Erna Lilja Magnúsdóttir
Erna Lilja Magnúsdóttir
 
 
 

Ég er ennþá hérna ... og er að fara í sumarbústað!

Jæja, nú er pabbi loksins farinn að gera eitthvað hérna á síðunni hjá mér eftir alltof langa pásu. Nýjar myndir eru væntanlegar af mér og litla bróður mínum sem ég eignaðist fyrir 2 vikum síðan.

Það er búið að vera rosalega gaman hjá mér síðan Atli Viðar, litli bróðir minn, kom í heiminn. Mér finnst rosalega vænt um hann og ég hlakka mikið til þess að fara að leika við hann þegar hann er aðeins farinn að stækka.

Svo er ég að fara í sumarbústað á eftir með ömmu Möggu og afa Sissa þannig að það verður alveg rosalega gaman hjá okkur um helgina. Sjáumst seinna, bless bless!

7. April 2011 - 15:02



Athugasemdir

Anna frænka

Hæ hæ
Gaman að sjá nýju myndirnar af þér og Atla Viðari, litla bróður. Hann er svo heppinn að eiga svona stóra systir og gaman hjá þér að eiga lítinn bróðir sem þú getur kennt allt sem þú kannt.
Knús frá Önnu frænku

14. June 2011

Nafn


Texti