

HRÚTURINN
21. mars – 19. apríl
Hugrakkur - Orkumikill - Tryggur
Börn í hrútsmerkinu eru mjög orkumikil og hafa því ávallt eitthvað fyrir stafni, barn í hrútsmerkinu er því alger orkubolti og skýst hingað og þangað og er alltaf að og ekki hægt að ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Foreldrar barna í hrútsmerkinu geta því búist við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.
er tilfinninganæmur, siðfágaður, iðinn og fullkominn vinur.