
Jæja gott fólk. Tíminn flýgur eins og venjulega og maður verður bara byrjaður í skóla áður en maður veit af!
Af mér er annars allt gott að frétta. Ég er búinn að eiga dásamlegt sumar og sumarfrí með mömmu og pabba og hefur ýmislegt verið brallað.
Eins og flestir vita var mamma úti í Bandaríkjunum í tæpa tvo mánuði í vor og var ég einn í kotinu með pabba á meðan. Það gekk rosa vel enda eigum við góða að og tæknin skemmir ekki fyrir. Við pabbi töluðum við mömmu næstum því daglega á Skype og með vefmyndavél, þ.a. við sáumst nú bara ansi oft á meðan hún var í burtu. Svo tókum við líka smá forskot á sumarfríið og fórum út til hennar og þvældumst um Minnesota í 8 daga, ásamt því að gista hjá öðlingunum Haraldi og Katrínu. Það var alveg ótrúlega gaman í Bandaríkjunum og andrúmsloftið rosa fínt í Rochester.. hver veit nema við komum þangað aftur :)
Mamma kom svo heim um miðjan júní og svo vorum við öll saman í fríi í júlí. Það var alveg rosa fínt frí, þar sem við dvöldum uppi í sumarbústað, þvældumst hringinn í kringum landið, dvöldum með fjölskyldunni hans pabba í Ásbyrgi, á Akureyri og fleiri stöðum í nokkra, fórum meira í sumarbústað og svo mætti lengi telja. Það er nú ekki hægt að sleppa því að minnast á veðrið heldur, sem hefur verið hreint ótrúlegt í sumar. Loksins loksins, kom almennilegt sumar hérna og höfum við notið góða veðursins út í ystu æsar, maður er eiginlega alltaf jafn hissa, viku eftir viku, á veðrinu!
Í ágúst tók alvaran svo aftur við. Mamma og pabbi fóru að vinna og ég fór í leikskólann. Ég og Hlynur vinur minn erum elstir núna á deildinni minni og því er ég ansi hagvanur þar og ekkert mál að vera á leikskólanum. Ég mun þó eflaust vera fluttur á eldri deild fljótlega, en þar eru allir vinir mínir síðan í fyrra, svo þetta á eflaust bara allt eftir að ganga vel, enda fyrirmyndar leikskóli :)
Annars fór ég á tónleikana á laugardalsvelli í gær og skemmti mér bara ágætlega framan, eða þangað til ég sofnaði :) Nú á eftir er ég svo að fara í Latabæjarhlaupið og svo verður eitthvað dúllað sér fram eftir kvöldi á Menningarnótt.
Takk í bili og takk fyrir að fylgjast með mér :)
Ísak Árni.
Skrifa athugasemd