

Hæ hæ hæ... mikið er gaman að skoða allar þessar myndir! Við Ingeborg erum að skoða og rifja upp tímann sem við áttum með ykkur í sumar...æðislegur tími:)
Knús í sveitina - njótið jólaljósanna (kræsinganna...)
Halló sætu systkini :)
Var að skoða myndirnar af ykkur, mig langar svolítið mikið að knúsa ykkur!
Sakna ykkar rosalega mikið!
Voðalega eru þetta flottar myndir af ykkur - gaman að geta aðeins fylgst með úr fjarlægð!
Farið þið ekki bara að drifa ykkur í bæinn - nóg pláss fyrir alla og dekur alla daga!!
Knús á ykkur öll dúllurnar mínar.
Kv.frá öllum í Dofrabergi.
Komið sæl og blessuð.
Takk fyrir allar fínu og skemmtilegu myndirnar.
Freyja er aldeilis orðin mannaleg og ekki laust við að hún sé eitthvað að líkjast
Bögga en samt er hún rosa blönduð. Hlakka ekkert smá til að hitta ykkur í sumar og eiga notalegan tíma með ykkur.
Kær kveðja frá öllum á bænum, Ella og co.
Elsku Daníel og foreldrar :)
Innilegar hamingjuóskir með fallegu dömuna ykkar, eigum eftir að fylgjast vel með hérna ;) Gangi ykkur rosalega vel og við heyrumst vonandi fyrr en síðar :)
Kv. Helena og Tryggvi
Elsku Daníel Friðrik,Katrín og Böggi,til hamingju með litlu dömuna ykkar.
Hún er yndisleg og það verður erfitt að bíða þar til maður fær að knúsa hana.
Gangi ykkur vel með allt. Kveðja frá Ellu frænku og fjölskyldu.
Elsku frændi minn í sveitinni.
Til hamingju með afmælisdaginn þinn.Vonandi áttu góðan dag með vinum þínum og fjölskyldu.
Knús knús knús... Kristín og co í Hafnarfirði.
Hæ hæ - sá á forsíðunni;
Fullt af nýjum myndum!!
Ég varð að vonum afar spennt... en halló! Þessar nýju myndir eru síðan í maí - næstum hálft ár...
En samt - alltaf gaman að kíkja við.
Knús til ykkar allra úr firðinum fagra, Hafnarfirði.
Sæl öll sömul.
Sit hér seint á laugardagskvöldi og datt í hug að kíkja inn á síðuna þína Daníel minn. Svava er á Íslandi og við krakkarnir búin að eiga saman mjög góðan tíma, fórum m.a. í MJÖG langan hjólatúr í dag í góða veðrinu (sól og rúmlega 20 stiga hiti) og tókum með okkur nesti og tálguðum spýtur og fleira. Gaman að rifja upp heimsóknina til ykkar til Danmerkur hér um árið :) Gaman væri ef mamma þín setti inn nýlegar myndir frá því í sumar :) Bestu kveðjur til ykkar allra frá London. Hjörvar frændi þinn.
Hæ elsku vinir í sveitinni;)
Mikið er gaman að sjá nýjar myndir - fallegastar eru þó listaverkin þín Daníel Friðrik, bara meiriháttar hjá þér..úps!
Hittumst nú aldeilis fljótlega - eftir 5 daga!
Knús knús, K2.
Halló litla fjölskylda.
Það er gaman að skoða allar nýju myndirnar, ungarnir eru bara æðislegir og það eruð þið líka !
Maður fær nú smá sting í hjartað þegar maður sér litlu dúlluna hana Frigg, blessuð sé minning hennar.
Við bíðum spennt eftir að heimsækja ykkur í sumar.
Kær kveðja úr Hjallanum.
Hæ hæ hæ hæ... vá hvað er líflegt þarna í sveitinni!! Voðalega eru þetta mikil krútt..., bæði ungarnir og lambið.
Risaknús til ykkar allra.. nú styttist vonandi í að við hittumst;)
Kristín.
Halló,halló allir saman !
Ákvað að kvitta einu sinni, er alltaf að kíkja.
Við bíðum spennt eftir að heimsækja sveitalubbana í lok apríl,
þá verður sko stemmari ef ég þekki þetta leð rétt.
Kveðja fá öllum úr Hjallanum.
Hæ Daníel Friðrik. Takk fyrir seinast. Það var gaman að koma í heimsókn til ykkar í janúar. Núna erum við flutt út og búin aðkoma okkur fyrir í kaupmannahöfn. Okkur langaði til að skoða myndir á síðunni þinni en við vitum ekki lykilorðið. Kannski mamma þín og pabbi séu til í að senda okkur email með lykilorðinu. Það myndi gleðja okkur mjög. Með kærri kveðju.
Hæ hæ Daníel Friðrik....
Hvað er að frétta úr sveitinni???
hæ gaman að sjá myndirnar af ykkur ég fékk lykilorðið hjá mömmu í gær,það hafa allir það gott hér gaman að geta fylgst smá með ykkur hér Daníel friðrik er orðin svaka stór strákur og myndarlegur eins og ættin okar Solla og dömurnar biðja að heilsa..:(
Hæ Daníel Friðrik.. fallegar myndir frá því um jólin. Ummm mig langar bara í rjúpur NÚNA! Og auðvitað að knúsa þig!
Knúsukveðjur í Steinholtið úr Dofraberginu;)
Hæ hæ og gleðilegt nýtt ár :)
Þú ert orðin svo stór strákur .. það væri nú gaman að fá að hitta á þig næsta sumar og heilsa upp á mömmu og pabba
en við biðjum að heilsa mömmu og pabba
kv Hafdís Ragna, Jóhanna Dagný og Sara Dís
Halló sæti strákur!!!
Mikið er nú gaman að skoða myndirnar þínar
Þú verður nú að knúsa múttuna þína frá mér
Kveðja
Sigga Rósa
Hæ hæ! Vorum bara að kíkja við og skoða jólamyndir :) Bergrós Ásta er farin að þekkja einn og einn á myndunum og Frigg finnst henni sérlega skemmtileg :)
Kveðja í kotið
Gummi, Katrín og Bergrós Ásta
Ha ha ha djók, það stóð í jólakortinu! :)
Gleðilegt nýtt ár elskurnar og takk fyrir það gamla :)
Nú gekk mín á vegg þegar hún ætlaði að kíkja á myndir. Spurning hvort mamman sé til í að senda á mig lykilorðið??? :)
Hæ hó Daníel og co.
Gleðileg jól og allt það, rosalega fínn hundurinn þinn og allar kindurnar þínar, við verðum sko að koma og kíkja á herlegheitin einhverntíman við tækifæri, bið að heilsa í bili
Viktor Daði og co Odense
Hææææ vá hvað þetta eru skemmtilegar myndir! Frábærar myndir úr afmælispartýinu - Katrín mín flottar veitingar, ummm;)
Frigg er nú rosa krútt - ég hlakka bara rosa til að koma og hitta ykkur og knúsa rosa rosa mikið!
Kveðja úr Firðinum þar sem erfitt er að gera upp á milli FH og Hauka!!!!
Vorum að skoða myndir úr afmælinu og af ,,Higg". Ég spurði mömmu hvort ég mætti ekki aftur fá bílaköku. Mér fannst hún ossa góð.
Kveðja Vóli
Hæ, hæ öllsömul.
Takk fyrir samveruna um daginn sem var
mjög skemmtileg. Nú teljum við bara niður til
jóla og spennan er mögnuð ! Við bíðum
svo bara róleg eftir afmælismyndum eða
svona frekar róleg. Farið vel með ykkur.
Kveðja úr Hjallanum.
Halló Daníel Friðrik 3ja ára strákur....
Mamma hún mundi bara allt í einu eftir því að þú hefðir átt afmæli á föstudaginn. Þannig að þú færð bara síðbúna afmæliskveðju héðan úr dalnum.
Það væri nú gaman að fá lykilorðið á síðuna hjá þér svo við getum enn skoðað hvað þú ert að gera.
Knús og klem frá okkur í Odense.
Geggjaðar myndir úr útilegunni okkar.....fannst reyndar frekar fyndið að á myndinni af öllum börnunum okkar skrifar þú Sandra í stað Birgitta....Krútt.
Sjáumst ofurkátar á morgun.
Sandra
Helló helló!
Okkur langaði bara að kvitta fyrir okkur...erum reyndar alltaf að kíkja enn ekki nógu dugleg með gestabókina. Alltaf gaman að sjá nýjar myndir,vorum að tala um hvað það verður gaman þegar að litli frændi kemur út til okkar í heimsókn , svo margt sem að okkur langar að gera og sýna honum,vonandi verður það bara sem fyrst!!
Kossar og knús frá London
Sæl Kartín! Ég er hjá mömmu þinni og pabba, þetta er aldeilis falleg fjölskylda sem þú átt. Kveðja, Hlíf.