

Hæhæ
Innilega til hamingju með prinsessuna. Ofboðslega falleg litla snúllan =) Biðjum að heilsa og vonandi gengur foreldrahlutverkið vel ;)
Kv Kristín Margrét og Tanja Dögg
Litla rúsína...:)
Vorum bara að skoða nýjustu myndirnar af ofsa sætu:)
Bestu kveðjur frá okkur..
Hæ elsku litla fjölskylda og innilega til hamingju. Vá hvað þú ert gullfalleg stúlka og ég verð að fara að kíkja á ykkur. Vonandi hafið þið það rosalega gott, einhvernvegin efast ég ekki um það. Hlakka rosa til að sjá ykkur, förum að birtast í heimsókn, Kær kveðja, Dóra
Falleg síða og falleg stúlka. Svo slétt og fín og mannaleg. Innilegar hamingjuóskir til foreldranna :)
Hæ hæ elsku litla frænka, þú ert svooo mikil dúlla og mikið draumabarn sem bara sefur og sefur, þó sumum finnist þú sofa full mikið (nefni engin nöfn).Litli prinsinn á þessu heimili er allur að róast og farinn að taka langa dúra. Sé ykkur kannski á morgunn. Bless bless, þín ömmusystir.
Júlí og Hjörleifur innilegar hamingjuóskir með dóttur ykkar,hún er ekkert smá sæt og bara strax komin með sterkan svip af ættinni mömmu sinnar :).
Bestu kveðjur Kristín (systir Sigrúnar)
hæhæ alveg get ekki hætt að skoða myndirnar en ég er ekki frá því að hún er nú aðeins farin að líkjast okkur sisturnum aðeins sá alla vegana eina mynd þar sem mér hreinlega fannst þetta bara vera þú eða áslaug... hehe... bara gaman kannski fáum við að eiga eikkað í henni eftir allt saman hehe... en hún er nú samt alveg fallegasta stúlka sem ég hef séð þar til ég eiginast eina þá verður hún númer 2... hehe... hlakka til að sjá ykkur kem heim á föst með flugi hehe... get hreinlega ekki beðið að sjá svipin á Júlí þegar ég mæti með stóru töskuna fulla af fötum á gelluna hehe...
Við mæðgur liggjum núna á barnaneti og skoðum litlu krílin:)
Svo sæt, algjör rúsína!!
Kemst ekki hjá því að öfunda ykkur "smá" :)
knús frá okkur :)
Innilega til hamingju með litlu fallegu stúlkuna ykkar Júlí mín og Hjörleifur sú er aldeilis efnileg og lík báðum foreldrum að mér finnst.Vona að allt gangi áfram vel hjá ykkur öllum og sendi
ykkur góðar kveðjur frá Ingu langömmusystur.
Til hamingju með þessa fallegu stúlku:) Hafið það sem best.
Kv Katrín
P.s. smá uppástunga á nafni, hvernig væri að skíra hana Katrínu í höfuð á móðursystur hennar;) Svo eigum við Júlí auðvitað sama afmælisdag, hahaha
Bara kvitta fyrir innlitinu, gaman að skoða myndir af litlu famelíunni :)
Mikið rosalega er daman myndarleg, alveg einstaklega fallegt barn. Til hamingju með allt, ég verð svo að kíkja á ykkur, komum eftir 20.apríl í góða heimsókn :)
Gaman að fylgjast með ykkur, sæta fjölskylda.
Vildi bara senda kveðju þar sem ég er alltaf að vafra hérna um þegar ég sit við tölvuna.
Kveðja,
Eva
Til hamingju með dótturina, hún er rosa sæt og mikið krútt.
Kveðja, Ásta frænka.
Ég varð að kasta smá kveðju á ykkur hérna. Elsku Hjölli minn og Júlí, innilega til hamingju með litlu fallegu prinsessuna, hún alveg rosalega mikið krútt. Gaman að fylgjast með ykkur hérna :) Hafið það sem allra best og farið vel með hvort annað. Bróðir minn var að eignast strák með Helgu sinni á föstudaginn langa, hann var 16,5 merkur. Knús Laufey
Jiii, hvað daman er myndarleg þegar hún er svona vel vakandi :) Algjört bjútíqueen! Sérstaklega á forsíðumyndinni... mér finnst hún æði :) Ætla að reyna að kíkja á ykkur sem fyrst, maður er orðinn svo spenntur að sjá gelluna =o)
Þú ert nú meira krúttið litla stóra prinsessa :)
Það heyrist bara "kling,kling,kling" í mér þegar ég skoða myndir af þér sæta.. hehe :)
Foreldrarnir mega vera mjög stoltir af þér, þú ert yndisleg.
Vonandi sér maður ykkur einhverntíman :)
Kv. Hanna stella og Líney mist.
Elsku Júlí og Hjölli!
Innilega til hamingju með litlu/stóru stelpuna. Hún er auðvitað gullfalleg og fullkomin. Gangi ykkur vel í nýju hlutverkunum, Bibbi og Gulla.
Júlí mín.Ég óska ykkur Hjörleifi innilega til hamingju með stóru fallegu stúlkuna ykkar.Vona að hún verði vær og góð og allt gangi vel hjá ykkur.Kveðja Lóló frænka.
innilegar hamingjuóskir með litla kraftaverkið! Hún er undurfögur snúllan=) finnst ég nú bara hafa frétt það í gær að "þið" væruð ólétt;-) gangi ykkur vel í þessu besta hlutverki í heimi!!
Flottar myndirnar hjá ykkur... Þið eruð rosalega dugleg að setja myndir af "litlu" prinsessunni inn:) En ég er sammála ömmu Gretu:P Það vantar fleiri myndir af Júlí og lillunni og ykkur báðum með lilluna... Við erum notla svo stolt af prinsessunni að amma Greta er búin að prenta út trilljón myndir:P
En ég sé ykkur og lilluna þegar við förum næst inn á Ak eða þið hingað á Ólf;)
Elsku Júlí & Hjölli..til hamingju með þessa gullfallegu prinsessu. Gangi ykkur allt í haginn í framtíðinni.
halló! amma ætlar að kvarta og finnst vanta myndir af móðurinni með litlu prinsessuna og reyndar af foreldrunum með barnið.
Annars er ég að fara að prenta út myndir f. langömmu Diddu
bless dúllurnar mínar
amma Greta
Til hamingju með prinsessuna, hún er nú meira krúttið, bara stór stelpan, með bollukinnar :)
Fer að koma í heimsókn.
Knús Hulda
Svo mikið krútt :) Innilega til hamingju Júlí og Hjölli :) Sæt prinsessa sem ég veit að verður dekruð í tætlur :D
- Kristín Þ.
Hún er svo mikið æði þessi litla gella og ég get ekki beðið eftir að fara út til að ég geti misst mig í búðunum og verslað allt á hana hún verður svo dekruð af frænku sinni að þið eigið ekki eftir að trúa því... og þið eruð ekkert smá duglega að setja inn myndir og fáið alveg 100 stig fyrir það af 10 mögulegum hehe...
ooh.. hún er svo sæt:o)
við förum að kíkja í heimsókn og færa ykkur gjöfina:)
Flottar myndir :) Það var æði að kíkja á litla púkann í gær, kem ábyggilega fljótlega aftur, hehe :)
Hæ hæ
Til hamingju með litlu prinsessuna hún er ekki smá sæt. Maður verður enn spenntari að fá krílið sitt í hendurnar þegar maður sér svona yndisleg kríli.
Kveðja Inga Hilda