Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og Litla systir Hjálmarsbörn
Gunnar Hólm, Sigurður Jenni og Litla systir Hjálmarsbörn
 
 
 

Gullkorn

Í tilefni 1. árs afmælis Gunnars, settu Gunna og Árni þessa vísu í afmæliskortið mitt.

Nú fyrsta árið flogið er

hjá frænda litla sæta.

Hann ætlar nú að una hér

og öðru ári mæti.


18.október 2008 áttum við mamma flug suður og svo flug til Danmerkur eftir viku heimsókn hjá pabba og ömmu og afa á Akureyri. Gunnar afi fannst mjög erfitt að kveðja eins og hinum og orti þessa vísu:

Víst mig gleðja ærslin ung

á þau veðja fyrst um sinn

að mér steðjar þrautin þung

þig að kveðja nafni minn. 


21.september 2008 var Siggi afi og Jóna amma að fylgjast með Gunnari í gegnum webcameruna. Þá kom Siggi afi með þessa vísu:

Gunnar er í banastuði

og vill nú bara leika sér

glaðbeittur með flottu snuði

flottastur af öllum ber.


Frá frænku í Kárdalstungu 7. apríl 2008

Gott er að vera amma og afi

og eignast nýja lífsins von,

Þú ert sannur gleðigjafi

Gunnar litli Hjálmarsson.

                              Sigrún Hjálmarsdóttir


8.mars 2008Þegar Gunnar Hólm kom norður á Akureyri í fyrsta skiftið samdi Gunnar afi þessa vísu handa honum:

Til Gunnars Hólms

Við þig kynni viljum hafa

um vanga þinn lék blær

er komst að finna ömmu og afa

anginn minn í gær.

Gunnar afi


Vísa til Gunnars Hólms 

Garpur fríður, kapp í kinn

kostir prýða nafna minn.

Æskan líður enn um sinn

elsku blíði drengurinn.

Með kveðju, Gunnar afi


Þegar Gunnar fæddist voru frænkur hans Elva Kristín og Telma Lind svo yndislegar að semja ljóð handa honum. Svo þegar Siggi afi og Eydís frænka komu í heimsókn til okkar í byrjun nóvember 2007 komu þau með ljóðin með sér á prenti :)

Gunnar Hólm Hjálmarsson

Gunnar litli sætur er

fer snemma á fætur.

mömmu hans og pabba ber

að hafa á honum gætur.

Höf. Elva Kristín frænka


Gunnar Hólm

Lítil gjöf frá guði

von mín og trú

kærleikur og ástúð

gjöfin varst þú


Svo tindrandi og saklaus

augun þín smá

svo gaman að vita

að lítinn frænda ég á


Öll mín ást blómstrar

ljómar og skín

skín svo bjart

frá mér til þín


Ó öll þín framtíð

svo björt fyrir þér

góð og blíð

hún framundan er


Svo elsku Gunnar Hólm

nú býð ég þig

velkominn í heiminn

og gangi þér vel

Höf. Telma Lind frænka