Ísak Árni og Brynjar Páll
 

Albúm: Des. 2006

Ég fór í jólasveinaleit með vinnunni hans pabba..
.. við fundum þá :)
Mér leist nú bara vel á þetta..
.. en ákvað samt að gaurast aðeins í trjánum
Viktor Freyr kominn með pakka, en ekki ég, leist nú ekki...
.. en auðvitað gleymdu þér mér ekki :)
Ánægður með pakkann minn..
.. og hér við félagarnir :o)
Ég kunni ágætlega við jólasveinana til að byrja með ;)
Að hjálpa pabba að mála heima..
.. rosa sport :)
Í piparkökumálun í leikskólanum..
.. aðeins að sýna mömmu leikskólann
Jólagleði hjá Ástu og Hauki, Ásta, Helena Sirrý og Fríða...
Ég og Helena Sirrý erum voða góðir vinir..
.. að skoða ljósin saman..
.. ég að skipta á henni..
.. og narta í tærnar á henni..
.. og athuga hvað hún er liðug..
.. og halda á henni :o)
Ég fékk að horfa á Stubbana..
.. svo DJ-aði ég með Hauki..
.. Strumparnir voru skemmtilegastir..
.. og svo kenndi ég Hauki aðeins hvernig á að dripla...
Það er nú ekki slæmt að fá sleikjó
Í stúdents/25 ára/húsasmíðaveislunni hjá Hödda..
.. að horfa á sjónvarpið með krökkunum..
.. og að knúsa Árna frænda..
.. og Gísla Baldur frænda..
.. þeir eru SVO skemmtilegir :)
Að lita í litabókina sem ég fékk í skóinn
Kominn til Siggu ömmu og Láka afa á aðfangadag..
.. að sjálfsögðu með fiskana
Ég og pabbi við jólatréð..
.. og fjölskyldumynd líka :)
Sestur við matarborðið..
.. massa góður hamborgarahryggur
Með fyrsta pakkann..
.. og hundinn sem ég fékk, ég skírði hann strax Loka :)
Að sýna afa hundinn minn..
.. og ömmu :)
Mamma og amma að skoða gjafirnar..
.. og ég að setja slaufu í hárið :)
Sigluvogsgengið kíkti seint á aðfangadagskvöld til að spila
Gamlárskvöld komið, í mat hjá Hildi frænku og Óskari..
.. það tók smá tíma að læra að blása í þetta ;)
Að sjálfsögðu notaði ég hlífðargleraugu
Allir tilbúnir í kalkúninn :)
Á leiðinni á brennu, Hildur frænka, Einar, ég og pabbi..
.. og hér með Sturlu afa
Við brennuna með mömmu og pabba..
.. og búinn að setja gleraugun sjálfur á mig :)

Sjá lista yfir myndaalbúm