Birkir Snær & Brynja Eik
 

Fæðingarsaga Brynju

Mamma skrifar:

Ég vaknaði klukkan hálf þrjú um nóttina við það að vatnið var að fara. Fljótlega fór ég að fá mikla verki.

Kl 3:00 kom svo önnur vatnsgusa og mér fannst vera orðið frekar stutt á milli verkja og þeir orðnir ansi vondir svo ég vakti Stein. Það voru bara eitthvað um 3 mín á milli verkja. Ég hringdi uppá fæðingardeild og boðaði komu mína í skoðun.

Kl 3:30 var Steinn búinn að hringja í mömmu (hún ætlaði að vera hjá Birki) klæða sig og finna til föt á mig. Þá kom næsta vatnsgusa og verkirnir orðnir óbærilegir.  Ég sá það að ég kæmist ekki uppá spítala mér fannst barnið bara vera að koma. Steinn hringdi á fæðingardeildina og sagði þeim hvernig staðar væri og það hafi verið blóðlitað vatnið. Honum var sagt að hringja í 112, sem hann gerði. Þeir skipuðu honum að láta mig leggjast niður en ég var ekki alveg tilbúin í það. Hann varð að draga mig inní herbergi og láta mig leggjast. Þá fann ég að kollurinn var að koma.

Fimm mínútur í fjögur var mamma komin. Birkir vaknaði við lætin í mömmu sinni, þannig að amma hans fór að sinna honum.

Klukkan fjögur komu sjúkraflutningamennirnir. Tveir þeirra fóru beint að sinna mér á meðan tveir fóru og náðu í sjúkrabörurnar. Þegar þeir komu til baka pompaði höfuðið út. Þannig að það var ljóst að þetta yrði heimafæðing. Þá var bara að klára þetta uppí rúmi.

Í næstu hríð kom svo kroppurinn og barnið var fætt sjö mínútur yfir fjögur. Það var lítil dama.

Næst var að koma okkur uppá spítala. Litla daman var sett á brjóst og við mæðgurnar settar á sjúkrabörurnar og okkur skellt í sjúkrabílinn. Steinn kom að sjálfsögðu með okkur. Á fæðingardeildinni tóku á móti okkur ljósmóðir og ljósmóðurnemi. Þar var ég látin rembast þar til fylgjan kom. Þá var bara eftir að sauma mig saman aftur. Svo höfðum við það bara huggulegt á fæðingarstofunni til að verða sjö, þá komu ljósurnar til að vigta og mæla litlu dömuna. Hún reyndist vera 4.110 grömm og 52 cm. Síðan var okkur rúllað í Hreiðrið. Þar vorum við í sólarhring.