

ég held að litli engillinn ætli að verða jafn ofvirkur og pabbi sinn og frænka sín sem er alveg að missa sig í ofvirkninni þessa dagana...
Vá hreyfingarnar mjög miklar á litla krílinu.. Það verður mjög mikill íþróttakappi í sér eða það held ég fer kannski í skólahreysti eins og frænka sín :P Þá er ég að tala um mig :)... En já ég var hérna númer 500 geggt stolt:D En Júlí ég sé þig seinna kannski næstu helgi þar sem ég er að fara suður að leika mér með Tunglinu(féló)
Bæbæ
hæhæ.. ákvað að kvitta fyrir innlitið:)
en hvað varðar hikstan að þá spurði ég einmitt líka þessarar sömu spurningar því Elísa var alltaf með hiksta og kúlan á fullu;) en gaman að heyra að krílið er búið að skorða sig, allt bara að verða tilbúið;)
en farðu vel með þig og njóttu þess að láta stjana við þig á meðan þú ert í firðinum:)
kv. Sylvía, Uni og Elísa Dröfn
Hæ sæta:) til hamingju með bumbubúann, líst voða vel á þig svona með bumbuna útí loftið. Held að ég verði að kíkja næst þegar ég er á norðurleið.
Kv. Matthildur
Sæl elskan mín. Ég er komin heim og loksins í nógu hraða tengingu til að geta skoðað nokkuð á netinu. Rosalega er gaman að lesa síðuna og geta fylgst með þér hérna megin á landinu. Ég verð eiginlega að kíkja ú heimsókn og sjá bumbuna, en allavega gangi þér sem best og ég held áfram að lesa um þróun bumbunnar. bestu kveðjur Ástý
Hehe ég er ekki frá því að búmban sé orðinn minni hún er allavegana búin að breytast... þannig að ég held að það sé ekki bara þú...
Kv. Katrín góðasta frænka...
hæ amma Didda var að skoða vögguna og segir að þetta sé systir aldarinnar að gefa svona flotta vöggu, og Erla dúkka er alveg eins og Júlí.
kv, mamma og amma
Hæ hæ! Það á sko ekki eftir að fara illa um litla gullið í fínu vöggunni frá uppáhalds frænkunni =o) Og vagninn ekkert smá flottur líka. Nú er bara eftir því að krílið láti sjá sig, sem verður vonandi um leið og skólatörnin er búin ;)
Vona að þið mamma hafið það gott á meðan pabbi er í síðasta skipti á sjó :)
Hæ frænka, vá bumba! Hlakka til að sjá litla frændsystkinið:) Var einmitt að eignast frænda í hinni ættinni i gærmorgun, glæsilegur alveg hreint:)
hafið það gott, bið að heilsa heim á ólafsfjörð!
kveðja, vala frænka að vestan
Hæhæ rakst á síðuna og vildi bara óska ykkur innilega til hamingju með bumbukrílið..vonandi gengur allt vel hjá ykkur.
kv Inga Huld.
hæ þú ert nú alveg ferleg að kenna mér alfarið um skrópið þitt. Vaggan er rosaflott ég vona að Katrín Sif fari nú að slaka á innkaupaæðinu. Kveðja frá mömmu og öllun liðinu
Hæ litli bumbubúi... gaman að fylgjast með síðunni ykkar og sjá hvað mamma þín (og kannski pabbi líka) er dugleg að setja inn myndir... fínt fyrir svona "úthverfisfólk" sem sér bumbuna alltof sjaldan;)
Gangi ykkur vel á síðustu vikunum.. Maja og strákarnir hennar;)
Hæhæ:) við skruppum í smá heimsókn til að komast á netið og kíkja á heimasíðuna þína, mamma fattaði allt í einu að hún var ekki enn búin að skoða:) en geggjað að mamma þín (og pabbi;) eru svona dugleg að gera síðu, það er svo gaman að geta lesið og skoðað alltaf myndir þrátt fyrir að við verðum væntanlega daglegir gestir hjá ykkur;)
en við vorum að skoða myndirnar og lesa smá í dagbókinni og mamma mín er alveg viss um að þú sérst strákur eftir að hafa lesið um að þú sért með svona hægan hjartslátt;)
en við verðum að fara kíkja á ykkur í smá heimsókn, ætluðum reyndar að koma í gær en þá var bara enginn heima:/
en okkur hlakkar alveg rosalega til að fá þig í heiminn og fá að knúsa þig og kjassa lilli;)
skilaðu kveðju til mömmu þinnar og segðu henni að fara dríbba sig í að koma að heimsækja okkur:)
Gaman að sjá hvað þú ert dugleg að setja inn myndir. Vildi bara kvitta fyrir komu mína hingað á síðuna :)
kv. Halla Ýr
þið eruð svo mikið æði ég er svo heppin að vera skyld ykkur að þið trúið því ekki hlakka líka svo til þegar þessi litli engillkemur í heiminn til að ég geti nú farið að drekra við hann fyrir alvöru og stússast aðeins í honum veit ekki hvernig ég á eftir að verða daginn sem þú kemur í heiminn á örugglega eftir að fara yfir um og skilja allar búðir eftir tómar þegar ég labba þaðan út og mæti svo bara með flutningabíl til þín með allt dótið hehe... Elska ykkur...
Halló, rosalega flottar myndir og alveg æðislegt að geta fylgst svona með :) Gangi þér bara allt i haginn :)
Til hamingju með síðuna :) Flottar myndir úr sónarnum!
já nú er kúlan sko orðin myndaleg!! Gaman að fá að fylgjast með :)
Hæ litla bumbukríli.
Fín síða sem mamma þín er búin að gera... verður gaman að fylgjast með henni... og þér þegar þú kemur í heiminn... ;)
Kveðja frá Dalvík
Hæ flott síðan hjá þér Júlí... Ég er farin að hlakka til að litla krúttið komi í heiminn... Ég vona að þú verðir mjög dugleg að setja inn á þessa síðu svo maður hafi nú i etthvað að gera:P
En sjáumst systa:D
Hæ!
Ótrúlega krúttleg mynd á forsíðunni. Þetta lítur allt mjög vel út og ekki verður verra þegar allt fer að fyllast af myndum í apríl :-)
Við bíðum spennt.
Takk fyrir myndirnar sem þú sendir mér, Júlí mín. Þær voru alveg æðislegar.
knus og kram og hafið það þrusugott
Ebba Siggó
hæ sæta litla systurbarnið mitt vá hvað ég get ekki beðið eftir því að þú komir í heiminn... og vonandi verður þægt við mig þá svona þar sem þú hættir alltaf að sparka þegar að ég kem hehe... geggjuð síða sem mamma er að gera...
Kv. stór bilaða frænka þín sem að telur niður dagana til komu þinnar...
Halló sæta krútt!!
Ekkert smá flottar fyrstu myndirnar af þér, það er alveg greinilegt að hér er myndarbarn á ferð!!
Hlakka til að sjá meira og ekki síst að hitta þig í eigin persónu, það fer nú að styttast í það =o) Eins og tíminn líður nú hratt!
Bestu kveðjur til ykkar mömmu þinnar :)
Agnes Bj.