

11 mars 09 Birkir var að horfa á sjónvarpið með pabba sínum. Þá segir Steinn "sjáðu þessi strákur heitir Birkir alveg eins og þú". Þá segir Birkir Snær "mamma sjáðu" og bendir á sjónvarpið og segir "þetta er ég þegar ég verð stór"
18 feb 09 Það er stundum stuð í Bónus. Við vorum í mjólkurkælinum þegar Birkir segir allt í einu "hún er eins og flugvél" og bentir á systur sína. Ókunn kona sem stóð hjá fór að skellihlæja og segir "alveg yndislegt að heyra svona" Við löbbuðum svo nokkur skref og komum að ostunum. Þá byrjar Birkir að syngja "Gutti,Gutti,Gutti, Gutti, Gutti borðar ost" Þá skellti ókunna konun aftur uppúr og segir "æji það er svo gaman af þeim á þessum aldri"
17 feb 09 Birkir var búinn að vera með hlaupabólu og Brynja var nýkomin með hlaupabóluna. Svo í kvöldmatnum segji ég við hann að hann verði að passa sig maturinn sé heitur. Þá heyrist í Birki "viltu blása á hlaupabolluna" Mamman "þetta er ekki hlaupabolla, þetta er kjötbolla" Birkir "ég bara grínast"
18 jan 09 Allt í einu, algjöræega uppúr þurru segir Birkir allt í einu "Ég elska Katryn Önnu" En þau eru mikilir vinir. Þau kynnist hjá dagmömmunni og lentu svo saman á leikskóla, á sömu deild.
22 jan 09 Birkir:"Bóndinn ræður á bóndabænum, mömmur og pabbar heima og kennarinn í leikskólanum. Og ég ræð á Íslandi þegar ég verð stór. Eða kannski ég verða jólasveinn"
15 jan 09 Birkir"BRYNJA mömmu finnst þú ekki vera skemmtileg" Mamman:"jújú, en hún er stundum smá óþæg" En Brynja vildi ekki sitja í stólnum sínum við matarborðið, bara uppá borðinu.
16 des 08 Birkir:"einu sinni ég lítill, jólasveinn passa mig í fjöllunum"
16 des 08 Birkir:"Mamma, þegar ég verð stór ætla ég að vinna á bóndabæ" Mamman:"nú já, ætlarðu að verða bóndu?" Birkir "nei kusa"
16 des 08 Birkir:"mamma tásurnar kunna að vinka" Hann var að kreppa og rétta úr tánum.
30 sept 08 Birkir:"mamma þá átti ekki tippi" Mamman "uuhh nei ég á ekki tippi" Birkir:"þú átt BARA rass. Þú kannt ekki pissa bara kúka"
27 sept 08 Birkir fékk nýja Spiderman sokka og vildi ólmur sofa í þeim en mamma hans sagði að við yrðum að setja þá í þvottavélina og þvo þá fyrst. Stuttu seinna heyrðist skrúfað frá krananum inná baði og stóð sá stutti uppí standinum sínum og var að handþvo Spiderman sokkana.
Sept 08 Birkir;"Brynja sestu !! ég, mamma, pabbi rosa reiður" Brynja var að standa uppúr matarstólnum sínum og reyna að komast uppá matarborðið
27 júlí 08 Birkir:"ég skítugur á puttunum og á fætunum" Mamman:"afhverju ertu með hafragraut á tánum" Birkir:"ég borðaði svo mikið"
18 maí 08 "Ég búinn að blessa Kristófer" Birkir Snær var að kveðja vin sinn
Maí 08 "Pabba cheerios meiða mig" sagði Birki þegar hann var að borða Hunangs cheerios og það stóð aðeins í honum.
Birkir var eins og hálfs árs þegar hann var að fletta blaði einn daginn, þegar hann tók uppá því að sleikja puttann áður en hann fletti (eins og foreldrarnir gera stundum) nema hvað.... að hann sleikti puttann á annarri höndinni og notaði svo hina til að fletta.
Þórhildur frænka í Danmörku sendi Birki stóran hest (bangsa) þegar hann var um eins eða eins og hálfs. Dag einn eru Birkir og mamma að leika með hestinn þegar mamma segir við hann "Birkir klappa hestinum" Og viti menn... hann klappaði saman höndunum í sakleysi sínu.