Erna Lilja Magnúsdóttir
Erna Lilja Magnúsdóttir
 
 
 

Er pabbi minn að klikka á þessu?

Það er nú heldur betur langt síðan eitthvað hefur gerst hérna á síðunni hjá mér. Ég hef enga betri afsökun en þá hversu hundlatur pabbi minn er og ég verð hreinlega að biðjast afsökunar á þessari leti í honum :)

En til ykkar sem hafið beðið þá eru loksins komnar nýjar myndir hérna inn og vonandi verður hægt að setja fleiri inn hérna á næstunni þó svo að þær verði kannski ekki endilega í tímaröð.

Það hefur heldur betur gerst mikið hjá mér undanfarna mánuði. Ég varð loksins 4 ára núna 16. nóvember og pabbi og mamma voru svo góð við mig að halda upp á afmælið mitt þann 20. nóvember. Við buðum fullt af skemmtilegu fólki til okkar og þetta var rosalega skemmtilegur dagur. Ég skemmti mér konunglega þó svo að ég væri með smá hita og væri soldið þreytt.

Svo er mamma mín með barn í maganum þannig að ég verð stóra systir bráðum eða á næsta ári, einhvern tímann í kringum afmælið hjá pabba og mömmu. Það er soldið skrýtið að mamma skuli vera með barn í maganum, borðaði mamma mín það nokkuð???

Allaveganna, til þeirra sem kíkið hérna reglulega inn haldið pabba mínum við efnið þá megið þið óhikað láta hann vita þegar þið saknið þess að sjá fleiri myndir hérna inni, hann er búinn að lofa mér að standa sig miklu betur í þessu öllu saman.

21. November 2010 - 15:16



Athugasemdir

Anna frænka

Mikð er ég ánægð með hann pabba þinn núna. Flottar myndir út flottu 4 ára afmæli þínu.
Knús á þig elsku Erna Lilja og takk fyrir skemmtilega dag. Þú ert orðin svo stór og flott stelpa.

21. November 2010

Nafn


Texti