
Hæ hæ.
Þá eru jólin farin að nálgast og það fyrstu jólin sem maður er almennilega farinn að spá í þessu stússi öllu. Ég er búinn að hitta þó nokkra jólasveina og hef mjög gaman að þeim, þó ég vilji nú helst halda í mömmu og pabba ef ég fer of nálægt þeim. En ég veit að þeir eru góðir og ég ætla að passa mig að vera stilltur strákur svo ég fái örugglega einhverja skemmtilega "pakka" í skóinn :)
Af mér er annars bara allt fínt að frétta. Ég uni mér vel ég leikskólanum, þó mér finnist nú alltaf best að vera eitthvað að dúlla mér með mömmu og pabba. Ég er ennþá Bubba byggir óður og hugsa varla um annað en hann og gröfur. Ég er þó aðeins farinn að víkka sjóndeildarhringinn, en þetta ætlar að eldast hægt af mér.. sem er bara allt í lagi :o)
Læt þetta nægja í bili og bið að heilsa öllum.
Ykkar Ísak Árni :)
Skrifa athugasemd