

Við erum systkinin Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og stúlka Hjálmarsdóttir
Velkomin 















Við erum þrír gullmolar og erum augnayndi mömmu og pabba.
Gunnar Hólm kom í heiminn þann 27. október 2007 á Horsens Sygehus í Danmörku. Hann vó 4.518 grömm eða 18 merkur og var 54 cm langur. Hann var svo stór og sterklegur að hann var kallaður Íslenski Víkingurinn á sjúkrahúsinu
en mamma og pabbi vilja meina að hann sé ekta sveitakarl með stóra og sterka hramma híhí
Sigurður Jenni kom í heiminn þann 24. október 2010 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hann vó 4010 grömm eða 16 merkur og 54 cm langur. Hann var töluvert nettari en Gunnar stóri bróðir sem var skemmtileg tilbreytni frá þyngslunum í Gunnari híhí
Litla systir kom í heiminn þann 8. júní 2014 heima í Grænumýri 4. Hún vó 4050 grömm eða 16 merkur og var 52 cm löng. Hún var dökkhærð eins og Gunnar en töluvert fíngerðari en bræður sínir. Sérstaklega ber að nefna hversu langar fingurnir og tærnar eru. Hún gæti vel spilað á píanó með tánum ef hún hefði áhuga híhí.
Ef þið viljið fá leyniorðið á síðunni þá endilega hafið samband við okkur á e-maili
inga82@hotmail.com eða hjalliboy@hotmail.com

Vísa til Gunnars Hólms
Garpur fríður, kapp í kinn
kostir prýða nafna minn.
Æskan líður enn um sinn
elsku blíði drengurinn.
Með kveðju, Gunnar afi.
Gunnar Hólm
Lítil gjöf frá guði
von mín og trú
kærleikur og ástúð
gjöfin varst þú
Svo tindrandi og saklaus
augun þín smá
svo gaman að vita
að lítinn frænda ég á
Öll mín ást blómstrar
ljómar og skín
skín svo bjart
frá mér til þín
Ó öll þín framtíð
svo björt fyrir þér
góð og blíð
hún framundan er
Svo elsku Gunnar Hólm
nú býð ég þig
velkominn í heiminn
og gangi þér vel
Höf. Telma Lind frænka
Gunnar Hólm Hjálmarsson
Gunnar litli sætur er
fer snemma á fætur.
mömmu hans og pabba ber
að hafa á honum gætur.
Höf. Elva Kristín frænka
Gunnar
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytin "ar" sem merkir hermaður.
Hólm
Nafn þetta er leitt af nafnorðinu "hólmur" sem merkir hólmi, - smáey, - einvígsstaður.
SPORÐDREKINN
24. Október - 21. Nóvember
Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.