
Innilega til hamingju með nafnið og skírnina elsku Brynjar Páll. Flott nafn. Knús Guðrún og co.
Takk fyrir okkur og til lukku með gærdaginn!
Sibba og co.
Til hamingju með nafnið og daginn Brynjar Páll, Ísak Árni og foreldrar.
Flottur dagur.
Kveðja Afi.
Hlökkum til að sjá ykkur á fimmtudaginn. Svo margt sem við þurfum að fræðast um í sambandi við uppeldi á drengum :D
Þeir bræður eru nottla bara sætastir, mjög líkir foreldrum sínum !! :D
knús úr Kórunum
Þið eruð svo flottir bræður! Margrét, þú verður að fara að kíkja út í göngutúra með mér:-) Kveðja úr Hvassaleitinu.
Bestu kvedjur fra Libiu. Allt gott erum ad leggja af stad heim.Hlokkum til ad sja ykkur bada.
Amma og afi
Rosalega ertu duglegur í íþróttaskólanum. Svo ertu svo góður við litla bróður. Þú ert alveg til fyrirmyndar. Vonandi verður Luna mín líka svona dugleg þegar litla systir fæðist.
Að lokum, til hamingju með afmælið Margrét!
Innilega til hamingju með mömmu ykkar, eigið góðann og skemmtilegan dag.
kv.Sibba og co
Jiii minn hvað þú stækkar hratt, þvílíkt mannalegur og flottur!!! Get ekki beðið eftir því að sjá þig með eigin augum :)
Knús til allra á heimilinu. Þú ert ekkert smá heppinn að eiga svona góðan stóra bróðir :)
kveðja
Guðbjörg og co :)
Rosa fínar myndir, flott samanburðarmyndin af Óttari og litla, vá hvað minn maður hefur stækkað, samt bara fæddur í sömu stærð og litli litli.
knús og kossar.
Var að skoða myndirnar af litla snáða og hann er æðislegur.
Stóri bróðir er auðvitað ekki síðri en ég er samt í sjokki yfir því hvað hann er STÓR bróðir ;o)
Samanburðarmyndin er algjör snilld, flottir frændurnir fjórir :o)
Hlakka til að fá að máta litla snúð..sem virðist nú vera af svipaðri uppskrift og Ísak Árni, sem er nú ekki slæmt.
Til lukku enn og aftur...þið eruð flottust.
Kv.
Jagga
Hæ hæ elsku fjölskylda. Innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn:)
Kveðja Sylvía, Óskar og Lúcía Sóley
Kæra fjölskylda. Innilega til hamingju litla drenginn. Þeir eru báðar rosalega flottir strákar. Kv.Fríða
...og auðvitað er litli snáðinn ekkert smá heppinn að eiga svona góðan stóra bróður. Maður sér bara bróðurkærleikann á myndunum.
Kær kveðja, Helga, Marco, Luna (og litla systir Lunu)
skilaboðin sendust óvart áður en þau voru tilbúin)
Sá er fínn og sætur! Fékk bara nokkuð sterkan samdrátt af því að horfa á myndirnar. Úff! Hlakka til að heyra alla söguna en held að við séum ekkert á leiðinni í heimsókn strax. Luna er nýbyrjuð á leikskólanum og er með allavegana fimm mismunandi kvefpestir og mér sýnist við öll vera að fá þetta frá henni.
Innilega til hamingju með sæta snáðann. Hélt ég væri löngu búin að kvitta :-)
kveðja úr Kópavoginum.
Hæ Ísak Árni. Innilega til hamingju með litla bróður og til hamingjum með að vera orðinn stóri bróðir. Þið eruð báðir rosa flottir. Knússssssss Guðrún, Dagur og Líf
Halló 'Isak 'Arni og til hamingju með litla bróðir, nú ert þú orðin stóri bróðir,ég veit þú verður duglegur að hjálpa mömmu og pabba með hann. sjáumst Sigga amma.
Kæra fjölskylda mikið er gaman að sjá myndir af snáðanum. Ekkert smá mannalegur og flottur og Margrét, þú hefur barasta ekkert fyrir þessu sýnist mér, ekki hægt að sjá á myndum að þú sért nýbúin að eignast barn!!! :)
Enn og aftur innilega til hamingju!!! og gangi ykkur vel
kær kveðja úr Kórunum
Guðbjörg og bumbugullið :)
Halló sæta fjölskylda! Til hamingju með prinsinn! Hann er algjört yndi - svona á fyrstu myndum soldið líku mömmunni sinni:)
Hlakka til að sjá ykkur í þrívídd! Risastórt knús á ykkur!
Til hamingju með litla bróður Ísak Árni og til hamingju með rosalega flotta bræður elsku Margrét og Jói!
Velkominn í heiminn Hr.Nýfæddur :)
kv.
Brynja, strákarnir og bumban!
Elsku Ísak Árni, Jói og Margrét. Innilega til hamingju með litla prinsinn. Get ekki beðið eftir að sjá myndir af honum :)
kær kveðja
Guðbjörg og litla gullið sem fer núna alveg að fara að koma í heiminn :)
Elsku Ísak Árni,
Innilega til hamingju með litla bróður. Þú verður að sjá til þess að við fáum mynd af honum sem fyrst. Flottar nýju myndirnar.
Kveðja,
Fanney & co
Kæra fjölskylda,
Innilegar hamingjuóskir með litla prinsinn.
Kveðja;
Ásta, Haukur og Gabríel.
Innilega til hamingju með gullmolan ykkar - gangi ykkur rosa vel :)
Ísak Árni þú átt sko eftir að vera duglegur stóri bróðir, það er örugglega skemmtilegt verkefni, að vera stórrrrri bróðir.
Knús og kossar,
Íris, Árni og Axel Ingi
Til hamingju með titilinn, kysstu alla frá mér.
hæhæ, takk fyrir heimsóknina í dag :) og kjóllinn er æðislega sætur takk kærlega!
Við fylgjumst spennt með þegar litli brói kemur í heiminn og hlökkum til að fá að hitta hann þegar hann er orðinn nógu stór.
kveðja frá litlu frænku
Halló Isak 'Arni, það er nú spennandi framundan hjá þér og mömmu og pabba ,bráðum verðið þið fjögur. hlakka til að sjá þig .knús þín amma.
Vildi bara kvitta fyrir innlitð. þið eruð stórglæsileg fjölskylda. Óska ykkur alls hins besta þegar litli drengurinn bætist í hópinn. Kv. Fríða úr MS
Hæ kæra fjölskylda. Rakst á síðuna ykkar fyrir tilviljun og mátti til með að kvitta fyrir mig og komu mína hér á síðuna. Óska ykkur als hins besta og vona að allt gangi vel hjá ykkur á næstunni þegar að litli bró kemur. Gangi stóra bró vel að aðlagast nýjun astæðun og vonandi verður allt komið í lag hjá ljósmæðrunum. Kveðja, Hekla í Ólafsvík.