Erla Antonía Hjörleifsdóttir
 

Gullkorn

Amman spurði Erlu hvað hún héti og hún svaraði að hún héti Erla, amman spurði þá hvort hún héti ekki eitthvað meira en Erla, Erla svaraði þá að hún héti Erla afi (ekki lengi að átta sig á því að hún heiti í höfuðið á afa sínum, hún er svo skýr þessi dama ;) - júlí 2009)

  ---ooo0ooo---

Erla var að hætta með bleyju og var henni því sagt að hún yrði að láta mömmu sína vita þegar hún þurfti að pissa og hún fengi verðlaun ef hún myndi pissa í klóið. Erla tók þetta mjög alvarlega og tilkynnti mömmu sinni að hún þyrfti að pissa á u.þ.b. 5-10 mínútna fresti, en þrátt fyrir allar tilkynningarnar kom aldrei neitt piss, litla daman reyndi þá að svindla aðeins með því að segja bara „piss piss“ en mamman lét nú ekki blekkjast af því ;) (júlí 2009)  

  ---ooo0ooo---

Erla var að ræða við Katrínu á Ólafsfirði er pabbi hennar var á sjó
Erla: Eda shó (Erla á sjó)
Katrín: ætlar þú að fara út á sjó
Erla:
Katrín: Hvað ætlar þú að gera út á sjó?
Erla: Ná hana pabba(Ná í pabba)
Algert krútt ætlaði bara að fara út á sjó og ná í pabba sinn  - 9. ágúst 2009

   ---ooo0ooo---

Litla daman var að tala við mömmu sína í símann, en sagði voða fátt, mamman bað dömuna þá að segja sér eitthvað sniðugt ,,Sniðugt" sagði þá litla daman og lét þar við sitja   c") - (2. september 2009)

  ---ooo0ooo---

Feðginin sóttu móðurina á flugvöllinn og þegar pabbin er að keyra heim segir Erla: hratt,
mamman: Er pabbi að keyra hratt?
Erla: já
Mamman: Þegar pabbi keyrir hratt segirðu þá ekki nei pabbi það má ekki keyra hratt?
Pabbinn upplýsti þá móðurina að Erla fyndist voða sport að keyra hratt og myndi frekar hvetja hann en hitt. Stuttu síðar er fjölskyldan að bruna til Ólafsfjarðar og pabbinn tekur fram úr bíl á leiðinni og gefur þess vegna í, þá heyrist úr aftursætinu: pabbi má ekki keyra hratt!, þetta endurtók daman um 3 sinnum á leiðinni svo ljóst er að ekki þarf að hafa áhyggjur af hraðakstri föðurins, þar sem litla daman passar upp á að pabbinn hagi sér vel í umferðinni ;)  - sept. 2009

   ---ooo0ooo---

Þegar mamman var að klæða Erlu, þá byrjar Erla að kúgast svo mamman hleypur með dömuna inn á bað og segir henni að gubba í klóið, litla skvísan gubbar í klóið, svo þegar hún er búin segir hún: ,,Erla dugleg gubba  kóið" Þar sem Erla var nýlega hætt með bleyju voru foreldrarnir duglegir að hrósa henni ef hún kúkaði eða pissaði í klóið og henni hefur því fundist viðeigandi að hún fengi hrós fyrir að gubba í klóið :) - (14. sept. 2009)

   ---ooo0ooo---

Mamma: Hver er mesta dúllan í öllum heiminum
Erla: Ég
Mamma: Það er rétt hjá þér, en hver er besta mamman í heiminum
Erla: mmm, pabbi
Algjör grislingur, pabbinn er sko besta mamman í heiminum ;) - 2. okt. 2009

   ---ooo0ooo---

Pabbi: Erla villtu lýsi?
Erla: já
Pabbi: komdu þá
Erla: É oma ekka mín (Ég er að koma elskan mín)
Algert krútt, kann sko að bræða mann - 27. okt. 2009

  ---ooo0ooo---

Erla var að tala við ömmu sín í símann
Erla: ka þú gea amma mín? seðð mér (Hvað ertu að gera amma mín?  segðu mér)
Ekkert smá fullorðingsleg pæja - nóv. 2009

   ---ooo0ooo---

Erla og mamma biðu í bílnum á meðan pabbinn dældi bensíni á bílinn Erla pældi mikið í því hvað pabbi væri að gera og spyr svo allt í einu: má ég keyra mamma?
Mamman: ha villt þú keyra???
Erla: Já bara prófa
Erla hugsaði augljóslega að fyrst mamman gæti keyrt þá hlyti hún að geta það líka ;) - 19. feb. 2010

 ---ooo0ooo---

Erla var að tala við mömmu sína á Skype í tölvunni og hleypur svo í burtu og kallar svo ,,mamma reyndu að ná mér" - dúllan ekki alveg að fatta að þó hún sjái mömmu sína í tölvunni þá er mamman samt víðs fjarri og getur því ekki farið í eltingarleik :) - 27. mars 2010

  ---ooo0ooo---

Erla vildi að amma hennar gæfi henni nammi og sagði við ömmu sína ,,ég fá svona" og bendir á nammi. Amman spyr þá af hverju hún eigi að fá svona, ,,ég verða stóra systir og fá lítinn bróa" - hehe já maður á semsagt rétt á að fá nammi ef maður er að verða stóra systir og að fara að eignast lítinn bróður - 5. maí 2010

 ---ooo0ooo---

Erla var út á Ólafsfirði í heimsókn hjá ömmu sinni Guffu. Guffa var að prjóna.
Erla: má ég líka póna?
Guffa: þú ert of lítil, ég skal kenna þér að prjóna þegar þú verður 6 ára
Erla: ég er 6 ára
Guffa: nú hvenær varðst þú 6 ára?
Erla: uuu á fimmtudaginn
Erla er sko með svör við öllu og kann að hagræða staðreyndum eftir hentisemi ;) - maí 2010

 ---ooo0ooo---

Erla fékk rosalega flotta og risastóra pony gasblöðru frá ömmu sinni á 17. júní, þegar við vorum að fara með hana upp í bústað þá þorði ég nú ekki annað en að halda í blöðruna svo blaðran stingi nú ekki af, en þá sagði Erla: ,,nei mamma ekki, hann getur sjálfur hann er með vængi" - 17. júní 2010 

 ---ooo0ooo---

Við mæðgur vorum að ræða um strákalinginn sem leynist í bumbunni, Erla sagði þá að hún væri líka með litla barn í sinni bumbu, mamman spurði þá hvort hún væri með strák eða stelpu í sinni bumbu, Erla sagðist þá vera með litla stelpu í sinni bumbu ;) - 22. júní 2010

---ooo0ooo---

Í kjölfar umræðna um að nú yrði Erla að fara að sofa aftur í sínu rúmi segir Erla allt í einu upp úr þurru: ,,litla barnið verður að prófa að sofa í mínu rúmi" mamman spurði þá hvar Erla ætlaði þá að sofa og Erla svaraði þá: ,, ég passa bara þitt rúm" - Erlu fannst augljóslega góð lausn að láta litla barnið bara sofa í sínu rúmi og þá gæti hún sofið áfram hjá mömmu sinni og pabba ;) - 22. júní 2010 

---ooo0ooo---

Erla: Þegar pabbi kemur heim af sjónum þá ætlar hann að kaupa rautt mótorhjól handa mömmu og gult mótorhjól handa Katrínu
Veit ekki alveg hvaðan barnið hefur þessa mótorhjólasýki ;) - 23. júní 2010

---ooo0ooo---

Erla var að fara að pissa hjá Katrínu og þurfti endilega að fara á hlaupahjólinu alla leið inn á bað svo mamman spurði hvort hlaupahjólið þyrfti líka að pissa, Erla svaraði þá: ,,nei það er ekki með rass" - Erla augljóslega með þetta allt á hreinu ;) - 24. júní 2010

---ooo0ooo---

Erla var komin inn í rúm og átti að fara að sofa, þegar hún kemur allt í einu fram alveg skellihlæjandi, mamman spyr þá hvað sé svona fyndið, Erla: ,, ég prumpaði í herberginu mínu" 
Það vantar ekki húmorinn í barnið alveg að farast úr hlátri yfir að hafa prumpað í herberginu sínu ;) - 24. júní 2010

---ooo0ooo---

Erla: má ég fá svona?
Mamma: nei ekki núna
Erla: mig langar að kyssa þig - svo kyssti hún mömmu sína - má ég núna fá svona?
Daman kann sko alveg að bræða mann {#emotions_dlg.wink} - 6. júlí 2010

   ---ooo0ooo---

Erla var í baði og var búin að vera dágóða stund
Mamma: Erla farðu nú að koma upp úr
Erla: nei mamma ég er ennþá skítug
Það vantar sko ekki að barnið hefur svör við öllu ; ) hehe fullkomin afsökun fyrir því að þurfa að vera lengur í baði  - 23. september 2010

   ---ooo0ooo---

Mamma var að gefa litla bróa að drekka þegar Erla spyr hvort hún megi gefa litla bróa að drekka
Mamma: Getur þú gefið litla bróa að drekka?
Erla lyftir upp kjólnum sínum og bendir á geirvörtuna: Já sjáðu ég er með svona
Alger dúlla vill fá að taka þátt í öllu sem tengist litla bróa hennar - 29. sept. 2010

   ---ooo0ooo---

Mamma: Gjörðu svo vel prinsessan mín
Erla: Ég er ekki prinsessa
Mamma: Nú?
Erla: Ég er Erla Antonía Hjörleifsdóttir, en þegar ég er í kjól þá er ég prinsessa
Litla daman með skilgreiningarnar á hreinu ;) - 30. september 2010

 ---ooo0ooo---

Við vorum að passa litla guttann Katrínar og var hann eitthvað að væla
Erla: má ég gefa honum að drekka?
Mamma: hvernig ætlar þú að gefa honum að drekka?
Erla: úr brjóstinu
Mamma: Nei þú getur ekki gefið honum að drekka úr brjóstinu, bara mömmur geta það, þegar þú verður stór og verður mamma þá getur þú gefið litla barninu þínu að drekka úr brjóstinu
Erla: já og litla bróður Stefáns ;) - 4. október 2010

---ooo0ooo---

Þessa dagana er rosalega mikið sport hjá Erlu að sjá fólk fara svo hún má varla vera að því að kveðja hér inni heldur hleypur beint út í glugga þegar hún sér fararsnið á fólki, svo kallar hún bless út um gluggann og stundum fylgir "takk fyrir komuna" eða "viljiði koma í heimsókn aftur aftur aftur" {#emotions_dlg.cool} Um daginn vildi það svo til að hún var ein inni, en Hjölli var á leiðinni heim og ég á leiðinni út og Daníel svaf úti í vagni, Erla sagðist þá vilja sjá mig úti svo ég fór og stóð úti á plani að bíða eftir Hjölla og Erla stóð í glugganum og fylgdist með svo kallar litli gormurinn: "Ég er ein heima" {#emotions_dlg.wink} 
hehe hefði vel mátt misskilja og hefði mátt vænta heimsóknar frá barnaverndarnefnd ef einhver hefði gengið framhjá á þessari stundu ;) - 2. nóv. 2010

---ooo0ooo---

Erla kom heim úr leikskólanum einn daginn og sagði: ,,mamma má ég . . .  ó ég er í pilsi"
Erla biður alltaf um að fá að fara úr buxunum og í pils þegar hún kemur heim af leikskólanum - 22. nóv. 2010

---ooo0ooo---

Erla: mamma villtu koma og lita með mér?
Mamma: nei ekki núna
Erla eftir smá stund: mamma þú mátt ekki lita með mér, ég ætla bara að vera ein að lita
Litli snillingurinn farin að reyna að beita mömmu sína öfugri sálfræði til að fá hana til að lita með sér, þar sme það hefur ekki virkað fyir hana ða kvarta yfir því að hún sér bara EIN að lita, en hún virðist telja það vera hópafþreyingu ;) - 22. nóv. 2010

 ---ooo0ooo---

,,mamma ég er bara með pínulítil brjóst" Erla hafði voða áhyggjur af því hvað hún væri með lítil brjóst og eftir að mamman útskýrði að það væri eðlilegt fyrir svona litla stelpu sagðist hún ekki vilja vera svona, en varð sáttari þegar mamman sagði henni að hún fengi stærri brjóst þegar hún yrði eldri - des. 2010.

---ooo0ooo---

Við mæðgur vorum búnar að dúlla við að pakka inn jólagjöfinni Hjölla, við vorum voða sniðugar og settum tölvuleik í vasann á úlpunni sem við ætluðum að gefa honum og pökkuðum henni svo ofan í kassa með fullt af kókdósum til að þyngja kassann. Pabbinn kom svo heim og þá sagði litla daman sem getur augljóslega ekki átt leyndarmál: Pabbi ætlarðu ekki að finna úlpuna þína og kókið? Við matarborðið fór hún svo að tala um leyndarmálið í vasanum á úlpunni hans, en til lánsins þá var Hjölli alveg grunlaus og skildi ekkert um hvað hún var að tala ;) desember 2010

---ooo0ooo---

Mamman æsti sig við Erlu þegar hún sá að hún var enn á brókinni þrátt fyrir að mamman væri búin að reka á eftir henni í rúman hálftíma að fara að klæða sig. Æsingur móðurinnar hafði þó ekki meiri áhrif á Erlu en svo að hún spurði undrandi, ,,Af hverju ertu með læti?" - Erla lætur augljóslega ekki smá æsing í móðurinni mikið á sig fá ;) - 13. jan. 2011

---ooo0ooo---

Erla: má ég fara í kjól?
Mamma: nei farðu í íþróttagallann sem þú varst í í gær
Erla: þá verð ég ekki skvísa, þá verð ég bara strákur!
Það er sko ýmis rök notuð fyrir því að hún eigi alltaf að fá að vera í kjól eða pilsi ;) Þess má geta að gallinn var fjólublár og bleikur - 19. jan. 2011

---ooo0ooo---

Erla: má ég horfa á teiknimynd?
Mamma: já inni í þínu herbergi
Erla: Nei horf þú inni í þínu herbergi
Mamma: Nei ég er að horfa hér
Erla: Ef þú horfir inni í þínu herbergi þá skal ég leika við þig
Mamma: Ha?! villtu bara leika við mig ef ég horfi á sjónvarpið í mínu herbergi, þannig að ef ég horfi ekki á sjónvarpið inni í herbergi villtu þá ekki leika viðmig?
Erla: nei, annars verð ég ofboðslega reið
Daman að reyna að stjórnast í mömmu sinni ;) - 14. febrúar 2011

 ---ooo0ooo---

Erla: Ég vil ekki fara á leikskólann
Mamma: Af hverju ekki? Hvað ætlarðu að gera í staðinn?
Erla: Uhmmm skreyta jólatréð og opna gjafirnar . . .
Mamma: En við gerum það bara á jólunum
Erla: Bíddu nú við! Eru ekki jólin núna???
Daman ekki alveg með þetta á hreinu ;) - 27. febrúar 2011

---ooo0ooo---

Erla rakst á dagskránna sem var opin á eldhúsborðinu og á opnunni var auglýsing frá Kristjánsbakaríi með myndum af bollum og bolla af heitu súkkulaði. Erla benti þá á myndina og sagðist vilja svona (höfðum farið á bolluhlaðborðið daginn áður) ég sagði henni þá að við ættum engar bollur, en amma hennar Guffa ætti örugglega bollur, en Erla var að fara þangað í salkjöt og baunir með pabba sínum síðar um daginn. Erla var nú eitthvað vantrúuð á það og sagði að amma hennar kynni ekki að gera svona, ég mótmælti því, en náði þó ekki að sannfæra dömuna. Daman tók því dagskránna með sér til ömmu sinnar og þegar þangað kom sýndi hún ömmu sinni myndina og spurði hvort hún gæti gert svona, amman hélt það nú og fór að taka til bollur handa dömunni, daman sagðist þá líka vilja kakó, amman gerði því kakó handa dömunni, Erla benti þá á myndina og sagði að það væri ekki eins, en á myndinni var rjómi í kakóinu og súkkulaðispænir á rjómanum svo amman mátti sko hafa sig alla við að verða við kröfum dömunnar og gera þetta jafn flott og á myndinni í dagskránni - já litla daman veit sko alveg hvað hún vill ;) - 8. mars. 2011

---ooo0ooo---

Erla: gaga gaga gú
Mamma: hvað var nú þetta?
Erla: íslenska
Mamma: nú og hvað þýðir þetta?
Erla: að það á að flýta sér
Spurning að prófa þetta nýyrði næst þegar litli lengipúkinn er ekki nógu snögg ;) - 26. mars 2011

---ooo0ooo---

Mamma: Erla farðu og snýttu þér, þú ert með mikið grænt hor
Erla: nei ég er með gult hor
Litli ormurinn gengur svo langt í því hvað er stráka/stelpu að hún getur ekki einu sinni verið með hor í "stráka"lit! - 26. mars 2011

---ooo0ooo---

"Daníel gerð-etta"
Já daman var sko ekki lengi að byrja að reyna að kenna litla bróður um, bara verst að mamman tekur hana ekki sérstaklega trúanlega, þar sem henni finnst verulega ólíklegt að sonurinn sem ekki kann að skríða sé farinn að þvælast um húsið og drasla til, týna hlutum eða skemma ;) - mars 2011

 ---ooo0ooo---

Erla: Mér finnst þessi kjóll rosalega skemmtilegur, má ég sofa í honum?
Mamma: nei þetta er ekki náttkjóll
Erla: veistu hvað ég vil að hann heiti, ég vil að hann heiti Dagur-Náttkjóll 
Erla er sko með svör við öllu, breyta bara nfaninu og kjólnum og voila, hann er orðinn að náttkjól og dagkjól ;) - 28. júní 2011

---ooo0ooo---

Við vorum að keyra norður og keyrum fram hjá löggunni og Erla fer að spyrja hvað löggan sé að gera, ég útskýri fyrir henni að löggan sé að reyna að passa upp á að það sé ekki verið að keyra of hratt og segi að löggan stoppi þá sem keyra of hratt og spyrji þá af herju þeir hafi verið að keyra svona hratt og hvað hún haldi að þeir segir þá.
Erla: ,,dóttir mín sagði mér að gera þetta" 
Erla á það til að hvetja okkur til hraðaksturs, en líkt og Brynhildur var þá vill hún alltaf vera fyrst og er því ekki vel við að það séu aðrir bílar á undan okkur ;)

---ooo0ooo---

 Daníel var að byrja hjá dagmömmu og fannst Erlu það mjög áhugavert og velti ýmsu fyrir sér í tengslum við það.
Erla: er dagmamma bara á daginn?
Mamma: já
Erla: er þá líka til nóttmamma?

 ---ooo0ooo---

Feðginin fóru að veiða og þegar þau komu til baka var Erla að segja mömmu sinni frá veiðunum:
Erla: við veiddum einn fisk og hann var LIFANDI! 

---ooo0ooo--- 

Pabbi: Erla ertu búin að setja skóinn út í glugga?
Erla: já fyrir löngu
Pabbi: en Daníel er hann búinn að setja skóinn út í glugga?
Erla: nei
Pabbi: á Daníel ekki að setja skóinn út í glugga?
Erla: Nei hann á engann glugga!
Það er bara einn gluggi í barnaherberginu og Erla sefur undir glugganum í barnaherberginu - 11. des. 2011

---ooo0ooo--- 

Erla var að velja sér föt fyrir jólaballið, en vildi ekki fara í ermarnar sem voru í stíl við kjólinn svo mamman sagði að þetta væru afmælisermar til að freista þess að heilla dömuna, en Erla neitaði og sagði ða þetta væru spariermar, mamman var ekki ða samþykkja það svo Erla sagði voða hneyksluð: En þetta eru mín föt!
já mamman á ekkert að vera að skipta sér að því hvað er afmælis- eða spari, því þetta eru hennar föt mikið rétt :) - 14. des. 2011

---ooo0ooo--- 

Erla: mamma sérðu fiðrildið, sem ég teiknaði. Finnst þér það ekki fallegt?
Mamma: jú það er fínt, en er það ekki pínu skrítið í laginu?
Erla: laginu? Hvaða lagi? Þetta er ekki útvarp!

---ooo0ooo--- 

 Erla: mig langar í systur, ég vil eiga tvíburasystur
Erlu finnst leiðinlegt þegar vinkonurnar þurfa að hafa heim, svo hún hefur séð það út að það væri best að hafa bara vinkonu á heimilinu :) - 30. maí 2012

---ooo0ooo--- 

Erla tíndi blóm og færði ömmu sinni, amman þakkaði fyrir og sagðist ætla að setja þau í vasa, Erla varð frekar hissa og hugsi yfir þessu og þegar amman kom til baka með vasa til að setja blómin í þá var Erla að fara að setja blómin í vasann á buxunum sínum - smá misskilningur ;)

---ooo0ooo--- 

Erla: við förum i bæinn á morgun af því að Akureyri á afmæli
ég: já en veistu hvað Akureyrarbær er gamall?
Erla: nei
Ég: hann er 150 ára, það er rosalega mikið
Erla: Er það eins og pabbi er gamall? 

28. ágúst 2012

---ooo0ooo--- 

Þessa dagana sefur Erla ekki með bangsa heldur mynd í ramma af henni, Stefáni og ömmu Gretu :)
28. september 2012 

---ooo0ooo--- 

Við vorum að horfa á týndu kynslóðina, þar var hrekkur á Hamborgarafabrikkunni svo Áslaug var í sjónvarpinu. Þegar þátturinn er búinn spyr Erla hvers vegna ég hafi ekki kallað "Halló Áslaug" þegar Áslaug var í sjónvarpinu. Við erum sem sagt búin að tala ansi mikið við Hjölla í tölvunni í gegnum Skype (Hjölli er að vinna í Svíþjóð) svo Erla hefur eflaust reiknað með að við gætum allt eins talað við Áslaugu í sjónvarpinu ;) - okt. 2012

---ooo0ooo--- 

Erla dúlla var í dúkkuleik og spurði hvort það væri ekki alveg hægt að eiga 4 börn, ég sagði henni að það væri sko alveg hægt, amma hennar Greta ætti 4 börn. Erlu fannst það voða merkielgt svo ég sagði henni að Helga frænka hennar ætti 5 börn og að amma Didda ætti 5 börn og amma Binna hefði átt 6 börn. Erlu fannst þetta mjög merkilegt allt saman en sagði svo að 4 börn væru sko alveg nóg ;) - okt. 2012

---ooo0ooo--- 

Erla byrjaði daginn á ansi háfleygum spurningum eins og: 
Hvað gerist ef jörðin snýst við?
Hvenær förum við í geimflaug?
Af hverju mega litlir ekki fara í geimflaug?
Er Jesú til?
Mig langar að fara í geimflaug og sjá englana
Já mömmur þurfa sko að hafa svör við öllu 

22. október 2012

---ooo0ooo--- 

Eftir fyrstu skólaheimsóknina varð Erla mjög spennt að byrja í skólanum og hóf því að pakka í skólatöskuna og spurði svo reglulega: Má ég setja ilmvatn í skólatöskuna. . . . en varalit . . . . en bursta og spennur . . . . en armband og fleira í þeim dúr 

Veit ekki alveg hvað hún reiknar með að gera í skólanum - 22. maí 2013

---ooo0ooo--- 

Erla var blómastelpa í brúðkaupinu Katrínar svo Katrín keypti á hana rosa flottan kjól og ég keypti nýja spariskó og fína spöng við. Erla segir svo einn daginn við mig: "þegar við giftum okkur þá ætla ég að kaupa kjól og fína skó og spöng og láta Stefán vera í" ;)

júlí 2013

---ooo0ooo---

Erla og Úna
Amma Greta gaf Erlu lítinn bangsa sem hlaut nafnið Úna, Erla varð strax mjög hrifin af bangsanum og sagði að hún væri bara nýfædd svo það þyrfti að passa hana vel. Hún til dæmis varð brjáluð við mig þegar ég setti Únu og Auja ofan í tösku þegar við vorum að fara frá Ólafsfirði, því þá gátu þau ekki andað svo það varð að bjarga þeim úr töskunni.

Þegar við erum að græja okkur fyrir utanlandferð uppgötvast að Úna og Auji höfðu orðið eftir í bílnum hjá ömmu hennar og afa og voru því komin til Ólafsfjarðar. Erla hafði miklar áhyggjur af þessu, því Úna og Auji urðu að koma með til Spánar.
Ég: geturðu ekki bara tekið einhvern annan bangsa með til spánar?
Erla: nei hún er uppáhaldsbansinn minn
Ég: geturðu ekki bara tekið þann sem er í næstmestu uppáhaldi?
Erla: Það eru allir hinir og enginn vill koma með nema kanínan, en mamma hennar leyfir henni það ekki!

Erla ræðir svo við afa sinn um þetta
Afi Toni: Geturðu ekki tekið annan Auja með í staðinn?
Erla: Nei því þá vilja allir koma með!

Erla hafði svo áhyggjur af Auja og Únu  og að þeim yrði kalt í bílnum, en var þá sagt að afi hennar hefði verið búin að taka þau inn og þau svæfu á náttborðinu hans. Erla var samt ekki róleg og hafði áhyggjur af því hver ætti að passa þau þegar amma og afi færu eitthvað út, svo hún fékk að hringja í afa sinn og bað hann um að setja alltaf stóran bangsa hjá Únu til að passa hana þegar hann færi eitthvað út. 

Þetta reddaðist samt fyrir rest og Auji og Úna komust til Akureyrar áður en við lögðum af stað svo amma og afi sluppu við að passa hina nýfæddu Únu og Auja á meðan við vorum úti ;)

júlí 2013

 ---ooo0ooo--- 

---ooo0ooo--- ---ooo0ooo--- ---ooo0ooo---