemmti hún sér konunglega með hinum krökkunum sem komu. Hún fékk líka rosa margar fallegar gjafir og þökkum við enn og aftur fyrir það.
Við komum semsagt hérna út á miðvikudaginn og var fyrsti skóladagurinn eða kynningardagur hjá Bensa á föstudaginn. Við byrjum svo í skólanum bæði á morgun, spennó ;)
Ég átti afmæli á föstudaginn og áttum við Bensi notalegan dag saman og kíktum í bæinn yfir daginn og borðuðum á kaffihúsi um kvöldið. Mjög rólegur og góður dagur :)
Það er svo skrítið að vera komin aftur út en alltaf gott að komast heim til sín í sína eigin hluti. Við söknum fjölskyldu og vina samt alltaf rosa mikið og hlökkum til að sjá ykkur aftur.
Við fórum í myndatöku til Jennýjar fyrr í ágúst og erum búin að fá myndirnar úr henni. Við setjum þær inn á næstu dögum ;)
Í dag erum við komin 30 vikur og styttist nú óðum í litla krúttið okkar. Allt gengur vel og eigum við að fara í mæðraskoðun 25.ágúst og erum við mjög spennt yfir því.
Camilla er mjög spennt yfir því að hún sé að verða stóra systir og við vorum að tala við hana í símann í fyrradag þá spurði hún mig hvort við myndum ekki örugglega hringja þegar litla barnið kæmi út (segir alltaf kemur út) hehe :) Svo mikil dúlla ! Ég sagði að hún yrði sú fyrsta sem fengi að vita að hún væri orðin stóra systir og var hún mjög ánægð með það :)
Endilega kvittið í gestabókina :)
Knús og kossar
B & G & CM & Bumbukrútt
09.09.2009
Í gær fór ég í mæðraskoðun til ljósunnar og allt kom rosalega vel út. Blóðþrýstingurinn minn er alltaf mjög fínn og mældist í gær 110/60. Hjartslátturinn hjá krilinu var rosa flottur og liggur hún í höfuðstöðu en getur breytt um stöðu ennþá. Þær (ljósan og neminn) giskuðu á að barnið væri um 1800-1900 gr núna sem er bara meðalþyngd miðað við 32 + vikur og var legbotninn 33 cm sem er mjög gott.
Alltaf gaman að fá toppeinkunn í mæðraskoðun :) Næsta skoðun er svo hjá lækninum þegar við erum komin 35 vikur.
Ég vaknaði upp kl 2 aðfaranótt fimmtudagsins í síðustu viku við einhvern verkjaseiðing í mjóbakinu og sama hvað ég reyndi að snúa mér, ganga um gólf og sitja þá fór verkurinn ekki. Ég vakti Bensa og við ákváðum að ég skyldi hringja upp á deild og heyra hvað þær hefðu að segja. Þær vildu að ég kæmi upp eftir og við fórum í leigubíl upp á deild. Ég var strax látin pissa í glas vegna gruns um þvagfærasýkingu og svo fór ljósan eitthvað fram. Þá urðu verkirnir þvílíkt slæmir og þegar hún kom til baka þá gat ég hvorki staðið né setið og gekk um gólf alveg í þvílíkum verkjum. Hún tékkaði þvagið en það var alveg hreint. Þá var ég sett í mónitor til að sjá hvort þetta hefði einhver áhrif á barnið en þar sem ég fékk ekki samdrætti með verkjunum þá grunaði okkur að það gerði það ekki. Í mónitornum sást að þetta hafði ekki áhrif á hana en ég var í honum í rúman einn og hálfan tíma. Allan þennan tíma var ég að bíða eftir að það kæmi læknir að skoða mig en hann tafðist í akut aðgerð. Þegar var búið að taka mig úr mónitornum sem sýndi að litlan hafði það rosa gott og hreyfði sig fullt þá hættu verkirnir bara allt í einu og ég fann ekkert meira fyrir þeim. Ég var samt látin bíða eftir lækninum sem gat auðvitað ekkert sagt hvað þetta var fyrst það fannst ekkert í þvaginu.
Við fórum því bara heim þarna um 6 leitið um morguninn og fórum að sofa og fengum að vita að ef þetta kæmi fyrir aftur þá ætti ég að koma uppeftir.
Gott að þetta hætti og hef ég ekki fundið fyrir þessu síðan :)
Annars gengur allt mjög vel hérna hjá okkur og erum við svona í rólegheitunum að byrja að gera okkur klár fyrir komu gullmolans. Við munum flytja 1.nóvember í aðra íbúð svo það verður gaman að sjá hvernig það allt mun passa.
Það er allt gott að frétta af Camillu Mist en hún er samt eitthvað ósátt í leikskólanum. Hún segir ekkert afhverju en gæti verið að hún sé orðin pínu þreytt á því að fara í leikskólann enda búin að vera þar í mörg ár núna. Vonandi lagast það samt fljótlega en hún var að skipta um deild fyrir sumarfríið og gæti það kannski haft áhrif á hana greyið.
Hún kemur vonandi út áður en barnið fæðist en það veltur allt á því hvort það er einhver á leiðinni út sem getur fylgt henni á Kastrup.
Hafið það gott og endilega kvittið :)
Knús
B & G & CM & bumbukrúttið ;)
28.09.2009
Í dag er ég gengin 35 vikur og 1 dag ;)
Það er margt búið að gera síðan við skrifuðum síðast :)
Við erum búin að kaupa okkur bíl og erum rosa ánægð að vera með hann. Þetta er gamall peugeot, árgerð 1993 og lítur bara ágætlega út. Núna getur Bensi verið aðeins rólegri, því hann vill að það standi bíll úti í hlaði þegar ég fer af stað :)
Við erum líka búin að kaupa slatta fyrir krílið litla og erum t.d. búin að kaupa okkur Emmaljunga vagn sem við fengum notaðan á netinu. Hann er emmaljuna edge duo combi frá 2007 og notaður af einu barni, lítur mjög vel út og við erum rosa ánægð með hann. Erum líka búin að kaupa rimlarúm og dýnu í það, ömmustól, baðbala og margt fleira. Þetta er svona að verða komið hjá okkur af dóti sem okkur vantar áður en barnið fæðist en það eru enn smá hlutir eftir. Við erum líka búin að þvo smá föt sem eru tilbúin ofan í kommóðu en eigum enn eftir að fá fullt af fötum sent frá Íslandi sem við þvoum bara þegar koma.
Við ætlum okkur að skoða fæðingadeildina í þessari viku en það er hægt á þriðjudögum og annan hvern föstudag. Það er ágætt að vera búin að kíkja á hana ef ég skildi fara af stað þótt við búumst nú ekki við krílinu fyrr en einhvern tímann eftir 40 vikurnar ;) Það myndi allavega henta ágætlega að ná að flytja fyrst hihi :)
Við eigum tíma í mæðraskoðun á fimmtudaginn kl 9.30 og erum við að sjálfsögðu rosa spennt eins og alltaf. Alltaf gaman ef maður fær góðar fréttir og er allt búið að ganga svo vel hingað til.
Við erum orðin svoooo spennt að sjá litla krílið okkar og erum svo ánægð með það að foreldarar mínir og Camilla Mist ætla að koma til okkar 12.nóvember og Þura og Birna ætla að koma 25.nóvember :) Mamma og pabbi ætla að vera þangað til 19.nóvember en Camilla ætlar að vera þangað til 30.nóvember og fara til Íslands með ömmu sinni og Þuru. Það verður æðislegt að fá þau öll og gaman að Camilla nái að vera svona lengi og geti kynnst litla systkini sínu vel. Við erum ekki búin að ákveða hvort við komum til Íslands um jólin, það veltur auðvitað allt á litla krílinu og skólanum hjá Bensa. Við vonumst samt til þess að geta komið, það er svo erfitt að vera svona langt í burtu frá Camillu yfir jólin.
Þór vinur okkar var hjá okkur núna um helgina. Hann kom til að verja mastersritgerðina sína og stóð sig frábærlega !! Enn og aftur til hamingju með flottan árangur Þór ! Hann fór í morgun aftur til Íslans. Það var rosa gaman að hafa hann í heimsókn og söknuðum við Elínar og Birgittu Marínar, vonandi sjáum við ykkur fljótlega !
Við látum vita hvernig gengur í mæðraskoðun á fimmtudaginn :)
Það eru komnar nýjar bumbumyndir 35 vikur + 1 dagur í myndaalbúmið.
Kvittið endilega :)
Knús
B & G & CM & Bumbukríli
05.10.2009
Vá það er komin október og tíminn flýgur frá manni eins og alltaf !
Við fórum í mæðraskoðun á fimmtudaginn 1.okt til læknisins og kom allt rosa vel út :) Blóðþrýstingurinn hjá mér er mjög fínn og hjartslátturinn hjá krílinu alveg eins og hann átti að vera. Enginn bjúgur og ekkert til að kvarta yfir. Barnið er búið að skorða sig, svo minni áhyggjur að hafa ef vatnið skildi fara. Allt í allt fengum við toppeinkunn og allir sáttir :)
Á föstudaginn fórum við svo að skoða fæðingadeildina og mættu alveg rosalega mörg pör. Okkur var skipt í tvo hópa og svo var okkur sýnd fæðingastofa. Við erum mjög sátt eftir að hafa farið að skoða og finnst við einhvern veginn öruggari og tilbúnari fyrir komandi átök ;) Ljósan útskýrði hvað allt væri inni á stofunni og sýndi okkur baðið, og svo útskýrði hún hvað við ættum að gera þegar við héldum að fæðingin væri byrjuð og svona. Rosa gott fyrir svona nýgræðinga eins og okkur að fá smá útskýringar :)
Camilla Mist var í pössun hjá Stefáni afa sínum og Sibbu um helgina. Við heyrðum í henni nokkrum sinnum og sáum hana í tölvunni, alltaf jafn yndislegt. Hún alveg elskar að vera hjá þeim og finnst svo gaman að fá að leika við Tinna hundinn þeirra. Hún saknar pabba síns mikið og nefnir það við hann í hvert einasta skipti sem hún talar við hann núna og við söknum hennar auðvitað alveg hræðilega mikið. Sem betur fer þá líður tíminn hratt og þá styttist óðum í að hún komi út til okkar, við hreinlega getum ekki beðið.
Í dag erum við komin 36 vikur og 1 dag og er farið að styttast mjög mikið í settan dag sem er 1.nóvember. Við reiknum nú alveg með að ganga aðeins yfir en það kemur bara í ljós ;)
P.s komnar nýjar bumbumyndir 36 vikur.
Knús
B & G & CM & Bumbukríli
20.10.2009
Jæja, við fórum í mæðraskoðun í dag og er það sú síðasta fyrir settan dag. Eigum samt tíma komin 40+2 og búumst alveg við að fara í hana líka 
Það kom allt alveg rosalega vel út eins og það hefur gert hingað til. Blóðþrýstingurinn minn var fínn eða 100/70, hjartslátturinn hjá bumbudúllunni var flottur, legbotninn er 37 cm og var maginn þreyfaður alveg eins og ég veit ekki hvað. Hún er skorðuð eins og læknirinn sagði líka í síðustu skoðun. Við vorum hjá bæði ljósmóður og ljósmóðurnema og giskuðu þær báðar á þyngdina á barninu en voru ekki aaaalveg sammála. Neminn giskaði á 3600 gr og átti líka í erfiðleikum með að átta sig alveg á stöðunni á barninu, fyrir utan að höfuðið væri niður í grindinnni en ljósmóðirin giskaði á 3000 gr og fann út hvernig hún liggur. Það verður gaman að sjá hvor þeirra er nær
Ég spurði þær líka hvenær ég yrði sett af stað ef ég fer ekki sjálf af stað og þær sögðu að mörkin hérna væru 41 + 6, svo það er ágætt að vita það.
Bensi var í 2 prófum í dag og er strax búinn að fá að vita að hann náði því munnlega með stæl. Hann fær úr hinu prófinu eftir einhverjar vikur. Hann var svo heppinn að geta akkúrat náð að koma með í mæðraskoðunina á milli prófa. Þetta var sem sagt alveg rosa góður dagur í alla staði !
Við erum annars bara að reyna að pakka niður dótinu okkar og nú eru minna en 2 vikur í flutningana. Við erum orðin mjög spennt en það er svo mikið að gerast að þetta er allt hálf óraunverulegt eitthvað. Við erum farin að hlakka þvílíkt til að fá Camillu Mist til okkar og mömmu, pabba, Þuru og vonandi Birnu !! Það verður sko alveg yndislegt. Við ætlum að bíða með að gera herbergið hennar Camillu klárt þangað til hún kemur og ætlar hún að hjálpa okkur að gera það fínt. Hún verður nú sjálf að fá að ráða hvernig herbergið hennar verður
Við Bylgja létum svo taka af okkur nokkrar myndir saman, þar sem við erum samferða vinkonurnar og set ég nokkrar hér inn. Á myndunum er ég akkúrat komin 38 vikur og hún 30+1.
Kossar og knús
B & G & CM & Bumbulíus