Gullmolarnir í Jörundarholtinu
 

Aníta Fönn - meðganga & fæðing

 

27.júlí 2014 – Fyrsti dagur síðustu blæðinga

24.ágúst 2014 – Blæðingar áttu að hefjast

28.ágúst 2014 – Jákvætt þungunarpróf

11.september 2014 – Snemmsónar, allt virtist í góðu lagi og hjartað var farið að slá. Fengum myndir af 6 vikna og 4daga baun. Áætlaður fæðingardagur samkvæmt blæðingum er 3.maí

14.september 2014 – Foreldrar mínir fengu að vita af bumbukrílinu

19.september 2014 ~ Var lögð inn í sólahringsvökvun eftir að það leið yfir mig vegna vökvaskorts eftir miklar ælur og ógleði

23.september 2014 – Tengdó fengu að vita af bumbukrílinu

25.september 2014 – Aukasónar og allt virtist í lagi. Fengum myndir af 8 vikna og 4 daga baun

21.október 2014 – 12 vikna sónar – hnakkaþykktarmæling og fósturskimun. Mamma kom með í staðin fyrir Gísla. Allt leit vel út og virtist alveg fullkomlega eðlilegt. Krílið spriklaði og spriklaði og var í fullu fjöri allan tímann. Fengum þrjár myndir af 12 vikna og 4 daga kríli. Áætlaður fæðingardagur samkvæmt sónar er 1.maí

28.október 2014 – Fyrsta mæðraskoðun – gengin 13 vikur og 4 daga. Spjall við ljósmóður. Blóðþýstingurinn mældur (120/90) og hjartsláttur barnsins (155-165)

6.nóvember 2014 - Blóðprufa og þvagprufa

7.nóvember 2014 - Fann fyrstu hreyfingarnar - gengin 15 vikur

18.nóvember 2014 - Hafði samband við ljósuna mína vegna ógleði, uppkasta, svima og yfirliðstilfinningar sem gerir oft vart við sig. Hún vísaði mér upp á kvennadeild þar sem ég hitti deildarlækni sem vildi að ég prófaði einhverjar magatöflur til að róa magann fyrst ógelðisstillandi lyfið er ekki að virka

21.nóvember 2014 - Blóðprufur

2.desember 2014Mjólkurbroddur farinn að myndast

15.desember 201420 vikna sónar, Gísli kom með í sónarinn. Fengum að sjá krílið okkar sem hefur stækkað mikið síðann síðast. Krúttið var skoðað vel og vandlega, mælt í bak og fyrir og allt virtist i góðu lagi. Við fengum þrjár myndir af 20 vikna og 3 daga krílinu okkar. Við fengum einnig að vita kynið og von er á lítilli prinsessu. Áætlaður fæðingardagur er áfram 1.maí

16.desember 2014Spjall hjá heimilislækni þar sem andleg líðan og almennt heilsufar var rætt. Blóðþrýstingur mældur (125/74)

24.desember 2014 ~ Gísli fann fyrstu hreyfingarnar - gengin 21 viku og 5 daga

7.janúar 2015 ~ Stóra systir fann fyrstu hreyfingarnar - gengin 23 vikur og 5 daga

20.janúar 2015 ~ Aukamæðraskoðun - gengin 25 vikur og 4 daga. Spjall um uppköst, verki í lífbeini og svefntruflanir. Ljósan pantaði tíma fyrir mig upp á spítala í áhættumæðraverndinni þar sem ég á að hitta lækni. Þvag stixað (ekki fullkomlega hreint) og ég vigtuð (ég er ekkert að þyngjast). Blóðþrýstingur mældur (130/80) og stærð legsins (27 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (140-155)

23.janúar 2015 ~ Verðandi stóri bróðir fann fyrstu hreyfingarnar - gengin 26 vikur

25.janúar 2015 ~ Fann krílið hiksta í fyrsta sinn

26.janúar 2015 ~ Gísli fann krílið hiksta í fyrsta sinn

29.janúar 2015 ~ Skoðun hjá lækni í áhættumæðraverndinni. Ræddum ástandið og hvað væri hægt að prófa til að draga úr ógleði og uppköstum, allt verið reynt hingað til en lítið sem ekkert virkað. Kíktum á krílið í sónar sem virðist stækka eðlilega en læknirinn vill þó halda áfram að fylgjast með þar sem ég er ekkert að þyngjast og á ég því að mæta aftur eftir rúmar 2 vikur. Fengum 2 myndir af 26 vikna og 6 daga krílinu okkar. Fór í nálastungu hjá ljósmóður og niður á rannsókn í blóðprufur

3.febrúar 2015 ~ Önnur mæðraskoðun - gengin 27 vikur og 4 daga. Spjall um ástandið í dag sem hefur lítið breyst. Þvag stixað (ekki fullkomlega hreint) og ég vigtuð (ég hef aftur lést). Blóðþrýstingur mældur (120/70) og stærð legsins (29 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (140-155) sem var sitjandi hægra megin í leginu

16.febrúar 2015 ~ Skoðun hjá lækni í áhættumæðravernd, átti að hitta Ragnheiði en hitti Alexander í staðin. Ræddum ástandið og kíktum á krílið í sónar. Allt skoðað vel og vandlega þar sem læknanemi var með í för og leit mjög vel út. Krílið er aðeins undir meðaltali í stærð, en ekkert til að hafa áhyggjur af. Valur læknir var síðan kallaður inn til að gefa okkur smá sýnishorn með 3D sónarnum og fengum við eina klessumynd af 29 vikna og 3 daga dömunni sem lá með andlitið upp við naflastrenginn

24.febrúar 2015 ~ Þriðja mæðraskoðun - gengin 30 vikur og 4 daga. Hitti aðra ljósmóður þar sem mín var veik. Spjall um ástandið sem hafði lítið breyst - verkir í lífbeini, þreyta, ógleði og ælur. Ljósan tók eftir að blóðsykur var heldur hár í síðustu blóðprufu og mældi mig því aftur. Sú mæling var einnig heldur há og var ég því send heim með blóðsykurmæli og átti að mæla mig tvisvar á dag næstu 6 daga. Þvag stixað (ekki fullkomlega hreint) og ég vigtuð (enn er ég að léttast). Blóðþrýstingur mældur (130/65) og stærð legsins (30,5 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (140-150) sem var í höfuðstöðu

2.mars 2015 ~ Auka mæðraskoðun, eftirfylgni af sykurmælingunum - gengin 31 viku og 3 daga. Mælingarnar komu ekki nógu vel út en ekkert hræðilega heldur. Þar sem ég var alveg á mörkunum fékk ég greininguna meðgöngusykursýki þó svo að ég falli ekki undir skilgreininguna að örðu leiti, sennilega eru hormónar og ælustandið að spila þarna inn í. Ég held áfram að mæla mig daglega, nú fjórum sinnum á dag, og hitti svo ljósmóður sem sérhæfir sig í meðgöngusykursýki 

11mars 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna túrverkjaseyðings í baki og þrýstings niður. Rit sýndi væga en óreglulega samdrætti. Læknir kom og skoðaði mig með sónar, leghálsinn lokaður og langur (4 cm). Þvag sent í ræktun

12.mars 2015 ~ Auka mæðraskoðun hjá ljósu sem sérhæfir sig í meðgöngusykursýki - gengin 32 vikur og 6 daga. Ljósan fór yfir mælingarnar og var ég undir því meðaltali sem þarf að vera svo ég þarf ekki að fara í sérhæfðara eftirlit upp á sjúkrahúsi. Held áfram að mæla mig fjórum sinnum á dag til að fylgjast með sykrinum

13.mars 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna túrverkjaseyðings í baki, þrýstings niður og mikillar ógleði og ælustands. Rit sýndi enga samdrætti og lífsmörk eðlileg

17.mars 2015 ~ Fjórða mæðraskoðun - gengin 33 vikur og 4 daga. Spjall um ástandið og farið yfir sykurmælingar. Farin að finna kunnuglega "verki" og því hvött til að hafa lágan þröskuld upp á skoðun. Mælingar á blóðsykri enn undir meðallagi og því fækkað niður í tvo daga í viku þar sem ég þaf að mæla mig fjórum sinnum á dag. Þvag stixað (ekki fullkomlega hreint) og ég vigtuð (örlítið þyngst). Blóðþrýstingur mældur (125/85) og stærð legsins (33 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (150-160) sem var sitjandi

20. mars 2015 ~ Blóðprufur

27.mars 2015Fór upp á deild í mónitor þar sem slímtappi hafði farið um nóttina/morguninn. Rit sýndi enga samdrætti en við skoðun kom í ljós að leghálsinn var langur (2 cm), miðstæður, mjúkur og opinn 4 cm. Daman lausskorðuð og því mælt með sjúkrabíl ef vatnið fer

28.mars 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna túrverkjaseyðings í baki og þrýstings niður. Rit sýndi stutta, öra samdrætti sem gerðu lítið gagn, annað en að þreyta mig. Skoðun óbreytt frá því deginum áður

31.mars 2015 ~ Fimmta mæðraskoðun - gengin 35 vikur og 4 daga. Spjall um ástandið sem hefur heldur versnað, mikil uppköst og því ganga sykurmælingar ekki alltaf vel. Auknir verkir í baki og mikill þrýstingur niður og því orðin heldur þreytt. Ljósan bauð mér hvíldarinnlögn á spítala sem ég mætti bara þyggja þegar og ef ég vildi. Þvag stixað (ekki fullkomlega hreint) og ég vigtuð (aftur hef ég lést). Blóðþrýstingur mældur (120/85) og stærð legsins (34,5 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (150-165) sem var í höfuðstöðu

1.apríl 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna aukins þrýstings. Rit sýndi litla og stutta samdrætti. Skoðun sýndi óbreytt átand frá síðustu skoðun. Lífsmörk eðlileg

5.-8.apríl 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna mikillar vanlíðunnar, mikil ógleði og ælustand og því lítið búin að sofa. Rit sýndi enga samdrætti en hjartsláttur barnsins var heldur hraður. Ég var í kjölfarið lögð inn í hvíldarinnlögn í þrjár nætur. Aftur sett í mónitor fyrir svefn að kvöldi 5.apríl og þá hafði hægt á hjartslætti dömunnar. Mónitor að kvöldi 6.apríl, hjartsláttur barnsins eðlilegur og nokkrir samdrættir sem sennilega má tengja við hreyfingar barnsins. Mónitor fyrir heimför að morgni 8.apríl, hjartsláttur barnsins eðlilegur og engir samdrættir

11.apríl 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna túrverkjaseyðings í baki og aukins þrýstings niður. Rit sýndi nokkra litla, örstutta samdrætti. Við skoðun kom í ljós að smá breyting. Legháls er lungamjúkur en enn langur (tæpir 2 cm), útvíkkun um 5 cm og belgurinn spenntur. Daman er enn lausskorðuð svo mælt er með að koma með sjúkrabíl ef vatnið fer

13.apríl 2015 ~ Vaxtarsónar hjá lækni í áhættumæðravernd, átti að hitta Ragnheiði en hitti Orra í staðin. Krílið mælt í bak og fyrir og allt leit vel út. Daman er aðeins yfir meðaltali núna en innan eðlilegra marka. Eðlilegt magn af legvatni og flæði um naflastrenginn gott. Ástandið rætt stuttlega, mikil ógleði, uppköst og svefnleysi svo ég fékk uppáskrifuð verkja- og svefnlyf til að taka á kvöldin í von um að ástandið skáni aðeins

14.apríl 2015 ~ Sjötta mæðraskoðun - gengin 37 vikur og 4 daga. Spjall um ástandið sem er enn við það sama, uppköst og svefnleysi en vonandi skánar það við lyfin frá lækninum. Síðastliðinn sólahring miklir túrverkir í bak og fram í kúlu sem og aukinn þrýstingur niður og verkir í lífbeini. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð (held mér í sömu þyngd). Blóðþrýstingur mældur (135/85) og stærð legsins (35,5 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (140-150) sem var í höfuðstöðu og skorðað. Ég bað ljósuna um innri skoðun til að athuga hvort það hefði orðið einhver breyting. Legháls er lungamjúkur og um 1,5 cm að lengd, útvíkkun góðir 5 cm og höfuð barnsins komið langt ofan í grindina. Slímtappi hefur annað hvort endurnýjað sig eða ekki farið allur um daginn og hefur því verið að fara í gær og í dag

17.apríl 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna samdrátta. Rit sýndi þónokkra samdrætti, en hvorki reglulega né mikla. Ekkert sem benti til að fæðing væri komin af stað. Við skoðun kom í ljós að engin breyting hefði orðið, útvíkkun ennþá 5 cm og leghálsinn 1,5 - 2 cm langur

24.apríl 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna samdrátta, verkja í baki og mjög mikils þrýstings. Rit sýndi þétta samdrætti, án hvíldar, en ekki nógu sterka til að koma fæðingu af stað. Við skoðun var útvíkkun sú sama eða um 5 cm en leghálsinn aðeins farinn að styttast og lungamjúkur. Ljósann sendi mig heim með svefntöflu og sagði að það vantaði bara herslumuninn upp á að fæðingin færi af stað

28.apríl 2015 ~ Sjöunda mæðraskðun - gengin 39 vikur og 4 daga. Spjall um líðan sem er bara svipuð, aum kúla eftir mikla samdrætti undanfarið, bakverkir, þrýstingu og ælur. Hef tvisvar fengið miklar blóðnasir síðastliðinn sólahring svo spurning hvort það þurfi að athuga statusinn á blóðflögunum. Þvag stixað (hreint) og ég vigtuð (stend nokkurn vegin í stað), smá bjúgur farinn að gera vart við sig. Blóðþrýstingur mældur (135/85) og stærð legsins (36 cm). Fékk að heyra hjartslátt barnsins (135-155) sem var í höfuðstöðu og skorðað. Innri skoðun framkvæmt og hreyft við belgnum. Útvíkkun 5-6 cm, leghálsinn lungamjúkur og 1 cm þykkur. Belgurinn spenntur og kollur stendur vel niður. Þetta var síðasta mæðraskoðun niður í mæðravernd, ljósan pantaði tíma fyrir mig upp á deild næsta fimmtudag (vegna verkfalls hitti ég bara sérfræðing en ekki ljósu þá) þar sem verður rædd hugsanleg gagnsetning

30.apríl 2015 ~ Skoðun hjá sérfræðingi upp á deild - gengin 39 vikur og 6 daga. Kíktum á krílið í sónar sem er alveg búið að setja sig í stellingar. Legvatn mælt og flæði um naflastrenginn, allt leit vel út. Læknirinn hreyfði hressilega við belgnum í von um að hann myndi gefa sig, sem hann gerði því miður ekki. Hann sagði að ég væri orðin mjög hagstæð og reiknaði því með krílinu í heiminn um helgina. Ef ekki á ég að mæta í gangsetningu á þriðjudagsmorgun en ekki var hægt að gera það fyrr vegna verkfalls ljósmæðra

2.maí 2015 ~ Fór upp á deild í mónitor vegna mikils þrýstings niður og verkja í baki. Rit sýndi sterka samdrætti á 5-6 mínútna fresti og marga litla inn á milli. Við skoðun var útvíkkun góðir 6 cm, leghálsinn nánast fullstyttur og mjög mjúkur. Kollur kominn enn neðar. Ég var send heim með verkjatöflur og svefntöflur og sagt að koma aftur ef þær virkuðu ekki eða ef verkir færu að aukast

5.maí 2015 ~ Mættum upp á deild kl 8 í gangsetningu. Var sett í mónitor sem sýndi samdrætti á 5 mín fresti. Sett upp nál og blóðprufur teknar. Belgur sprengdur kl 9:30. Sett aftur í mónitor sem sýnir samdrætti á 3-5 mín fresti. Lítil dama kom í heiminn 11:29 eftir 40 vikna og 4 daga meðgöngu. Hún var 18 merkur, eða 4500g, og 56 cm.