

Oh flotti stóri frændi minn. Hafðu engar áhyggjur af því þurfa að skrifa afsökunarbeiðni því það varst ekki þú sem smitaðir mig. Fyrir utan það þá hefði það verið sko allt í lagi því það var vel þess virði að hitta þig og leika við þig. Hlakka sko mikið til að fá þig heim á klakann og geta hitt þig kannski alla daga. Kannski verðum við bara saman á leikskólanum!!!!! Gaman yrði það hjá okkur!!! Knústu ma og pa frá okkur öllum
Sæll Daníel !
Hvernig var svo á klakanum? Besta við ferðalögin er samt að koma heim er það ekki? Leika við karl föður þinn og fá hans athygli óskipta eftir prófalesturinn;)
Heyrðum vel í þér í gegnum skype-ið þegar eitthvað ósætti kom upp við stofuhurðina, hún er komin á sinn stað er það ekki?
Við höldum enn í þann góða sið að setja rúsínurnar út á hafragrautinn og vel af þeim! ;) Helst rúsínur með hafragraut...
Hafðu það gott í Baunalandinu
Kveðja
Kære Katrin, Daniel og Bjørgvin.
Fandt jeres adresse da jeg var ved at rydde op, og hvor er jeg glad for det. Hver gang jeg går forbi jeres gamle lejlighed her på kollegiet, tænker jeg på jer og jeres lille Daniel. Nu kan jeg rigtigt se hvor stor han er blevet, og hvor er han dog bare kær. Håber i har det godt hvor i er (er det stadig Odense?). Vi har det godt her i Sønderborg, og vi glæder os til at blive færdige til sommer. Nikola og Marco bliver også store, og det er ikke til at fatte de har været så små som Daniel. Vil slutte nu, men i kan jo se vores email adresse så vi kan skrive til hinanden.
Kærlige tanker fra Inger Marie Macura
Komið þið sæl og blessuð eru bara alltaf jólin hjá ykkur? við erum farnar að sakna ykkar, okkur langar að sjá nýjar myndir svona rétt áður en við komum út, það er nefnilega þannig að núna er Elva Dögg búinn að vara lasinn síðustu dag og það er búið að skoða allar myndirnar nokkuð oft, en það er samt alltaf gaman að kíkja hér inn og sjá þig þótt það væri betra að hafa þig hjá okkur. sólarkveðja Elva Dögg
Halló elskurnar. Jæja, fjölskyldan sameinuð á ný!!! Rosalega gaman að fá ykkur mæðgin heim um daginn og fá svona aðeins að knúsa ykkur og kjassa. Verst að Böggi gat ekki komið líka. Erum aftur farin að sakna ykkar og hlökkum bara til að fá ykkur öll heim í sumar. Knús, kossar og allt sem því fylgir. Birna, Halli og Viktor Óli
Hæhæ ég rakst á síðuna ykkar af tilviljun :) ætlaði bara að kvitta fyrir innlitið.. hafið það gott í útlandinu. Bestu kveðjur frá Egilsstöðum Inga (döbbu sysstir) og Dalrós Ríkey
Hæhæ... Gaman að sjá þig í Krónunni um daginn, Katrín.. verst að Daníel Friðrik var ekki með! Vonandi fæ ég að sjá hann áður en hann fermist ;)
Hafið það gott í sveitinni hjá ömmu og afa á Fásk. ;)
Kveðja
Erla
Vildi bara kvitta fyrir mig. Hafið þið það allra best kveðja Snædís
Hæ hæ Daníel Friðrik!)
Þú mátt skila því til foreldra þinna að þau meiga alveg fara að setja inn nýjar myndir..:D:D
Hlakka til að hitta þig og knúsa í sumar þegar þú kemur..:**
Ingibjörg Ásta-frænka
Hæ hæ takk kærlega fyrir kveðjuna í gestabókina okkar. Gaman að heyra frá ykkur. Kem nú alltaf hingað annað slagið að kíkja á prinsinn en er bara alltof löt að kvitta. Hann er alveg yndislega sætur. hafið það ávallt sem best og vonandi hittumst við nú einn daginn eftir að þið flytjið aftur heim. kveðja Petra og lillan
Gleðileg jól elsku fjölskylda, vonandi höfðuð þið það gott um jólin :)
Kveðja Björgvin Sigurveig og Ísak Örn
Gleðileg jól Daníel Friðrik! Vonandi eruð þið búin að hafa það gott síðustu daga og búin að borða á ykkur mörg göt! :) Nú er ég búin að skrifa e-mailið mitt hérna fyrir ofan, endilega segðu múttu frá því og segðu henni að bæta mér inná msn hjá sér :) Kær kveðja, Tinna.
Halló fallegi litli jólaprins, við hérna á héraðinu viljum senda ykkur innilega jólakveðjur með von um gott nýtt ár,
kv Svava og co
hæhæ litli sæti strákur,ég rakkst á síðunna þína á einhverju flakki á netinu og vildi nú fá að kvitta fyrir mig.En ég vissi nú ekki einusinni að þú værir orðin mamma he he he. En allavega til hamingju með litla gullmolan þinn og vonandi gengur ykkur rosalega vel:) kv Petra(unnum saman í kaupfélaginu á egs) og Heiður Ösp litla dúllan mín
Hæ frændi. Þú ert ekkert smá flottur jólasveinn...
Og þó það sé nú soldið seint, þá vill ég óska þér til hamingju með 1. árs afmælið þitt.
Jólakveðja úr Kópavoginum.
Viktor Örn og co.
Hæ sæti jólasveinn og ekkert smá glaður líka, var loksins að kíkja á síðuna þína, hafðu það gott litli frændi og knúsaðu mömmu og pabba, knús og kossar frá furðufólkinu í Mýrinni.
Sæll og blessaður Daníel Friðrik
Ekkert smá flottur strákur, geggjaðar myndir af þér á forsíðunni. Ásgeiri fannst þú líkur pabba þínum.
Bestu kv. frá Skagagenginu.
Sæll Daníel Friðrik flottar myndir af þér, bið að heilsa hr Bögga og frú Katrínu. Kveðja Fanney B.
haehae litli ´jólasveinn, thetta eru alveg aedislegar myndir af thér;) ordinn eins árs og hvad eina;) .. hafdu thad gott og foreldrar thínir líka...
Jólakvedja Haffi
Halló sætastur
Það eru ekkert smá flottar jólasveinamyndirnar þína ;) Þú ert bara lang flottastur.
Biðjum að heilsa mömmu og pabba
Kveðja Björgvin, Sigurveig og Ísak Örn
Hæ litli danski jólasveinn..:D
Við viljum bara fá danska sæta jólasveina til okkar. Er hægt að panta þá hjá ykkur??
Jólakveðja
Amma og afi á egs
Biðjum að heilsa mömmu og pabba (kiss kiss)
Hæ Katrín og drengir. Alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur og sjá myndirnar. kv Hafdís og strákarnir
Get ég nokkuð fengið aðgangsorð svo ég geti fylgst með prinsinum og ykkur?
kveðja
Ég segi nú bara:Jesús hvað þú ert fallegur jólasveinn. Með þeim sætustu sem ég hef séð. Bið að heilsa mömmu. Sjáumst á Fásk.
kv.Óla Maja
Halló sæti frændi! Þú ert sko sætasti jólasveinninn sem við höfum séð!! Erum alltaf að skoða myndirnar.
Margir kossar og stórst knús frá okkur,kveðja Högni og Sandra
Halló sæti strákur! Svakalega ertu með fallegt bros:) Bið rosalega vel að heilsa mömmu og pabba!
Hæ Daníel! Þú tekur þig aldeilis vel út með jólahúfuna :) Flottur eins og alltaf! Njótið þess að vera til á aðventunni, bara gaman, bið að heilsa... Tinna.
FLOTTI JÓLASVEINN!!!!! Þú ert æðislegur.
Halló sæti stúfur ! Maður hrekkur nú bara í jólagírinn við að sjá þig, þú klikkar aldrei. Knús til þín, mömmu og pabba frá öllum úr Hjallanum.
hæhæ Daníel
Ég held að þú sért sætasti jólasveininn í öllum heiminum, ég vona að við hittumst nú oftar eftir áramót þegar það verður orðið styttra á milli okkar. Gefðu nú múttu knús frá mér.
kveðja Sigrún