

24.september 2015 – Fyrsti dagur síðustu blæðinga
22.október 2015 – Blæðingar áttu að hefjast
26.október 2015 – Jákvætt þungunarpróf
6.nóvember 2015 – Snemmsónar, allt virtist í góðu lagi og hjartað var farið að slá. Fengum mynd af 6 vikna og 1 dags baun. Áætlaður fæðingardagur samkvæmt blæðingum er 30.júní. Ráðlagt að taka járn strax vegna þess hve stutt er frá síðustu fæðingu en fara rólega af stað
20.nóvember 2015 ~ Aukasónar og spjall. Alexander vildi að við kæmum bæði og töluðum við sig og kíktum á krílið en það var partur af því að hjálpa okkur að meðtaka fréttirnar. Fengum að heyra hjartsláttinn og tvær myndir af 8 vikna og 1 dags baun
25.nóvember 2015 ~ Aukasónar vegna blæðingar, sennilega í tengslum við álag vegna ælupestar. Allt í góðu lagi með krílið og fékk mynd af 8 vikna og 6 daga kríli
3.desember 2015 ~ Fyrsta mæðraskoðun - gengin 10 vikur. Spjall við ljósmóður. Blóðþrýstingur mældur (128/80).
17.desember 2015 ~ Aukamæðraskoðun - gengin 12 vikur. Hjartsláttur barnsins mældur (150/162)
21.desember 2015 ~ 12 vikna sónar - hnakkaþykktarmæling og fósturskimun. Allt leit vel út og virtist alveg fullkomlega eðlilegt. Krílið spriklaði og spriklaði og var í fullu fjöri allan tímann. Fengum 6 myndir af 12 vikna og 5 daga kríli. Áætlaður fæðingardagur samkvæmt sónar er 29.júní. Fór í blóðprufur og skilaði þvagprufu
24.desember 2015 ~ Fjölskyldur okkar beggja fengu að vita af krílinu
7. janúar 2016 ~ Aukamæðraskoðun til að sækja pappíra fyrir flutninga - gengin 15 vikur. Farið yfir niðurstöður úr blóðprufum - blóðsykur á mörkunum og blóðlítil, ráðlagt að auka járnskammtinn. Blóðþrýstingur mældur (120/70) og hjartsláttur barnsins (135-155). Ekki farin að finna neinar hreyfingar ennþá, fylgjan mjög líklega framan á
21.janúar 2016 - Önnur mæðraskoðun - gengin 17 vikur. Stutt yfirferð á ástandinu og fyrri meðgöngum og fæðingum. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð (er ekkert að þyngjast). Blóðþrýstingur mældur (110/70) og stærð legsins (19 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (145). Ráðlagt að auka járnskammt enn frekar og nýjar blóðprufur planaðar eftir mánuð
25.janúar 2016 ~ Fann fyrstu hreyfingarnar - gengin 17 vikur og 4 daga
13.febrúar 2016 ~ 20 vikna sónar, Gísli kom með í sónarinn. Fengum að sjá krílið okkar sem hefur stækkað mikið síðan síðast. Krílið var skoðað vel og vandlega, mælt í bak og fyrir og allt virtist í góðu lagi. Við fengum 3 myndir af 20 vikna og 2 daga krílinu okkar. Það gekk frekar brösulega að sjá kynið þar sem krílið klemmdi vel. Þrátt fyrir mikla leit fannst ekkert typpi og því líklegt að þriðja prinsessan sé á leiðinni. Áætlaður fæðingardagur er 30.júní
24.febrúar 2016 ~ Blóðprufa og þriðja mæðraskoðun - gengin 21 viku og 6 daga. Ræddum stuttlega líðan mína og ég sagði ljósunni frá samdráttunum. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð (loksins aðeins farin að þyngjast). Blóðþrýstingur mældur (129/70) og stærð legsins (21 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (136). Er enn blóðlítil og því ráðlagt að auka járnskammtinn enn meira. Fengum tíma í nýjan sónar eftir viku í von um að við sjáum meira en í 20 vikna sónarnum
2.mars 2016 ~ Auka sónar. Gísli og Aníta Fönn komu með. Fengum að kíkja á krílið í von um að sjá aðeins meira af því en í 20 vikna sónar. Í þetta skiptið fór ekkert á milli mála að það er lítil dama á leiðinni. Fengum 9 myndir af 22 vikna og 6 daga krílinu okkar
23.mars 2016 ~ Fjórða mæðraskoðun - gengin 25 vikur og 6 daga. Ræddum ástandið - mikla samdrætti, túrverki og pílur niður í klof. Ljósan fór yfir blóðprufurnar síðan síðast og ég er enn blóðlítil þrátt fyrir að vera að taka járn sem skýrir mikla þreytu. Ljósan benti á að mér væri velkomið að hitta lækni og fá frekari skoðun og eins koma í hvíldarinnlögn ef mér fyndist þörf á því. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð. Blóðþrýstingur mældur (110/70) og stærð legsins (28 cm). Fengum að heyra hjartslátt barnsins (146) sem situr. Ljósan benti á að ég væri á viðkvæmu tímabili núna, krílið er að stækka mjög mikið og því þarf ég að vera extra dugleg að hvíla
25.mars 2016 ~ Hringdi upp á spítala vegna verkja og var boðuð í skoðun - gengin 26 vikur og 1 dag. Hitti ljósmóður og var sett í rit sem sýndi þétta en litla og stutta samdrætti. Ljósan kallaði á lækni sem skoðaði leghálsinn og sem betur fer var hann ekki farinn að styttast né mýkjast. Var skipuð í hvíld
5.apríl 2016 ~ Blóðprufa
6.apríl 2016 ~ Fimmta mæðraskoðun - gengin 27 vikur og 6 daga. Ræddum ástandið - samdrættir, verkir og mikil þreyta og fórum yfir niðurstöðurnar úr blóðprufunni sem voru ekki nógu góður. Ég er enn að lækka í blóðrauða, er lág í járni og ferritíni og járnbindigetan er ekki nógu góð. Ljósan sagði að ég væri með ca 70% af blóði miðað við það sem ég ætti að vera sem líklega skýrir þessa miklu þreytu. Þvag stixað (mældist örlítill sykur) og ég vigtuð. Blóðþrýstingur mældur (110/70) og stærð legsins (29 cm). Fengum að heyra hjartslátt barnsins (168) sem var í höfuðstöðu
21.apríl 2016 ~ Hringdi upp á deild um nóttina vegna samdrátta og verkja í baki, hafði ekkert getað sofið. Ljósan sagði mér að taka verkjatöflur, fara í bað og reyna að sofna en hafa samband ef ástandið lagaðist ekki
27.apríl 2016 ~ Sjötta mæðraskoðun - gengin 30 vikur og 6 daga. Ræddum ástandið - samdrættir og þrýstingur niður í síðustu viku, verkir í lífbeini og túrverkir og verkir í baki þessa dagana. Einnig er ég með hausverk, svima og ógleði sem stafa væntanlega af þreytu þar sem ég sef lítið og illa. Ljósan talaði um að hafa lágan þröskuld upp á skoðun að gera og eins kæmi hvíldarinnlögn sterklega til greina. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð. Blóðþrýstingur mældur (120/70) og stærð legsins (30 cm). Fengum að heyra hjartslátt barnsins (148) sem var í höfuðstöðu og komið vel ofan í grindina en óskorðað. Bókaður tími í vaxtarsónar eftir viku
4.maí 2016 ~ Vaxtasónar. Krílið mælt í bak og fyrir og var samkvæmt mælingum nú þegar orðið 10 merkur. Allt leit mjög vel út og fengum við 2 myndir af 31 vikna og 6 daga kríli
9.maí 2016 ~ Skoðun í áhættumæðraverndinni á SAk eftir samtal við Alexander vikuna áður. Hitti Orra lækni sem skoðaði leghálsinn með sónartæki og mældist hann langur og lokaður
11.maí 2016 ~ Sjöunda mæðraskoðun - gengin 32 vikur og 6 daga. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð. Blóðþrýstingur mældur (120/70) og stærð legsins (33 cm). Fengum að heyra hjartslátt barnsins (148) sem var í höfuðstöðu og nú skorðað. Einnig bað ég ljósuna um blóðprufubeiðni til að athuga statusinn og fór ég í blóðprufu strax eftir skoðunina
12.maí 2016 ~ Fer upp á deild í skoðun vegna samdrátta. Var sett í rit sem sýndi stutta en öra samdrætti. Fékk tvær töflur til að minnka samdrættina og hitti svo sérfræðing. Sérfræðingurinn skoðaði leghálsinn bæði með sónartæki og þreifaði hann. Kollurinn kominn langt niður, leghálsinn framstæður, mjúkur, farinn að styttast og opinn að framanverðu fyrir einn fingur. Læknirinn skrifar upp á lyf við samdráttum, ráðleggur eins mikla hvíld og hægt er og vill að ég komi aftur í skoðun daginn eftir
13.maí 2016 ~ Fer aftur upp á deild í skoðun. Er sett í rit sem sýnir nokkra samdrætti. Legháls þreifaður, ástand óbreytt frá deginum áður.
Er ekki sátt með að vera send heim í þessu ástandi með litlar sem engar upplýsingar og við upplifum óöryggi. Hef samband við sérfræðing á SAk sem er heldur ekki nógu ánægður með þessi vinnubrögð og hefur samband við LHS, er send þangað í skoðun.
Mæti upp á LHS í skoðun hjá lækni sem skoðar leghálsinn með sónartæki og metur hann styttan og örlítið opinn. Er lögð inn til eftirlits með tilliti til mögulegrar lungnaþroskasprautu ef ástandið breytist. Nál sett upp til öryggis og teknar blóðprufur. Fer í rit um kvöldið sem sýnir stutta en öra samdrætti. Get ekki sofnað um kvöldið vegna samdrátta og er því sett aftur í rit sem sýnir enn og aftur stutta en öra samdrætti. Er í framhaldinu gefin lungnaþroskasprauta (sterasprauta í vöðva) til öryggis
14.maí 2016 ~ Er áfram undir eftirliti á LHS. Finn litlar sem engar hreyfingar þann daginn og er því sett í rit. Til að byrja með er hjartsláttur dömunnar mjög rólegur og hún sennilega sofandi. Ljósan hreyfir við bumbunni og ég drekk tvö glös af köldu vatni í von um að ýta við henni. Við það eykst hjartsláttur hennar til muna en engar hreyfingar ennþá. Engir samdrættir ritast og ég tekin úr riti og sagt að rölta aðeins um til í von um að vekja krílið. Er sett aftur í rit um kvöldið og þá loksins tekur daman við sér og hreyfir sig á fullu. Hjartsláttur hennar er einnig mjög hraður og þónokkrir samdrættir ritast líka. Fæ seinni lungnaþroskasprautuna um miðnætti
15.maí 2016 ~ Teknar blóðprufur um morguninn. Fer í skoðun hjá sérfræðingi sem skoðar leghálsinn með sónartæki og metur stöðuna óbreytta. Fæ því að fara heim með þær upplýsingar að eins og staðan er núna er ekki mikið að gerast, en fari ég af stað verði ég ekki stoppuð af enda barnið búið að fá lungnaþroskasprautu. Sérfræðingur planar nýjar blóðprufur upp á Skaga þar sem ég held áfram að lækka í hemoglobini og vill kanna möguleika á járngjöf í æð
17.maí 2016 ~ Fór í blóðprufur
25.maí 2016 ~ Áttunda mæðraskoðun - gengin 34 vikur og 6 daga. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð. Blóðþrýstingur mældur (110/70) og stærð legsins (36 cm). Fengum að heyra hjartslátt barnsins (146) sem var í höfuðstöðu og skorðað. Niðurstöður úr blóðprufunum frá því í vikunni áður sýndu að hemoglobinið hafði aðeins hækkað þó ég sé enn blóðlítil.
Hafði samband upp á deild um kvöldið vegna samdrátta, aukins þrýstings niður og mikilla verkja aftur í bak, var sagt að koma í skoðun. Var sett í rit sem sýndi töluverðan óróa - mikið af samdráttum, misstórir en ekki reglulegir. Hjartsláttur dömunnar var hins vegar mjög hraður og illa gekk að ná honum niður. Ljósan þreifaði leghálsinn sem var lunga mjúkur, um 1 cm að lengd og opinn 4 cm. Læknir kom til að meta stöðuna. Ekki þörf á að senda mig suður strax þar sem það voru engin merki um reglulegar hríðar en ég lögð inn yfir nótt til eftirlits. Fékk verkjatöflur og slakandi fyrir svefninn
26.maí 2016 ~Fór í rit um morguninn sem sýndi töluvert hægari hjártslátt hjá dömunni og lítið um hreyfingar enda eflaust sofandi og enga samdrætti. Fékk því að fara heim með því skilyrði að taka því rólega næstu vikuna
2.júní 2016 ~ Níunda og síðasta mæðraskoðunin á Skaganum fyrir norðurferð - gengin 36 vikur. Ræddum ástandið stuttlega sem er voða svipað. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð. Blóðþrýstingur mældur (115/70) og stærð legsins (35 cm). Fengum að heyra hjartslátt barnsins (135-150) sem var í höfuðstöðu og skorðað
9.júní 2016 ~ Tíunda mæðraskoðun, í þetta skiptið á Akureyri - gengin 37 vikur. Mætti upp á fæðingardeild SAk þar sem ég hitti ljósmóður. Var sett í rit sem kom vel út. Þvag stixað (bæði rauð og hvít blóðkorn í þvagi svo það var sent í ræktun) og ég vigtuð. Er með smá bjúg á fótum. Blóðþrýstingur mældur (115/80). Legháls skoðaður, um 2 cm að lengd, lungamjúkur og opinn 4 cm