
Hæ öll.
Þá er ég kominn með nýja heimasíðu sem ætti að vera opin allan sólarhringinn :)
Af mér er bara allt fínt að frétta. Síðan síðast hefur náttúrulega heilmikið gerst, enda langt síðan hefur verið skrifað :l Ég fór til Spánar síðasta sumar með mömmu og pabba og mömmu fjölskyldu og skemmti mér alveg rosalega vel. Síðan byrjaði ég í leikskóla í ágúst og finnst alveg rosalega gaman þar, enda skemmtilegir krakkar og kennarar :) Ég er hef náttúrulega stækkað heilmikið og hætti að nota bleyju á daginn um miðjan desember 2006, en sef þó alltaf ennþá með hana á nóttinni. Ég er náttúrulega farinn að tala heilmikið líka, en þó skilja mig nú ekki alltaf allir :)
Svo er ýmislegt framundan hjá okkur í fjölskyldunni. Mamma og pabbi ætla að gifta sig í apríl og hafa síðustu vikur og mánuðir soldið helgast af undirbúningi fyrir það. Síðan fer mamma til Bandaríkjanna rétt eftir að ég verð þriggja ára og verður þar í næstum tvo mánuði að gera rannsóknir. Það verður örugglega soldið skrýtið fyrir okkur feðgana, en við ætlum þó að heimsækja hana í viku og hafa það gott með henni :)
Jæja, hef þetta ekki lengra í bili, læt heyra í mér von bráðar :)
Ykkar Ísak Árni :)
Skrifa athugasemd